Fréttatíminn - 22.03.2013, Blaðsíða 78
Guðmundur Breiðfjörð Styrkir kraBBameinSfélaGið með ljóðaBók
Bíómaður yrkir til
að halda sönsum
Guðmudur Breiðfjörð, markaðsstjóri kvikmynda, leynir á sér. Dagana langa lifir hann og hrærist í
afþreyingariðnaðinum frá Hollywood en færri vita að í Guðmundi bærist skáld og hann hefur nú
gefið út sína aðra ljóðabók, Perlu, þar sem hann gerir meðal annars upp hjónaskilnað. Allur ágóði
af sölu bókarinnar rennur til Krabbameinsfélagsins.
G uðmundur Breið-fjörð hefur um langt árabil sinnt mark-
aðs- og kynningarmálum
kvikmynda hjá afþreyingar-
risanum Senu. Guðmundur
gaf út sína fyrstu ljóðabók,
Köllun, 1998 og fylgir henni
nú loksins eftir með Perlu.
„Ég er bara rosalega
ánægður með að koma þessu
loksins frá mér,“ segir Guð-
mundur sem ætlaði sér upp-
haflega að gefa bókina út
2008, sléttum tíu árum eftir
að hann þreytti frumraun
sína. „Þetta dróst síðan alltaf
einhvern veginn. Ég lenti í
skilnaði sem fylgdi mikið
uppgjör og svona. Þetta eru
mjög persónuleg ljóð,“ segir
Guðmundur sem ákvað nú
loks að slá til.
„Ég á afmæli núna, er 45
ára, og svo er Mottumars,
átaksmánuður til þess að
vekja fólk til umhugsunar
um krabbamein, þannig að
ég ákvað að kýla á þetta og
gefa Krabbameinsfélaginu
allan ágóðann af sölunni.“
Guðmundur segir að
málið sé sér skylt þar sem
hann hafi horft á eftir fólki
sér nákomnu verða krabb-
anum að bráð. „Pabbi dó úr
eitlakrabbameini, langt um
aldur fram. Hann var 65 ára
sem mér fannst allt of ungt
fyrir hann. Frændi minn
dó svo úr eitlakrabbameini
í fyrra,“ segir Guðmundur
sem hefur ærna ástæðu til
þess að leggja Krabbameins-
félaginu lið.
En hvaðan fær skáldið inn-
blástur? Varla frá Holly-
wood?
„Nei, alls ekki. Alveg að
Hollywood ólöstuðu sem
býður upp á myndir sem fara
með mann allan tilfinning-
skalann þá virðast nú ljóðin
koma til mín úr annarri upp-
sprettu. Til þess að halda
sönsum í afþreyingunni þá
þarf maður þetta eiginlega
til þess að vega upp á móti.
Þetta andlega fóður. “
Guðmundur segir bókina
hafa verið nokkurn veginn
tilbúna lengi. Elstu ljóðin eru
frá 1996 en þau nýjustu frá
þessu ári. „Ég þurfti aðeins
að losa um, sérstaklega
eftir skilnaðinn, og þá var
gott að setjast niður og
skrifa.“
Guðmundur verður með
útgáfuteiti á Austur í dag,
föstudag, frá 17 til 19. „Ég
vonast til að sjá sem flesta
þar og ég verð með posa
frá Krabbameinsfélaginu.
Það væri gaman að ná að
klára 500 eintök fyrir lok
Mottumars,“ segir Guð-
mundur og bætir við að
hann stilli verðinu í hóf og
selji bókina á 1000 krónur.
„Þetta er lítið framtak en
vonandi skiptir þetta máli
og ég næ vonandi hálfri
milljón. Ljóðið er ekki
dautt og fólk fær góða
ljóðabók um leið og það
styrkir gott málefni.“
Þeir sem ekki eiga
heimangengt á föstudag
en vilja eignast bókina
geta haft samband við
Guðmund á netfanginu
breidfjord@sena.is og
hann kemur bókinni á
réttan stað.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Ástin
er kulnuð
eins og askan
í síðustu
sígarettunni
hjá manninum
sem er að deyja.
Guðmundur Breiðfjörð kom vinnufélögum sínum hjá Senu á óvart þegar hann steig fram
sem ljóðskáld í vikunni. Hann vonast til þess að samstarfsfólkið sýni góðu málefni skilning
og kaupi bók. Ljósmynd/Hari
Til þess að
halda söns-
um í afþrey-
ingunni þá
þarf maður
þetta eigin-
lega til þess
að vega upp
á móti.
