Læknablaðið - 01.01.1923, Qupperneq 23
LÆKNABLAÐIÐ
21
um annaö, og vafasamt er, hvort þær hafa yfirleitt verið metnar svo sem
skyldi, af öðrum en þeim, sem hest þektu til og vit höfðu á því, en þaö
voru stéttarbræður hans, og þeirra traust hafði hann líka óskift.
Andrjes heitinn var gerfilegair maður, ljóshærður og bjartleitur, hár
vexti og þrekinn, — karlmenni að burðum, snarlegur og sterklegur á velli.
i lann var íþróttamaður á marga lund, — skytta, laxveiðimaður og ræð-
ari, svo að orð var á gert.
Öllum, sem nokkuö J>ektu Andrjes heitinn, veröur hann minnisstæður.
Það var svo margt í fari hans, sem vakti velvild og virðing annara.
Hann var glaöur og kátur, fjörugur í viðræðum, einaröur í skoðunum
ög allur hugsunarhátturinn fyrirmannlegur. Hann var vinfastur og trygg-
nr, óáleitinn við aðra, en Jréttur fyrir, ef á hann var leitað, en J)að bar
sjaldan til.
Hann var kvæntur Sigríði, dóttur Magnúsar Blöndahl framkvæmdar-
stjóra í Reykjavik, og lifir hún mann sinn. Þeim varð ekki barna auðið.
Andrjes heitinn var jarðsunginn J). 23. febr. síðastl., og fór greftrunar-
athöfnin mjög hátíðlega fram, var svipmikil og fyrirmannleg, — vel við
kans hæfi. M. E.
Afnám landlæknisembœttisins.
Ein af þeim nýjungum sem landsstjórnin hefir upp á að bjóða nú Jæg-
ar Aljiingi kemur saman, er frumvarp um að landlæknisembættið skuli
*agt niður, J)egar núverandi landlæknir lætur af embætti. í Jæss stað skai
stofnað heilbrigðisráð, er sé skipað héraðslækninum í Reykjavík og 2
prófessorum úr læknadeild háskólans, er deildin kýs. Væntanlega verður
tkki mikill hiti í þeirri kosningu fyrst um sinn, meðan að eins eru 2 pró-
iessorar í deildinni. Ekki hefir stjórnarráðið samið frv. sitt í samráði viö
læknadeildina, J)ótt slíkt hefði virst eðlilegur gangur málsins og ber pró-
fessorunum væntanlega ekki skylcki til að taka sæti í hinu væntanlega
1 áöi. Er jafnvel líklegt að, a. m. k. annar þeirra, muni ekki fús á að bæta
við sig nýjum störfum. Með stjórnarfrumv. J)essu er með einu pennastryki
nfnumið eitt af elstu og, að flestra skynbærra manna dómi, mikilvægustu
eml)ættum hér á landi. Er trúlegt að læknum leiki hugur á að kynnast
astæðum J)eim og athugasemduin, er frumv. fylgja af hálfu landsstjórnar-
innar, og tekur Lbl. J)ví upp hér á eftir frumv. með athugas. stjórnarinnar:
Erv. til laga um afnám landlæknisembættisins og stofnun heilbrigðisráðs.
1. gr. — Landlæknisembættið skal lagt niður.
2. gr. — í Reykjavík skal stofna heilbrigðisráð, er sé skipað 3 mönn-
um, héraðslækninum í Reykjavík og 2 prófessorum úr læknadeildinni við
Háskóla fslands, er deildin kýs.
3- gr. — Störfum þeirn, er nú hvíla á landlækni, skal með konungsúr-
skurði skift á milli stjórnarráðs og heilbrigðisráðsins.
A t h u g a s. v i ð f r u m v. þ e 11 a: Landlæknisembættið var stofnaö
með konungsúrskurði 18. mars 1760,' en erindisbréf fyrir landlæknirinn