Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 30.12.1943, Side 26

Læknablaðið - 30.12.1943, Side 26
LÆKNABLAÐi Ð 116 Viö vefjaskoðun var aSeins aö- staða fyrir hendi til þess aö leita að sýklunum meö Levaditi-litun. Sú aðferð er, aö ýmsu leyti, erfið- leikum bundin og ekki talið fært aö ákvarða sjúkdóminn með henni einni, þótt hún gefi glögga mynd, ef sýklarnir koma fram á annað borð (14). Weilsgulusýklar í nýra úr ref frá búi i nágrenni Reykjavikur. Stækkunin er yfir þúsundföld og litun samkvæmt aðferð Levaditi. Tilfellin hér á landi hafa komið fram á Hkum tíma árs, einmitt á þeim tíma, sem ætla mætti að harðnaði í búi hjá rottunum,og þær hætti sér meira í námunda við ref- ina og refabtun. Að vísu verður ekkert fullyrt um þetta, en viökom- andi dýr munu hafa verið i búrum, sem voru umsetin af rottum. Eftir frásögn refahirða eru lík- ur til þess, að talsvert fleiri refir hafi sýkzt með vægum einkennum, og án þess að gula kærni fram. Ekki sé ég ástæðu til þess að fjalla hér nteira um refagulu þessa. En ég vil leyfa mér að benda á eft- irfarandi atriði: 1. Telja má staðfest, að í minnsta kosti einu af þessum refagulu- tilfellum hafi verið um Weils- gulusýkla að ræða. 2. Sýkingin er, að öllum líkindúm; komin frá villtum rottum í ná- grenni Reykjavikur. 3. Þar sent refir eru mikið hand- leiknir af refahirðum, gestum á refasýningum o. s. frv., þá er nokkur ástæða til þess fyrir lækna að hafa þessa smitunar- leið i huga. 4. Það, sem sagt hefur verið um refi, á væntanlega einnig við um hunda, sérstaklega ef þeir veiða rottur og mýs. Hér á landi munu hafa komið fram í fólki allmörg lilfelli af gulu, sem talin hefur verið smitandi, en ekki verið upplýst til fulls, af hvaöa rótum sé runnin. Eg álít það mikið nauðsynjamál. að fá þaö staðfest, hvort Weilsgula kunm ekki að vera þarna fyrir hendi, að minnsta kosti í sumum tilfellum. Þótt ég hefði gjarnan viljað hafa tækifæri til þess að gera nánari at- huganir á sjúkdómi þessum, taldi ég ekki rétt að láta lengur lijá líða að vekja athygli á honum. Sýk- ingarhættan hefur án efa aukizt hér á landi síðustu árin, með aukinni útbreiðslu rottunnar, og þar við Ijætist, að það er kunn staðreynd erlendis, aö Weilsgulusjúklingum fjölgar á stríðstímum. H e i m i 1 d a r r i t: 1. Hutyra, F., Marek, J... Mann- inger, R.: „Special pathology and Therapeutics of the Dise- ases of domestic animals'*, 1938. 2. Topley, W. W. C., Wilson, G. S.: „The Principles of Bacter- iology and Immunity", 1936. 3. Svaar-Seljesæter, O.: „Nord- isk Medicin Nr. 27, bl. 2089, 1939; 4. Davidson, L. S. P„ Campbell, R. M„ Rae, H. J„ Smith, J.: Brit. Med. J„ II. 1137, 1934.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.