NÝ BÓK EFTIR
METSÖLUHÖFUNDINN
STEFÁN MÁNA
BÓK SEM AÐDÁENDUR
HUNGURLEIKANNA OG TWILIGHT
MUNU FALLA FYRIR
„Frábær bók, mjög
skemmtileg, hélt athygli
minni allan tímann.“
BIRKIR ÖRN KARLSSON
www.forlagid.is
– alvöru bókabúð á netinu
Fatahönnuðurinn
Ólafur Helgi sýndi sína
fyrstu tískulínu í Gerðu-
bergi í tengslum við
Hönnunarmars. „Það er
búið að vera alveg brjál-
að að gera og sýningin
heppnaðist stórkost-
lega vel,“ segir Ólafur
Helgi. „Svo vel að mér
var í framhaldinu boðið
að stija námskeiðið
Konur til athafna hjá
mæðgunum Sigrúnu Lilju Guðjóns-
dóttur eiganda Gyðja Collection og
móður hennar Guðrúnu Barböru
Tryggvadóttur. „Mér fannst mér
mikill heiður sýndur með að fá að
vera fyrsti og eini strákurinn sem
hefur fengið að vera á námskeiðinu.
„Það var svo sem ekkert nýtt að
vera á námskeiði, allir voru ávarp-
aðir í kvenkyni,“ hlær Ólafur. „Ég
hef verið á mörgum nám-
skeiðum og í bekkjum
þar sem eru bara konur
og svo halda bara margir
að ég sé kona.“
Ólafur Helgi kallar
tískulínuna sína Starina
Couture en hún er jafn-
framt útskriftarverkefni
hans í tísku- og textíl-
hönnunarnámi frá Nuova
Accademia di Belle Arti
Milano.
„Hún Sigrún Lilja hefur stutt mig
í þessu verkefni en allir skór sem
sjást í verkinu eru frá Gyðju, “ segir
Ólafur Helgi um leið og hann skilar
þökkum til allra sem studdu við
bakið á honum í verkefninu.
Sýning Ólafs Helga stendur til
24. mars í Gerðubergi og myndir
og myndband af tískulínunni má
sjá á www.olafurhelgi.com.
Eini strákurinn með konum til athafna
fatahönnun ólafur helGi
Ingvi Björn hefur náð góðum árangri í mótorcrossi hérna
heima og er nú farinn til æfinga með norska landsliðinu.
inGvi Björn Æfir mótorkroSS með norSka landSliðinu
Tekst á við reynda harðjaxla
m ótorcross-kappinn ungi, Ingvi Björn Birgisson, hélt til Noregs í vikunni en þar mun hann dvelja
fram eftir sumri og æfa með norska lands-
liðinu í sportinu. „Mér bauðst þetta tæki-
færi og ákvað að slá til og æfa með landslið-
inu,“ segir Ingvi. „Þjálfarinn þeirra er mjög
þekktur, fær og reyndur í þessu og hefur
keppt á heimsmeistraramótum og svona.“
Ingvi er sautján ára og hefur landað
nokkrum Íslandsmeistaratitlum í mótor-
crossinu. Hann vill þó ekki gangast við því
að hann sé orðinn of góður fyrir Ísland.
„Ég ætla mér bara að verða betri og þess
vegna fór ég. Það eru mjög góðir gaurar
að keppa í þessu heima en þeir eru fleiri í
Noregi og nöfnin stærri,“ segir Ingvi sem
bíður spenntur eftir því að fá að spreyta sig
á Norðmönnunum.
Ingvi er þó ekki genginn til liðs við
norska landsliðið og keppir að sjálfsögðu
alltaf fyrir Íslands hönd þegar svo ber undir
en ætlar að keppa á norska og sænska
meistaramótinu í mótorcrossi. „Ég á svo
eftir að koma eitthvað heim í sumar til þess
að keppa.“
Ingvi segir að sportið gefi ekki mikið
í aðra hönd, í það minnsta ekki enn sem
komið er en hann nýtur styrkja ýmissa
aðila og getur þannig stundað íþróttina sem
á hug hans allan. „Ég er búinn að vera að
hjóla frá því ég var átta ára og byrjaði að
keppa tólf ára.“
Ingvi segir Ísland ekki neitt sérstaklega
hentugt fyrir íþróttina og í raun sé aðeins
hægt að stunda hana yfir sumarið. „Eins
og þetta er núna þá koma einstaka dagar
þegar ekki er frost í jörðu og þá er hægt
að hjóla í sandi. Annars er þetta bara á
sumrin,“ segir Ingvi sem skrapp til Banda-
ríkjanna í tvo mánuði í vetur og hjólaði þar
frá janúar fram í mars. Og nú er hann kom-
inn til Noregs. „Þetta er mjög skemmtilegt
tækifæri og ég held að það verði mikið fjör
hérna.“ -þþ
78 dægurmál Helgin 22.-24. mars 2013