Læknablaðið - 30.12.1943, Side 31
LÆK N AB LAÐ IÐ
121
ins hjúkrunarkvennaskóla. Frum-
varp þetta hefir verið lagt fyrir
Alþingi það, er nú situr,*) og bíður
þar úrlausnar. — í sambandi við
frumvarp þetta ritaði stjórn F.I.H.
yfirlæknum ríkisspítalanna bréf,
þar setn þess var farið á leit, að
þeir, sem hefðu nám hjúkrunar-
kvennanna með höndum, létu í ljós
álit sitt um það, á hvern hátt væri
hægt að auka aðsókn að hjúkrun-
arnáminu og gera það aðgengi-
legra. Greinargerðir bárust félag-
inu frá þessum læknum og hnigu
utnmæli þeirra öll i þá átt, að
stækka bæri skólann og búa þannig
aÖ honum, aÖ öruggt megi verÖa
að aðsókn til hans verði ekki ein-
ungis nægileg, heldur veljist einn-
ig til hans konur, sem hafa menn-
ingarskilyrði og löngun til þess að
vinna þjóðfélaginu gagn. Greinar-
gerðir yfirlæknanna voru, ásamt
frumvarpinu, sendar til Alþingis.
Eins og að frarnan getur, telur
hjúkrunarkvennastéttin réttan
skilning læknastéttarinnar á hög-
um hennar og aðstoð henni til
handa í aðsteðjandi vandamálum,
lífsskilyrði fyrir stéttina og skil-
yrði fvrir aukinni heilsuvernd. Þar
eð lijúkrunarkvennastéttin er að-
stoðarstétt læknanna, sem þeir oft
sýna ntikið traust og trúa fyrir á-
byrgðarmiklum störfum. leitar hún
líka að sjálfsögðu til þeirra og
væntir aðstoðar, þegar framtíð
hennar er i sýnilegri hættu, enda er
þróun hjúkrunarkvennastéttarinn-
ar engu síður hagsmunamál lækn-
anna en þjóðarinnar í heild. Hefir
mér komið til hugar, að bezta að-
stoð gætu læknar þjóðarinnar nú
*) í febrúar 1944.
sýnt með þvi að styðja mál þeirra
með áskorunum frá héraðasam-
böndum sínum og félögum til Al-
þingis, um að veita heimild til
byggingar og starfrækslu hjúkrun-
arkvennaskóla, sem er þjóðinni
samboðinn.
Erlendis er það talinn menning
arvottur hverrar þjóðar, að vanda
vel til náms hjúkrunarkvenna, og
er þar jöfnum höndum lögð á-
herzla á aðbúnað nemendanna hvað
húsnæði og allt eftirlit snertir, og
bóklegt og verklegt nám. Hjúkr-
unarkvennastarfið er áhættusamt
og gerir mörgum öðrum störfum
fremur kröfur til andlegs og lík-
amlegs þreks. Það er því eðlilegt,
að vandamenn ungra stúlkna hafi
beig af að senda þær til erfiðs og
áhættusams náms, ef öryggi og að-
búnaður er ekki í samræmi við
erfiðið og áhættuna. Ég hefi oft
orðið vör við að aðstandendum á-
hugasamra stúlkna hefir tekizt að
hindra nám þeirra af þessum á-
stæðum og er það illa farið. Hjúkr-
unarkvennastarfið þtrf að vera
ky> á þeim grundvelli, að til
þess veljist eingöngu konur. sem
hafa löngun og skilyrði til þess
að inna af hendi hið margþætta
menningar- og ábyrgðarstarf. sem
þeim er falið af þjóðfélaginu. Þessi
grundvöllur hefir verið of veikur
hingað til hjá okkur, en nú er ann-
aðhvort að styrkja hann eða láta
hann smám saman ganga úr sér.
Við veljum fyrri kostinn, hefjum
ákveðna baráttu til viðreisnar
hjúkrunarstarfinu og heitum á lið-
veizlu læknastéttarinnar.
Sigríður Eiríksdóttir
form. Fél. ísl. hjúkrunarkvenna