Bændablaðið - 18.07.2013, Blaðsíða 16

Bændablaðið - 18.07.2013, Blaðsíða 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 18. júlí 2013 Minkabúið Mön í Skeiða- og Gnúpverjahreppi í stöðugri sókn: Minkaræktin á Íslandi er farin að skapa umtalsverðar gjaldeyristekjur – eigendurnir telja að góð samvinna íslenskra minkabænda sé lykillinn að velgengni þeirra undanfarin ár Hjónin Katrín Sigurðardóttir og Stefán Guðmundsson, sem bæði eru tónlistarmenntuð, reka nú loðdýrabúið Mön í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Þar er nú stærsta minkabú landsins. Í búinu eru fimm þúsund læður, en það er skammt frá gamla Ásaskólanum. Þar gekk Stefán í skóla sem ungur strákur, en hann er fæddur og uppalinn á Ásum í brekkunni ofan við skólann. Katrín er aftur á móti Húsvíkingur, en þau hjón keyptu skólahúsið árið 1992. Hafa þau nú breytt því í glæsilegt einbýlishús. Á neðri hæðinni er Katrín með lítið verslunarhorn þar sem hún er með ýmsa muni sem hún býr til úr minkaskinni til sölu. Stefán segir að auk Manarbúsins við Ásaskóla séu hvolpar hafðir í sumaruppeldi á öðrum stað í um 6 kílómetra fjarlægð, þar sem þeir eru aldir fram í nóvember. Hann segir að þumalputtareglan sé sú að hver læða gefi af sér fimm hvolpa á ári, þannig að búið í Mön geti verið að gefa af sér um 25 þúsund skinn á ári. Bjóða fólki heim Katrín og Stefán hafa tekið þátt í því framtaki bænda í ólíkum greinum að bjóða fólki heim á bú sín. Telja þau þetta átak mikils virði og góða leið til að upplýsa og fræða fólk um hinar ýmsu greinar landbúnaðarins. Segir Stefán það skipta máli fyrir allar greinar landbúnaðar og vera góð leið til að auka þekkingu almennings, draga úr fordómum og gera alla umræðu upplýstari. Þegar tíðindamaður Bænda- blaðsins kom þar í heimsókn voru þau að taka á móti gestum sem voru á fjölskyldumóti þar í nágrenninu. Leiddu Stefán og Katrín gesti um húsakynni minkabúsins. Þar sýndi Stefán dýrin, upplýsti um meðhöndlun þeirra og gaf krökkum í hópnum kost á að klappa ungum hvolpum. Katrín fór í gegnum skinnavinnsluna, allt frá förgun þar til skinnin eru tilbúin til útflutnings. Þar þurfa öll vinnubrögð að vera eins og best verður á kosið til að ná sem mestum verðmætum út úr vinnslunni. Ekki var annað að sjá en gestir væru hæstánægðir með sýninguna og fyrirlestra þeirra Katrínar og Stefáns, enda mjög fagmannlega að öllu staðið. Að þessari kynningu lokinni var haldið heim á Ásaskóla, þar sem gestum gafst kostur á að skoða og kaupa muni sem Katrín hefur búið til úr minkaskinni, roði, leðri og fleiru. Hún segir að minkaskinn og roð eigi mjög vel saman, einnig perlur og náttúrusteinar. Í raun gefur minkaskinnið hverju sem er glæsileika og stíl. Á boðstólum eru hálsmen, armbönd, hringar, eyrnalokkar og jafnvel vasapelar skreyttir með skinni og roði. Katrín segist hafa farið út í þetta ekki síst til að kynna skinnin betur auk áhuga á handavinnu. Hún segist ekki vita til að minkaskinn séu notuð á þennan hátt hér á landi og hér sé því um nýjung að ræða. Eftir að gestirnir fóru eftir fróðlega og skemmtilega heimsókn barst talið að minkaræktinni í heild. Skapa um tvo milljarða í gjaldeyristekjur Loðdýrarækt hefur verið stunduð í heiminum frá því fyrir 1800. Segir Stefán að um þessar mundir séu 28 minkabú starfandi á Íslandi og hafi heldur farið fjölgandi. Minkalæður í landinu teljast nú vera um 43.000 og hafa aldrei verið fleiri. Er meðalbúið því með um 1.500 læður. Fjöldi framleiddra skinna á þessu ári verður um 180.000, sem er samt aðeins lítið brot af heimsframleiðslunni, sem er um 60 milljónir skinna. Áætlað söluverðmæti íslensku skinnanna í ár, miðað við markaðsverð að undanförnu, er um tveir milljarðar króna. Auk þess fá Íslendingar gjaldeyristekjur af sölu á um 30 þúsund tonnum af fiskúrgangi sem notað er í minkafóður í Danmörku. Með því að auka minkaframleiðsluna hér á landi telja minkabændur að hægt væri að nýta hluta af þessum fóðurútflutningi til að ná umtalsvert meiri virðisauka fyrir þjóðina af sölu á íslenskum fiskúrgangi. Umhverfisvænn búskapur Stefán segir að um umhverfisvænan búskap sé að ræða, þar sem náttúrulegar afurðir eru framleiddar með ómenguðu íslensku hráefni í formi úrgangs frá kjöt- og fiskvinnslum. Skít frá minkabúum þykir einnig gott að bera á tún, enda er hann fosfórríkur. Engin mengandi efni eru notuð við skinnavinnsluna, ólíkt því sem margir halda, en eina varan sem notuð er til hreinsunar á skinnunum er beykisag. Þá er farið að framleiða græðandi smyrsl hérlendis úr minkafitu sem fellur til við skinnavinnsluna. Stefán segist fullviss um að hægt sé að ná enn meiri sjálfbærni í greininni með fullvinnslu á öllu sem til fellur, þar á meðal skrokkum dýranna. Lykilatriðið er góð samvinna „Það er mjög gott félagslega fyrir greinina að búunum fjölgi. Fyrir tveim árum rúmuðust félagsmenn í minkaræktinni hér á Suðurlandi í einum jeppa en þegar við fórum í skemmtiferð núna á dögunum þurftum við rútu enda búin orðin tíu talsins, bæði stór og lítil.“ Flest minkabúin á Suðurlandi eru með sameiginlega fóðurstöð á Selfossi en eitt búið sér sjálft um sína fóðurgerð. Þá skiptast menn á lífdýrum og segir Stefán það mjög mikilvægt að minkabændur geti haft stuðning hver af öðrum. Í þessum geira sé spakmælið „eins dauði er annars brauð“ hreint öfugmæli. „Ef við vinnum saman náum við miklu meiri árangri en hver fyrir sig. Það er einmitt galdurinn á bak við stöðu þessarar greinar í Skandinavíu í samanburði við önnur lönd. Danir reka t.d. alla sína minkarækt á samvinnugrundvelli og einnig uppboðshúsið sem er í Kaupmannahöfn. Slíka samvinnu stundum við líka hér á landi.“ Markmiðið að ná Dönum í gæðum Eins og greint var frá í síðasta Bændablaði var heimsmet sett í verði á minkaskinnum á síðasta Hjónin Stefán Guðmundsson og Katrín Sigurðardóttir, með tónlistarmenntun sína að baki, létu ekki sleggjudóma um minkarækt og efasemdaraddir hindra sig í að skella sér út í þessa grein landbúnaðar haustið 1996. Samt segjast þau í raun ekkert hafa vitað hvað þau voru að fara út í. Nú reka þau stærsta Myndir / HKr. Eigendur Manarbúsins hafa verið duglegir við að taka á móti gestum og á minkaskinnunum.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.