Bændablaðið - 18.07.2013, Blaðsíða 27
27Bændablaðið | Fimmtudagur 18. júlí 2013
sem þeirri ræktun sem verið hefur í
söluhúsinu verður komið fyrir. Það
hús verður þá eingöngu nýtt undir
sölustarfsemi og verður fyrir vikið
mun rýmra um viðskiptavini. „Við
erum ánægð með sölusvæðið okkar
og reynum að hafa það aðgengilegt
og fallegt, fólk kann greinilega vel
að meta það að geta skoðað sig þar
um,“ segir Katrín. Söluhúsið er líka
notað fyrir jólatrjáasölu Sólskóga í
desember, en á þeim tíma er margt
um manninn í Kjarnaskógi enda
hefð hjá mörgum bæjarbúum að
bregða sér í skóginn og kaupa tré
fyrir jólin. „Við ætluðum ekki að
vera með jólatrjáasölu, en það var
svo greinilegt að fólk vildi fyrir
alla muni koma hingað í þessum
erindagjörðum að við létum undan
þrýstingi og þetta hefur verið mjög
skemmtilegur tími.“
Stjörnuklukkur,
milljónbjöllublóm og sólboði
rjúka út
Líflegt hefur verið hjá Sólskógum
það sem af er sumri, en Katrín segir
að plöntusala hafi farið heldur seinna
af stað í vor en vant er. Fremur kalt
var framan af vori þannig að það
var ekki fyrr en góðviðrisdagar
júnímánaðar runnu upp að fólk
fór að streyma í Kjarnaskóg í
plöntukaupahugleiðingum. „Það
hefur verið mjög mikið að gera
alla daga, margir á ferli í fínu
sumarskapi og mikil stemmning í
mannskapnum,“ segir hún.
Hún segir að nú á fyrstu
dögum sumars hafi mikið selst af
stjörnuklukkum, blómum sem eitt
sinn voru kölluð Betlehemstjarna,
en þau eru blá og mjög blómsæl.
„Við höfum líka tekið eftir
því að fólk kaupir mikið af
milljónbjöllublómum nú í sumar,
þau eru vinsæl.“ Tóbakshorn er
alltaf vinsælt blóm og þá nefnir
Katrín líka sólboða, en sú tegund
er um það bil að klárast hjá
Sólskógum. „Það hefur farið óvenju
mikið af sólboða út frá okkur núna
þessa síðustu daga, þannig að hann
er mjög vinsæll í ár,“ segir hún.
Katrín segir allan gang á því
hvaða tegundir njóta vinsælda hvert
ár, ekki sé á vísan að róa í þeim
efnum. „Eitt árið flýgur ein tegund
út, annað árið er það svo eitthvað
allt annað, maður veit í raun
aldrei hvaða sumarblóm stekkur
upp vinsældalistann hvert ár. Oft
heyrir fólk af fallegum blómum hjá
nágrönnum eða vinnufélögum og
vill prófa líka og svo vindur þetta
upp á sig,“ segir Katrín. /MÞÞ
Gengið frá sendingu á trjáplöntum. Leið þessara plantna lá í Húnavatnssýslur.Eigendur Sólskóga, Katrín Ásgrímsdóttir og Gísli Guðmundsson. Bæði eru
menntaðir garðyrkjufræðingar og reka fyrirtæki sitt í Kjarnaskógi á Akureyri
og á Fljótdalshéraði.
Hægt er að bjóða ýmsar útgáfur af uppgjörum við veiðréttarhafa.
Ha r ú veiði e sem ú vi t ma á framfæri e i ega hafðu samba
eða
GRÓÐURHÚS
KYNNINGARTILBOÐ á stáli og polycarbonat plasti.
Íslensk hönnun. Heitgalvaniserað járn.
Breidd 2,7m.
Mænishæð 2,3m.
Lengd eftir ósk hvers og eins, hleypur á 1,5m.
Húsið er ósamsett. Ekki innifalið timbur og skrúfur sem kostar um
50.000,- til 70.000,- eftir stærð húss, sjá ítarlegan lista á heimasíðu
okkar, www.hysi.is, ásamt nánari úrskýringarmyndum af
uppsetningu.
Verð = 199.000,- með vsk. Lengd 3m
Verð = 259.000,- með vsk. Lengd 4,5m
Verð = 319.000,- með vsk. Lengd 6m