Læknablaðið - 01.03.1964, Blaðsíða 77
LÆKNABLAÐIÐ
47
um siðareglur þeirra, revna
að tryggja sem bezta menntun
lækna, bæði grunnmenntun og
framhaldsmenntun, vernda
sjálfstæði lækna í starfi og
hindra, að stjórnmálamenn og
skrifstofumennska hins opin-
hera seilist um of inn á liin
faglegu svið læknisfræðinnar.
Var óskað eftir hugmyndum
um eflingu alþjóðasamstarfs
lækna innan véhanda World
Medical Association, og má
teija víst, að frá framkvæmda-
nefndinni (The Couneil) komi
nýjar hugmyndir á því sviði
fyrir næsta ársþing. í því sam-
handi stakk ég upp á því við
nefndina, að samtökin beittu
sér fyrir því, að öll aðildarfé-
lögin kæmu á tímaritaskiptum
með þeim hætti, að hvert að-
ildarfélag sendi eitt eintak af
aðaltímariti sínu lil hinna 58
félaganna og fcngi þá í staðinn
58 mismunandi tímarit. Að
vísu dregur það nokkuð úr
gildi þessara tímaritaskipta, að
tímaritin eru rituð á mörgum
málum, en síðar mætti koma
á þeirri venju, að allar aðal-
greinarnar hefðu útdrátt á
ensku, frönsku eða spænsku,
og mundu þær þá koma öllum
að nokkru gagni.
Það kom fram í ræðu hrezka
fulltrúans, að smáþjóðir hafa
meira gagn af samtökum þess-
um en stórþjóðir. Sagði hann
heinlínis, að það væru aðeins
fáir aðilar, sem hæru mestall-
an kostnaðinn, en ýmsir af
hinum smærri, sem lítið horg-
uðu, hefðu tiltölulega meiri
hagnað af samtökunum.
Þessi ummæli má skoða sem
sérstaka hvatningu til lækna-
félaga smáþjóða um það að
taka þátt í starfi WMA, en
mörg fleiri atriði koma þar til
greina, og má einkum nefna:
a) læknisfræðin er alþjóðleg
fræðigrein og félagsleg vanda-
mál lækna í mörgum grund-
vallaratriðum hin sömu, hvar
sem er í heiminum, h) það er
mikils um vert að hafa greiðan
aðgang að upplýsingum um
fyrirkomulag og starfsreglur —
félagslegar og faglegar — hjá
ýmsum erlendum læknasam-
tökum, c) það hefur margþætt
gildi að hafa erlendan vett-
vang, þar sem unnt er að kynna
hinum stóra læknaheimi hin
sérstöku vandamál innlendra
lækna, þegar slíkt þykir lienta.
Ég tel því rétt — og hein-
línis mikils um vert :— fvrir
íslenzk læknasamtök að halda
áfram nánu sambandi við
World Medical Association.
Arinbjörn Kolbeinsson.