Læknablaðið - 01.04.1940, Blaðsíða 12
54
LÆKNABLAÐIÐ
og hjá stúlkunni meÖ Wilsons sjd.,
þar sem kaverna íanst í lii furcati-
onseitli, að vísu með kölkuðu stykki
í, en umhverfið var ekki kalkað,
svo að sýkingin hefði vel getað
l^reiðst út frá þessum eitli.
Eftir því sem fólkið eldist sjá-
um við tiltölulega meira af kölkuð-
um primæraffektum, eins og sést af
t'áflu 3. Samt sjáum við ókalkaða
primæraffekta koma fyrir fram að
sextugsaldri.
Tafla 3. Ástand primæraffektanna.
Aldur Primærfocus kalkað Primær- focus yst Kölkuo %
11—20 4 4 50
21—30 13 5 70
31—40 19 3 86
41—50 24 2 92
51—60 18 1 95
61—70 23 0 100
71-90 11 0 100
Þótt þessar tölur séu ekki stórar,
þá er samt sýnilega visst lögmál í
þeim, nl. að ógrónum primæraff-
ektum fækkar jafnt og ])étt með
stigandi aldri. Sumir kunna að vilja
draga þá ályktun af þessu, að þetta
komi heim við að flestir smittist á
barnsaldri, en sú ályktun er fráleit.
Það eru ekki nokkur líkindi til að
primæraffekt haldist ystur í marga
áratugi. án þess að kalka. Sá elsti,
sem við höfum séð ókalkaðan, eft-
ir því sem unt var að reikna út
aldur sjúkdómsins, var 4 ára, og
kemur það alveg heim við reynslu
Schúrmanns, sem í sínu materiale
hafði aðeins einn ókalkaðan prim-
æraffekt 4 ára gamlan, en engan
eldri. Við höfum fimdið kalkaðan
primæraffekt í 1 árs liarni, sem dó
úr miliartbc. og gegnumkalkaðan
hiluseitil í öðru 2ja ára 1)arni, sem
einnig dó úr meningitis, svo að
auðsætt er að ystingarnar í primær-
komplexinum þurfa ekki mörg ár
til að kalka, og er full ástæða til
að álykta, að ókalkaður primæraff-
ekt sé vottur um tiltölulega nýlega
sýkingu, í flestum tilfellum yngri
en 4 ára.
Það er óneitanlega áberandi, að
ekki skuli finnast nema einn gró-
inn primæraffekt fram að xo ára
aldri. Hér eru þó alls 38 börn, 24
innan 6 ára og 14 6—10 ára. Þó
geta þessi hlutföll verið rétt, því
að þess ber að gæta, að svo lítið
deyr af börnum á aldrinum 6—10
ára, þar sem við höfum aðeins 6,
sem engir berklar finnast hjá, en
engan primæraffekt, að tæplega er
leggjandi nokkuð upp úr svo lágri
tölu, en hins vegar hefði maður
ekki búist við að finna aðeins í
einu barni af 24 greinilegar menj-
ar um batnaða berklaveiki.
Því fer fjarri, að við höfum á-
valt fundið fullkominn primærkom-
plex, þ. e. focus bæði í lunga og
í tilsvarandi eitli. í yfirliti, þar sem
3 bötnuð tilfelli eru tekin með, sést
að við höfuiri fundið focus í lunga,
en ekkert í eitli í 31 tílf., focus i
eitli, en ekkert i lunga í 34 tilf.,
focus i lunga og eitli i 62 tilfellum.
Langflest primærfocus fundust
rétt undir pleura, venjul. 2—5 mm.
frá brjósthimnunni, í lungnavefn-
um, en fyrir kom að primæraffekt
fanst dýpra í lungnavefnum, og í
nokkrum tilfellum fundust fleiri en
einn í sanxa lunga. Lungnafocus án
þátttöku eitilsins fundust oftar hjá
eldra fólki, aftur á móti var algeng-
ara að finna focus í eitli án nokk-
urs lungnafocus i unglingum innan
tvítugs.
5. Aktiv tubcrculosis.
Eins og sést af töflu 1 er tala
þeirra, sem deyja úr berklaveiki á
unga aldri, há sanxanborið við gróna
eða stöðvaða primærsýkingu.
Tafla 4 gefur yfirlit yfir aktiv