Læknablaðið - 01.03.1962, Qupperneq 66
32
LÆKNABLAÐIÐ
meðstjórn liéldu 11 fundi, þar
sem rædd voru 42 félags- og
hagsmunamál.
Skrifstofa félagsins var starf-
rækt í samvinnu við Verkfræð-
ingafélag íslands að Brautar-
liolti 20, eins og að undanförnu.
Annaðist skrifstofan hréfa-
skriftir og vélritun fyrir stjórn
og meðstjórn, boðaði fundi,
samdi vaktlista og aflaði ým-
issa nauðsynlegra upplýsinga.
Fyrirliugað er, að skrifstofan
taki að sér rekstur Læknahlaðs-
ins á þessu ári.
Hinn nýi taxti félagsins, sem
saminn var í nóvember 1958 og
samþykktur á s.l, aðalfundi,
hefur verið reiknaður úl eftir
hinum nýja vísitölugrundvelli
frá febrúar 1959 og er nú í
prentun.
Lögfræðilegur ráðunautur i
sambandi við samningagerðir
var Eyjólfur Konráð Jónsson.
Sat liann samningafundi með
samninganefnd og launanefnd.
Sveinhirni Þorbjörnssyni end-
urskoðanda hefur verið falið að
reikna út þá hækkun, sem verð-
ur á lækningastarfsemi vegna
nýjustu efnahagsráðstafana.
Störf nefnda:
Samninganefnd skipuðu Egg-
erl Steinþórsson, Gunnlaugur
Snædal og Jónas Bjarnason.
Annaðist nefnd þessi samninga
við Tryggingastofnun ríkisins
og Sjúkrasamlag Kópavogs.
Voru þeir í grundvallaratriðum
sniðnir eftir þeim samningum,
sem gerðir voru við S.B. í janú-
ar 1959. Samningum hefur ver-
ið sagt upp frá 1 apríl 19(50.
Launanefnd skipuðu Snorri
P. Snorrason, Bjarni Konráðs-
son og Richard Tliors. Nefndin
samdi um kjör 8 dósenta og 5
lektora við læknadeildina. Laun
dósenta voru ákveðin 35 þús. á
ári, en lektora 20 þús. á ári.
Stöðurnar voru nýjar, en lækn-
ar höfðu innt af höndum störf
þessi mismunandi langt árahil.
Hæstu ársgreiðslur voru áður
14 ])ús. kr. Þá fjallaði nefndin
um kjör kandídata, og náðist
hráðabirgðasamkomulag í maí,
sem gilti til 15. október, en þá
náðist samkomulag um, að
kandídatar yrðu opinberir
starfsmenn og tækju laun skv.
8. launaflokki, ynnu 36 stunda
vinnuviku og fengju eftirvinnu
greidda eftir taxta 8. flokks.
Eftirvinna skyldi metin af gerð-
ardómi, en sá úrskurður er enn
ókominn.
Vottorðanefnd skipuðu Ólaf-
ur Tryggvason, Óli Hjaltested
og Hjalti Þórarinsson. Nefndin
verðlagði vottorð tryggingafé-
laga, sem gefin verða út á nýj-
um eyðublöðum, sem trygg-
ingafélögin munu taka í notk-
un.
Skattamálanefnd skipuðu
Hannes Þórarinsson, Eggert
Steinþórsson og Ófeigur J.
Ofeigsson. Hlutverk nefndarinn-
ar var að vinna að því, að