Læknablaðið - 01.04.1940, Side 9
LÆKNABLAÐ lí)
sta'Ö, og jafnvel kalkað, en ef hún
breiðist nokkuð út, er ávalt viðbúið
að sýkti vefurinn ysti og að
osturinn linist upp, og þannig
niyndist lítil kaverna. Þegar svo er
komið, er erfitt að stöðva lungna-
meinið.
3) Loks getur, samkv. kenningu
Rankes, sá, sem staðið hefir af sér
frumsmitunina, sýkst af tæringu, nl.
af króniskum lungnaberklum, sem
haga sér þannig, að hreytingarnar
hyrja uppi í apex, og færast smám
saman niður eftir lunganu, en hér
verður útlireiðslan aðallega canali-
culær, þ. e. a. s. í lunganu Ijreiðist
hún aðallega út eftir hronchunum,
en líka pr. continuitatem, þannig,
að berklagranulationir ysta og emol-
liera síðan. Þannig mynclast þá sú
vanalega krónisk-cavernösa phthisis,
sem samkv. þeim kenningum, sem
nú eru ríkjandi, ætti aðeins að koma
hjá þeim, sem áður hafa staðið af
sér sína frumsýkingu og eru orðnir
ónæmir.
Hvort þessi endursýking (rein-
fektion) sé komin utan að eða inn-
an að, er lengi búið að vera mikið
deilumál. Sumir halda, að exogen
infektion sé algengust, aðrir að
endogen reinfektion sé venjan, nl.
að gamalt berklafocus geti vaknað
upp á nýtt, og veikin tekið sig upp
út frá því.
Strax og líkamsvefirnir hafa
komist í kynni við lærklasýklana,
hefst bardaginn við þá, og sá bar-
dagi er aðallega við endotoxin sýkl-
anna, þ. e. þau sömu, sem eru i
tuberculini. Allir likamsvefir verða
næmari en áður fyrir þessu endo-
toxini. reagera öðruvísi en áður fyr-
ir því, verða allergiskir, svo að tu-
berkulinreaktion, sem áður var ne-
gativ, verður positiv.
Eg hefi þá stiklað á stærstu stein-
unutn í berklakenningum nútímans,
að svo miklu leyti, sem við þurfum
5i
að hafa þær til hliðsjónar við það,
sem hér fer á eftir.
Reglulegar krufningar hófust hér
fyrst þegar Landspítalinn kom upp
krufningarstofu, sem var tilbúin í
apríl 1932. Frá því fyrsta hefi eg
gert mér far um að fylgjast með
öllum menjum um tuberculosis í lik-
unum, til að fá með tímanum safn-
að saman upplýsingum um út-
hreiðslu herklaveikinnar og gang
hennar, eins og hún tekur sig út
á sektionsborðinu.
Markmiðið með þessum rann-
sóknum er aðallega tvöfalt: 1) að
komast eftir því sem unt er, með
nákvæmri leit, að raun um, hve mik-
ill hluti landsmanna hafa menjar
um berklasýkingu, l)atnaða eða ekki,
sérstaklega á svo lágu stigi, að klin-
isk einkenni hafi ekki komið fram.
2) að gera sér grein fyrir gangi
lærklaveikinnar hjá. þeim, sem sýkst
liafa, og ef unnt væri, að fá sam-
anburð við önnur lönd viðvíkjandi
gangi veikinnar, með tilliti til þess,
hvort hún skyldi yfirleitt vera ill-
kynjaðri hér en annarsstaðar, eða
enginn munur í því efni. 3) að
gera sé grein fyrir, á hvaða aldri
fólk smitast.
Matcrialc.
Á tímabilinu april 1932 til 1. jan.
1940 hafa verið krufin hér alls, 687
lík. Langflest ])eirra hafa verið frá
Landspítalanum, en 1936 var byrj-
að að kryfja lík sjúklinga, sem önd-
uðust á Vífilsstöðum. Auk þess
liafa verið krufin tiltölulega fá lik
frá öðrum spítölum, og ennfremur
eru hér taldar með allar krufningar
fyrir lögregluna, sem flestar eru
banvæn slys á fólki, sem var hraust
fyrir.
Þó að athygli okkar væri frá
fyrstu tíð beint að berklaveikinni,
þá hefir nákvæmnin við rannsókn-