Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.1952, Blaðsíða 12

Læknablaðið - 01.04.1952, Blaðsíða 12
116 LÆKNABLAÐIÐ fiturík fæða sé sykursjúku fólki óholl. Joslin varar við mikilli fitu og telur ekki ráðlegt að sjúklingar yfir fimmtugt borði meira en 2 egg á viku. Bertram er þó enn ákveðnari í þessum efnum og telur, að sjúklingum sínum í Þýzkalandi hafi vegnað næsta vel á þeim tímum, er fita var af mjög skornum skammti. Root hefir einnig fært líkur fyrir því, að þrennt flýti fyrir æðaskemmdum í svkursjúku fólki: Of mikil líkamsfita (adipositas), of mikil fita í fæðunni og of mikil fita í blóð- inu (hypercholesterolæmia). Of margar hitaeiningar, hvaðan sem þær koma, virðast hafa í för með sér aukið cholesterin í líkamanum og gætir þess þó enn meir, ef mikillar fitu er neytt. Með því að minnka fituskammt- inn og fækka hitaeiningum, verða 2 flugur slegnar í einu höggi. Fullan skammt af góðri og gildri eggjahvítu má ekki skerða á neinn hátt. Ég tel að læknar hér á landi skammti stundum kolvetnin of smátt sykursjúku fólki. Joslin gefur að jafnaði 150—200 gr. á dag og sumir læknar eru enn örlátari. Joslin telur sannað, að sjúklingum vegni betur síðan skammturinn var aukinn, en ósannað mál að æskilegt sé að fara hærra en 200 gr. nema í einstaka tilfellum. Reynsla Þjóð- verja eftir styrjöldina, bendir einnig til þess, að rífleg kol- vetnagjöf sé æskileg. Hér hefi ég séð sjúklinga, sem fá um 100 gr. daglega og þaðan af minna. Það er misskilningur að halda, að ávallt þurfi öðru jöfnu að gefa meira insulin þó að kol- vetni séu nokkuð aukin. Fyrir nokkrum mánuðum kom til mín kona með sykursýki. Hún tók daglega ríflegan skammt af in- sulini, enda reyndist enginn sykur í sólarhringsþvagi, fast- andi blóðsykur eðlilegur og ekkert, sem með vissu benti á of mikla insulingjöf. Þegar farið var að athuga mataræði hennar, kom á daginn að hún neytti daglega aðeins 80—90 gr. af kolvetnum og var það að vísu nokkru minna en læknir hennar hafði til ætlazt. Konunni leið ekki vel, og jók ég kolvetnin næstu daga um 50—60 gr. og gaf henni B. og C vitamin að auki. Eftir nokkra daga fór að bera á hypoglycæmia og varð þá að draga úr insúlingjöfinni. Var það hægt án þess að veru- lega vottaði fyrir sykri i þvag- inu. Mjög fannst konunni heils- an batna við þessar aðgerðir og má vera að vitaminin hafi átt sinn þátt í því. Margir álíta nauðsynlegt að gefa um 125 gr. af kolvetnum til þess að hindra ketosis, en ekki fannst aceton í þvagi þessarar konu eina skipt- ið, sem að því var leitað. Talið er að um 60% sykur- sýkissjúklinga þarfnist insúlins. Láta mun nærri að helmingur

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.