Læknablaðið - 01.12.1925, Blaðsíða 22
i88
LÆKNABLAÐIÐ
Ungbarnadauði var gjj/co. E n g i n n d ó á á r i n u ú r t a u g a-
v e i k i. Af hverjum 100 þús. íbúum dóu 116 úr berklaveiki; flestir dóu
á Hjaltlandi, 247 af 100 þús., eöa 59 alls á eyjunum. Af barnsförum
dóu 5,8%c.
Hvenær skyldi heilbrigöisstjórnin okkar birta íslenskar tölur um þessi
efni, frá árinu 1924? G. Cl.
Fréttir.
Árbók Háskólans, háskólaáriö 1924—1925, er komin út meö fylgiriti
eftir Guöm. próf. Hannesson: „Körpermasze und Körperproportionen der
Islánder“. Rits þessa veröur nánar getiö síöar.
Kjartan Ólafsson hefir undanfarin ár lagt stund á augnlækningar er-
lendis, mestmegnis í Vínarborg, og er nú nýkominn hingaö til bæjarins
og mun ætla aö setjast hér aö sem augnlæknir.
Halldór Hansen er nýfarinn utan og ætlar aö dvelja þar 3 mánuöi, í
Englandi og víöar.
Óskar Einarsson sigldi til Kaupmannahafnar fyrir skömmu, aöallega
til Jiess að leita sér lækninga.
Kristján Arinbjarnar er nýfarinn hjá, á leið til Noregs, en þaðan ætlaði
hann til Vínarborgar, og geröi ekki ráð fyrir aö koma aftur fyr en í
ágúst að ári.
Ari Jónsson er og farinn utan til framhaldsnáms.
Sigurmundur Sigurðsson var hér á ferð i nóvember, en hafði stutta
viðdvöl.
Námsskeið hefir R a u ö i k r o s s i n n haldiö í nóvembermánuði í
heimahjúkrun og hjálp í viðlögum, og kenna þar læknarnir Gunnlaugur
Einarsson og Ólafur Gunnarsson meö aöstoö hjúkrunarsysturinnar.
Sameiginlegar lækningastofur hafa þeir haft undanfarin ár Matt'hias
Einarsson og Ólafur Jónsson, en nú í haust eru 2 aðrar komnar í viðbót.
Á öðrum staðnum eru þeir Guöm. Guðfinnsson og Magnús Pétursson, én
hinum Guöm. Thoroddsen og Gunnlaugur Einarsson.
Leiðrétting. í grein minni „Um berklalækningar’* (í síðasta nr. Lbl.)
er meinleg prentvilla (eöa ritvilla?) : d i a lysator, á að vera k a t a-
lysator (bls. 138, 1. 7 og 25 a. o., bls. 143, 1. 24 a. o. og bls. 146,1. 6 a. n.).
— Á bls. 138, 1. 10: ónæmi les n æ m i. Sig. Magn.
Borgað Lœknabl.: GuSm. Ásmundsson '24—'25, Jón Jónsson '25, Katrín Thorodd-
sen '25, Arent Claessen '23—124, Scheving Thorsteinsson '25, Hallgr. Benediktsson
'25, V. Bernhöft '25, Óskar Einarsson '25, Gunnl. Þorsteinsson '24—'25, Kampmann
'24—'25, Óskar Þórðarson '25, Bjarni Bjarnason '25, Torfi Bjarnason '25, Magnús
Ágústsson '25, Ólafur Ó. Lárusson '25.
FÉLAGSPBENTSMIÐJAN