Læknablaðið - 01.03.1964, Blaðsíða 33
LÆKNABLAÐIÐ
9
Bandalag háskólamanna vinnur
að öflun samningsréttar.
Frá heimsókn B. Östergrens, framkvæmdastjóra SACO.
Á ahnennum fundi háskóla-
manna, sem haldinn var á veg-
um BHM í Háskóla íslands
hinn 6. nóv. 1963 flutti fram-
kvæmdastjóri upplýsinga-
deildar SACO (Sveriges Aka-
demikers Centralorganisa-
tion), Bertil Östergren, erindi
það, sem hér fer á eftir að
meginmáli, um samtök
sænskra háskólamanna. For-
maður BHM, Sveinn Björns-
son verkfræðingur, kynnti Öst-
ergren og bauð hann velkom-
inn og fór jafnframt nokkrum
orðum um störf og hlutverk
bandalagsins, einkum með lil-
liti til baráttunnar fyrir öflun
samningsréttar. Fórust honum
m. a. orð á þessa leið:
„Til skamms tíma hafa is-
lenzkir háskólamenn almennt
látið sér skipulagsmál siu í
léttu rúmi liggja. Þrátt fvr-
ir harða sérhagsmunapólitík,
sem rekin hefur verið af hvers
konar atvinnusamtökum, slélt-
arfélögum og launþegasam-
tökum, hafa háskólamenn lítið
fengizl við að sinna eigin hags-
munum, enda hafa þeir vart
haft aðstöðu til að leggja orð
í helg, þegar þeir hafa ver-
ið sniðgengnir í kaup- og
kjaramálum. Það er fyrst
með stofnun Stétlarfélags
vei'kfræðinga, að einhver
hreyfing kemst á þessi mál fyr-
ir um 10 árum. Að sjálfsögðu
hefur eitt og annað gerzt sið-
an, en hvergi nærri svo, að við-
unandi megi teljast.
Við, sem höfum valizt af
hálfu þeirra akademisku fé-
laga, sem standa að BHM, til
að vinna á félagslegum grund-
velli að menningar- og hags-
munalegum verkefnum, sem
sameiginleg eru íslenzkum há-
skólamönnum, höfum sann-
færzt um það því betur sem
lengra befur liðið á fimm ára
aldursskeið bandalagsins, að
birði háskólamenn ekki um að
gæta hagsmuna sinna, muni
ekki aðrir verða til þess, og
sömuleiðis, að beri háskóla-
menn ekki gæfu til að standa
saman um velferðarmál sin,
muni þeir ávallt eiga á hættu
að verða fórnardýr árekstra og
aðgerða misviturra leiðtoga á
sviði stétta- og stjórnmálabar-
áttunnar.
Svo að við snúum okkur að
nútíðinni, þá mun það vera