Bændablaðið - 18.07.2013, Blaðsíða 15
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. júlí 2013 15
GLER OG SPEGLAR S EG PA OG
E A GR ARGLER
SA L S GLER GLER
S L RE SA GLER
SPEGLAR O L O L
SE
ALL LA
SÍ A 196
9
ALLT
Í GLER
ALLT A
80%
A GEG L
TA OG G LEGRA
L SGE SLA
OTT RA LE SLA
S L AR ARGLER
A R S L EGG R
Dalvegur 6-8
201 Kópavogur
Sími 535 3500
www.kraftvelar.is
kraftvelar@kraftvelar.is
Heyvinnuvélar
Vélar í hæsta gæðaflokki á lágmarks verði
Líklega ód
ýrustu
heyvinnuv
élar landsi
ns
Samsetnin
g og heim
keyrsla ka
upendum
að kostnað
arlausu!
Diskasláttur vélar Múgavélar
Heyþyrlur
Forstöðumaður
Leiðbeiningastöðvar
heimilanna
Kvenfélagasamband Íslands auglýsir eftir forstöðumanni Leiðbeiningastöðvar
heimilanna í 60% starfshlutfall.
Hæfniskröfur:
Menntun, þekking, reynsla og áhugi á heimilisstörfum, s.s. matargerð,
þrifum, skipulagi, verklagi og öðru er lýtur að heimilishaldi.
Góð tölvu-, vefsíðu- og myndvinnsluþekking. Góð íslenskukunnátta og
hæfni til greinaskrifa um efnið.
Góð samskiptahæfni og að geta komið fram fyrir hönd
Leiðbeiningastöðvarinnar.
Málakunnátta:
Enska, danska eða annað Norðurlandamál. Önnur tungumál eru
kostur.
Umsóknarfrestur er til og með 2. ágúst 2013.
Umsóknir ásamt ferilskrá og mynd eiga að berast með netpósti til Unu
Maríu Óskarsdóttur forseta KÍ unamaria@kvenfelag.is
/ Guðrúnar Þórðardóttur varaforseta KÍ gudrun@ijonsson.is
Hafið samband: E.G. Heild ehf. c/o Elías Gíslason
Stórhöfða 17, 110 Reykjavík. Símar: 8616264, 5877685
netfang: eg.heild@simnet.is Heild ehf
Æðardúnsbændur
Óska eftir að kaupa fullhreinsaðan æðardún
Getum bent á og mælt með hreinsunaraðilum
Nú eru góð verð í boði
r únsbændur
s ftir f ll r i saðan æðardún
tekið að mér hreinsun
er i
Landbúnaðarráðherra Ítalíu,
Nunzia De Girolamo, umhverfis-
ráðherrann Andrea Orlando og
heilbrigðisráðherrann Beatrice
Lorenzin hafa undirritað
tilskipun um að banna ræktun á
erfðabreyttum maís MON810 í
landinu.
Greint er frá þessu í ítalska
blaðinu La Repubblica og rætt við
landbúnaðarráðherrann, sem segir
m.a.:
„Landbúnaður okkar er byggður
á líffræðilegri fjölbreytni og gæðum
og við verðum að viðhalda því.
Tilskipunin í dag er einungis fyrsta
skrefið og það mest aðkallandi í
því að hafa frumkvæði að nýrri
stefnumörkun varðandi ræktun á
erfðabreyttum jurtum í landi okkar.“
Samkvæmt upplýsingum
blaðsins eru átta af hverjum tíu
Ítölum á móti ræktun erfðabreyttra
matjurta í landinu. Bannið
er einnig stutt af Coldiretti,
ítölsku bændasamtökunum, og
Confederazione italiana agricoltori,
sem er bandalag ítalskra bænda.
Samkvæmt orðum Giuseppe Politi,
formanns þess bandalags, mun
ræktun án þess að nota erfðabreyttar
tegundir á Ítalíu og annars staðar í
Evrópu skapa ávinning fyrir náttúruna
og fyrir heilsu fólks auk þess sem
það mun mögulega stuðla að auknum
tekjum bænda í framtíðinni.
Ímynd og hreinleiki
Bannið við notkun á erfðabreytta
kornafbrigðinu MON810 er ekki af
ástæðulausu. Fyrir utan ímyndarmál
varðandi hreinleika í framleiðslu
landbúnaðarvara er mikill ótti
við að fjölþjóðafyrirtæki nái
yfirhöndinni í landbúnaði með sölu á
einkaleyfisvörðum kornafbrigðum til
bænda. Dæmi eru um að fjölþjóðleg
fyrirtæki eins og Monsanto hafi náð
að gera bændur háða sér um sáðkorn
og fréttir hafa verið af fjölmörgum
dómsmálum sem hafa verið í gangi
af hálfu fyrirtækisins gegn bændum á
liðnum árum víða um heim. Þar hefur
jafnvel verið um að ræða málsókn
Monsanto vegna uppskeru sem
inniheldur einkaleyfisvarin afbrigði
sem borist hafa inn á akra bænda
með vindi frá nágrönnum sem nota
slíkt korn.
Umdeilt inngrip í náttúruna
Umrætt kornafbrigði, MON810, er
hannað af Monsanto til að verjast
ágangi skordýra. Samkvæmt
Wikipedia framleiðir það prótein
sem drepa skordýr sem reyna að éta
kornið. Þessi eiginleiki er fenginn
með því að genabreyta korninu með
geni úr „Bacillus thuringiensis“
jarðvegsbakteríunni (Bt) þannig
að kornið framleiði eiturefni sem
drepur skordýr. Þetta efni er víða til
í náttúrunni, m.a. í þörmum evrópska
kornormsins, „European corn borer“,
og ýmsum tegundum fiðrilda. Einnig
finnst það á yfirborði laufblaða í röku
umhverfi, dýrasaur og þar sem mikið
er um skordýr. Eiturefnið finnst líka
í hveitimyllum og korngeymslum.
Í kjölfar dómsmáls er varðaði
heilsu almennings var opnað fyrir
innihaldsupplýsingar á MON810
kornafbrigðinu. Við tilraunir franska
sameindalíffræðingsins Gilles-
Eric Séralini á korninu á árunum
2007-2009 fann hann út að kornið
framkallaði skemmdir á nýrum,
lifur og hjarta í rottum. Evrópsk
fæðuöryggis yfirvöld, European
Food Safety Authority (EFSA),
endurskoðuðu þessar tilraunir Séralini
og komust að þeirri niðurstöðu að
frávikin væru innan eðlilegra marka
í rottum. Gaf EFSA í kjölfarið út það
álit að meðferð Gilles-Eric Seralini
á tölfræðigögnum væri óviðeigandi.
Ítalir banna ræktun á
erfðabreyttum maís