Læknablaðið - 01.03.1962, Side 60
20
LÆKNABLAÐIÐ
kólesteról hækkar lílið með
þyngd, nema menn liafi jafn-
framt háan blóðþrýsting; og
aðrir hafa fundið, að hár hlóð-
þrýstingur stuðlar að athero-
sclerosis. En athugun Lewis
sýnir, að blóðkólesteról hækkar
dálítið með aldri.
Samkvæmt annarri rannsókn
hafði hópur Ivínverja, sem fengu
aðeins 10% fitu í daglegu fæði,
hærra blóðkólesteról en nokkr-
ir Bandaríkjamenn, sem rann-
sakaðir voru til samanburðar og
fengu um 43% fitu, eins og al-
mennt mun vera í Bandaríkj-
unum.
Af þessum dæmum má ráða,
að rannsóknum her ekki sem
bezt saman. Sumpart getur þetta
stafað af þvi, að mælingar kóles-
teróls og annarra fituefna í
hlóði séu ekki nógu nákvæmar,
enda er kunnugt, að kólesteról-
magn mælist misjafnlega mik-
ið eftir því, hvaða aðferð er not-
uð, og jafnvel eftir því, hver
framkvæmir mælinguna. Sum-
part getur misræmið átt rót sína
að rekja til þess, að ekki er tek-
ið tillit til þess, á hvers konar
fitu fólkið, sem rannsakað er,
nærist, hvort heldur á fitu með
mettuðum eða ómettuðum fitu-
sýrum.
Þess má að lokum geta, að
tilraun í tilraunaglasi hefur
sýnt, að í vef úr meginæð, sem
látinn er liggja í upplausn, er
inniheldur kólesteról, verður
útfelling fituefna í frumur æð-
arinnar vaxandi eftir kólester-
ólmagni upplausnarinnar. Sé
upplausnin þynnt, leysast þessi
fituefni aftur út úr frumunum.
Breytingar í millifrumuefni
í atherosclerosis.
Noble og samverkamenn iians
telja sig hafa fundið, að áður
en fituútfelling hyrjar i athero-
sclerosis, liafi orðið aukning á
collagen-handxef i æðaveggn-
um, svo og á scleropproteinum.
Og Schwartz hefur lýst undan-
fara atherosclerosis sem útfell-
ingu sérstakra fjölsykrunga
(mucopolysaccharid) undir
innsta hjúp (intima) og vitn-
ar þar til Taylors, sem hefur
lýst þessum breytingum (1953).
í millifrumuefninu eru muco-
polysaccharíð (þar á meðal eru
hyaluronsýra og hexosamin),
mucoprotein (m. a. chondroitin-
hrennisteinssýra) og glycopro-
tein. Þessi efni geta losnað sund-
ur (depolymeriserazt), og við
það aukast amino-sykurtegund-
ir í blóði.
Schwartz rannsakaði þrjá
flokka manna, allt karla:
1. 24 heilbrigða menn 19 til
35 ára.
2. 23 menn með atheroscleros-
is á aldrinum 40 til 72 ára.
3. 16 menn 37 til 71 árs án ein-
kenna um atherosclerosis.
Mæld voru mueoprotein og
liexosamin í hlóði allra, og
revndist magnið svipað í 1. og
3. flokki, í 3. flokki þó eilítið