Læknablaðið - 01.03.1964, Blaðsíða 47
LÆKNABLAÐIÐ
21
öðrum tilfellum, þar sem loft-
blöðrur (pneumatocele) eru
taldar einkennandi fyrir klasa-
kokka-lungnabólgu. Hefur
talsvert verið skrifað um það
fyrirbrigði á síðastliðnum 20
árum.
Á röntgenmyndum líta loft-
blöðrurnar (pneumatocele) út
sem þunnveggjuð holrúm, án
lungnateikningar, stundum
með vökvaborði i. Þau gela
verið eitt eða fleiri, koma og
hverfa á nokkrum dögum, eða
að þau sjást í nokkra mánuði,
eftir að sjúklingurinn er klín-
iskt orðinn frískur. Loftblöðr-
urnar eru taldar myndast við
samruna nokkurra lungna-
blaðra (alveola), þegar klasa-
kokkarnir eyða veggnum milli
þeirra. Liggi lungnaberkjur að
þessum holrúmum, sem lileypa
lofti í gegn, þegar sjúklingur-
inn andar að sér, en leggjast
saman, þegar hann andar frá
sér, geta þessi liolrúm þanizt
út, orðið stór um sig og springa
stundum út í brjóstholið.
Meðferð.
Sé grunur um klasakokka-
lungnabólgu bjá barni á fvrsta
ári, er þegar bvrjað á mjög
kröftugri fúkalyfjameðferð og
hafi menn ekki lyfjanæmi svk-
ilsins við höndina, sem sjaldn-
ast er, er gefið eittlivað af
tetracyclin-lyfjunum, clilor-
amphenicol, erythromycin eða
methicillin (celbenin). Sé um
gröft eða gröft og loft að ræða,
er byrjað á einhverju af nefnd-
um lyfjum og skipt um, ef
þörf gerist, þegar ræktun og
næmispróf liggur fyrir. Sé
barnið orðið aðþrengt vegna
vökva- eða loftmvndunar í
brjóstholi, þarf skjótra að-
gerða við. Tæma þarf út gröft
og loft með endurteknum á-
stungum eða það, sem er enn
betra og raunar sjálfsagt, ef um
fistil frá berkju út í brjósthoi
(fistula bronchopleuralis) og
yfirþrýsting í brjóstholi er að
ræða, að leggja kera inn í
brjóstholið, sem síðan cr sett-
ur í samband við sog, þannig
að tæmist út úr brjóstholinu
jafnóðum og safnast í það.
Þessi börn þurfa ákaflega
nákvæmrar hjúkrunar og eft-
irlits við, því að fylgjast þarf
vel með öndun þeirra, hjart-
slætti og litarhætti, og skola
kerann oft og vel. Þeim er gef-
ið súrefni og róandi lvf eftir
þörfum. Röntgenmyndir eru
teknar daglega eða oftar (eftir
ástæðum). Oft eiga þau erfitt
með að drekka vegna öndun-
arerfiðleika, og er þeim þá
gefið í æð.
Frá því að barnadeild Land-
spítalans tók til starfa 19. júní
1957, hafa sex börn legið þar
með graftar- og loftbrjóst. Af
þessum sex börnum voru þrjú
innan sex mánaða aldurs, hið
yngsta þriggja vikna, eitt 12
mánaða barn, eitt 17 mánaða,