Bændablaðið - 18.07.2013, Blaðsíða 25
25Bændablaðið | Fimmtudagur 18. júlí 2013i | i . j í
Það er enginn
barlómur í okkur
– segir Guðmundur Steinar Björgmundsson á Kirkjubóli II í Valþjófsdal
Bændadagur Búnaðarsambands
Vestfjarða var á Þingeyri 6. júlí
samhliða Dýrafjarðardögum.
Þrátt fyrir að sumarhitastigið
þennan dag hafi ekki verið ýkja
hátt lá stöðugur straumur fólks
í gamla kaupfélagið þar sem
bændur kynntu þær vörur sem
þeir framleiða.
Guðmundur Steinar Björg-
mundsson á Kirkjubóli II í
Valþjófsdal segir að þetta sé í annað
sinn sem slíkur dagur sé haldinn en
sá fyrsti hafi verið á Reykhóladögum
í fyrra.
„Það er stefnan hjá Búnaðar-
sambandinu að koma þessum
viðburði inn á bæjarhátíðirnar
á Vestfjörðum og við völdum
Dýrafjarðardagana núna. Það eru
búnaðarfélögin á hverjum stað sem
hafa veg og vanda af því sem boðið er
upp á hverju sinni. Ég sé ekki annað
en þetta sé að heppnast vel og allir
séu ánægðir,“ sagði Guðmundur.
En hvernig er hljóðið í vestfirskum
bændum um þessar mundir?
„Ég held að það sé bara gott. Það
er enginn barlómur í okkur yfirleitt.
Maður hefði þó gjarnan viljað fara að
sjá dálítið sumar. Manni finnst frekar
haustlegt en það er góð spretta, sem
er öðruvísi en undanfarin ár þegar
þurrkar voru svolítið að hrekkja
okkur. Nú er mokgras og öll tún
falleg og góð.“
Guðmundur Steinar segir að
engin vandræði hafi verið út af
kali, allavega á fjörðunum vestan
við Djúp. Eitthvað hafi menn þó
orðið varir við kal á bæjum við
Ísafjarðardjúp og á ströndum.
Guðmundur er eingöngu með
sauðfé í dag og um 500 fjár. Segir
hann frjósemi hafa verið ágæta eins
og víðast hvar á sauðfjárbúum.
/HKr.
Björn Birkisson og Helga Guðný
Kristjánsdóttir, bændur í Botni
í Súgandafirði, voru fulltrúar
mjólkurbænda á Bændadegi sem
haldinn var á Þingeyri í fyrri viku.
Sagði Helga að á þessu svæði væru
níu innleggjendur á átta bæjum.
„Við framleiðum drjúgt og ef ein-
hver hættir þá reynum við að kaupa
upp þann kvóta ásamt kúm og heyi
til að halda þessu í héraði. Okkur
hefur því tekist að halda öllum kvót-
anum og hann hefur heldur aukist
en hitt.“
Sem kunnugt er var Mjólkurstöð
Mjólkursamlags Ísfirðinga lokað
vorið 2011. Síðan hefur allri mjólk
bænda verið ekið til Búðardals til
vinnslu. Segir Helga að talað hafi
verið um að 700 þúsund lítra eða
meira þyrfti til að halda vinnslu
samlagsins gangandi. Björn segir
að núna sé verið að framleiða á öllu
svæðinu um 1,5 milljónir lítra á ári
og öllu ekið í Búðardal.
„Áður en við fórum út í að byggja
nýja fjósið hjá okkur var gerð áætlun
um við hvaða mörk væri gerlegt að
reka samlagið á Ísafirði. Þeir sögðu
að það borgaði sig að reka stöðina
ef það kæmu inn 700 þúsund lítrar
eða meira. Þá fórum við út í að
byggja fjósið. Það var því hart að
fá ekki almennilegar skýringar á því
af hverju það borgaði sig ekki að
reka samlagið og því var lokað þegar
framleiðslan á svæðinu var komin í
eina og hálfa milljón lítra.“
Horfur eru á að breytingar séu
á næsta leiti í mjólkurvinnslu á
Vestfjörðum eins og greint er frá á
bls. 2. Hálfdán Óskarsson, sem áður
stýrði Mjólkursamlagi Ísfirðinga,
er nú á lokastigi með að setja upp
mjólkurvinnslu í Bolungarvík. Hefur
hann náð samkomulagi um að kaupa
af MS mjólk bænda á norðanverðum
Vestfjörðum til vinnslu. Björn segir
því góðan hug í mjólkurbændum
vestra.
„Ég held að það sé ekki fararsnið
á neinum,“ sagði Helga. Björn
tók undir það og sagðist halda að
það hætti allavega enginn þeirra
sjálfviljugur.
/HKr. Mynd / HKr.
Góður hugur í mjólkurbændum á norðanverðum Vestfjörðum:
„Ég held að það sé ekki fararsnið á neinum“
– segir Helga Guðný Kristjánsdóttir bóndi í Botni í Súgandafirði