Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.1952, Blaðsíða 36

Læknablaðið - 01.04.1952, Blaðsíða 36
140 LÆKNABLAÐIÐ í embættisferð til Húsavíkur hitt svo á, að héraðslæknir hef- ir verið fjarverandi. Mun það hafa verið í þriðju ferðinni, er sú fregn mætti mér á liafnar- bryggjunni, og er mér sérstak- lega minnisstætt fyrir það, að í stað þess að eiga þess kost að gera héraðslækni fyrirhugaða heimsókn, varð það hlutskipti mitt að gegna sjúkravitjun í forföllum hans. Hins vegar hefi ég jafnan litið svo á þessar kynningarferðir minar um landið, að það væri engan veg- inn héraðslæknar einir, sem ég gæti átt erindi við. Ekki vil ég ljúka þessari at- hugasemd án þess að þakka Birni Jósefssyni, að svo miklu leyti sem rétt er eftir lionum haft í umræddri aðalfundnr- gerð, hófsamleg ummæli lians um afstöðu mína sem land- læknis lil héraðslækna, er hann lætur sér nægja að kalla mig hrísvönd á stéttina. Vegna ó- tvíræðrar, en mér ekki ætíð að sama skapi geðfelldrar em- bættisskyldu liefi ég ósjaldan orðið að eiga þau viðskipti við héraðslækna sem aðra lækna, að sjálfum mér liefir fundizt viðeigandi að titla mig í því sambandi miklu grinnnúðugra heiti og nefna mig „kóngsins böðul“. En það er mér eftir at- vikum engan veginn óhagstæð- ur vitnisburður um sæmilega mildilega framkvæmd böðuls- starfanna, að ég skuli þrátt fyr- ir allt fremur minna á lnísið en hríshaldarann. 3. Gjaldskrármál. í ungdæmi minu var sú kenn- ing uppi á Austfjörðum -— ekki veit ég, hve traustum læknisfræðilegum rökum hún verður studd — að einn hinn mesti háski væri að færa sig í aukana til að lyfta miklum þunga, gerandi ráð fyrir, að ýtrustu orku þurfi við, og grípa svo í stað þungans í fis eitt. Kenningunni til staðfestingar var sú saga sögð um kraftajöt- un einn, að hann væri ráðinn til þess á verzlunarstað, er vor- skip var komið að landi, að lyfta brennivínstunnum mörg- um á háa stokka. Gekk liann vel fram, og undruðust menn og dáðu tilþrif hans. En svo vildi til, að ein tunnan -— mikið ilát — var óvart tóm, og er beeserkurinn þrífur til hennar og ætlar nú ekki að leifa af kröftunum, fellur hann yfir sig aftur — og er þegar dauður. Umræður um gjaldskrármál lækna á síðasta aðalfundi Læknafélags íslands (sbr. áð- ur ívitnaða aðalfundargerð) minna óneitanlega á undirbún- ing kraftamanna undir mikil átök. Ræðir hér um „mikið starf“, jafnvel „örþrifaráð" og „ýtrustu nejrð“, ennfremur „verkfall" og loks það, „að t. d. héraðslæknar myndu jafnvel ganga svo langt að segja af sér

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.