Fréttatíminn


Fréttatíminn - 02.09.2011, Blaðsíða 4

Fréttatíminn - 02.09.2011, Blaðsíða 4
Turninum | Smáratorgi 3 | 201 Kópavogi Sími 575 7500 | www.veisluturninn.is Ráðstefnur & fundir Fullkomin aðstaða fyrir allt að 500 manns Kynferðisbrot innan kaþólsku kirkjunnar rannsökuð veður Föstudagur laugardagur sunnudagur Rigning víða um land einKum þó sunnan- og austantil. stReKK- ingsvinduR af austRi, en fRemuR milt í veðRi. HöfuðboRgaRsvæðið: Rigning með köflum og dálítil gola. sums staðaR dálítill blástuR og sKúRiR eða Rigning, en þó að mestu þuRRt noRðanlands. HöfuðboRgaRsvæðið: fRemuR hlý gola og skúRiR, en sól á milli. léttiR til austanlands, en annaRs að mestu sKýjað og væta a.m.K. Hluta dagsins. HöfuðboRgaRsvæðið: smá skúRiR og skýjað með köflum. vætutíð ein og sama lægðin ræður veðri hér um helgina eða sú sem gleypti leifarnar af fellibylnum irene. strekkingsvindur af austri í dag föstudag með rigningu víða um land. að sama skapi fremu milt veðri. á laugardag dregur bæði úr vindi og úrkomu, verður meira í formi skúra og sums staðar verður nánast alveg þurrt svo sem norðanlands. á sunnudag er síðan að sjá að lægðin verði orðin að lægðardragi yfir landinu. fari svo léttir til og hlýnar austan- lands með sV-golu, en annars væta hér og þar en sól á milli. kólnar þá heldur norðvestantil. 12 11 13 10 11 13 10 13 12 11 12 8 11 15 12 einar sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is miðborgin okkar! frábært veður í miðborg- inni alla helgina. hundruð verslana og veitingahúsa bjóða vörur og þjónustu. Sjá nánar auglýsingu á bls. 39 og á www.miðborgin.is á að taka tré og fugla fram yfir fólk? Þóroddur Bjarnason, prófessor í félags- fræði við háskólann á akureyri, varpaði fram þeirri spurningu á fundi nefndar sem vinnur að sátt um framtíðarlegu vegar um sunnanverða Vestfirði, hvort taka ætti tré og fugla fram yfir lífsmöguleika byggðarinna á Vestfjörðum. ögmundur jónasson innanríkisráðherra sat fundinn en ráðamenn á Vestfjörðum vilja, að því er fram kemur á vef Bæjarins besta á Ísafirði, að leiðin um Barðastrandarsýslur verði stytt um rúmlega 20 km með því að þvera djúpafjörð og gufufjörð og losna um leið við tvo erfiða hálsa, Hjallaháls og ódrjúgsháls. Þetta þýddi að vegurinn færi í gegnum Teigsskóg í Þorskafirði sem landeigendur og náttúruverndarsamtök leggjast gegn. fram kom í fréttinni að ráðherra stefndi að niðurstöðu í haust. - jh hagnaður eimskips 1,2 milljarðar eimskip hagnaðist um 1,2 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Rekstr- arafkoman var jákvæð um 3,8 milljarða króna, að því er fram kemur í tilkynningu félagsins. heildareignir þess í lok júní voru 47,8 milljarðar króna og var eiginfjárhlut- fall 58,7%. Vaxtaberandi skuldir voru 10,9 milljarðar króna. Rekstrarafkoma á öðrum ársfjórðungi var jákvæð um 1,7 milljarða króna og afkoma eftir skatta var jákvæð um 300 milljónir króna. flutningamagn jókst um rúm 2% milli ára. - jh aukin samvinna norð- urlanda og eystrasalts- ríkja í utanríkismálum össur skarphéðinsson utanríkisráðherra sat á mánudag og þriðjudag fund utanríks- ráðherra norðurlandanna og eystrasalts- ríkjanna í helsinki. Ráðherrarnir undir- rituðu samkomulag um að sendifulltrúar ríkjanna gætu starfað og haft aðsetur í sendiráðum og fastanefndum hinna ríkjanna erlendis, að því er fram kemur í tilkynningu utanríkisráðuneytisins. sam- komulagið gerir ríkjunum kleift að vera með viðveru víðar en nú er. samningurinn er til marks um þá samstöðu sem ríkir meðal norðurlandanna og eystrasalts- ríkjanna og um aukna samvinnu í utan- ríkismálum. samkomulagið er gert á sama tíma og eystrasaltsríkin minnast þess að tuttugu ár eru liðin frá því að þau endur- heimtu sjálfstæði sitt. - jh  söFnun ekki auðvelt að kveðja 18 ára vin Selja límmiða til styrktar fjölskyldu látins vinar Vinir eyþórs darra Róbertssonar, sem lést í bílslysi við geirsgötu fyrir rúmum tveimur vikum, minnast hans með límmiða sem þeir selja til styrktar fjölskyldu hans. anton elí og sædís sjást hér við límmiðann sem límdur hefur verið aftan á bílinn hans antons. Ljósmynd/Hari Þ etta byrjaði eiginlega þannig að vinur okkar, Geir Elvar Gylfason, hannaði þessa límmiða og byrjaði að gefa þá. Við fengum síðan þá hugmynd að selja þá til styrktar fjölskyldu Eyþórs Darra. Okkur langaði til að gera eitthvað fyrir hana,“ segir Anton Elí Eggertsson en hann og vinkona hans, Sædís Bjarnadóttir, hafa selt límmiða á bíla að undanförnu til að minnast Eyþórs Darra Róberts- sonar sem lést fyrir tveimur vikum eftir hörmulegt bílsslys á Geirs- götunni. Eyþór Darri, sem var rétt að verða átján ára, lést af völdum höfuðáverka sem hann hlaut við áreksturinn. Anton Elí segir að fólk hafi tekið afskaplega vel í framtak þeirra. „Við höfum selt 250 límmiða. Þeir eru að verða búnir en það er auð- vitað ekkert mál að prenta nýja,“ segir Anton Elí en faðir hans sér um prentunina. Margir hafa tekið eftir límmiðunum sem eru aftan á fjölmörgum bílum. Á þeim stendur Eyþór Darri og síðan er mynd af krossi. Fyrir ofan E-ið í Eyþór er kóróna og segir Anton Elí að það sé merki skótegundarinnar Supra. „Hann átti endalaust af Supra- skóm. Þaðan kemur merkið,“ segir Anton Elí og bætir við að hægt sé að panta límmiða á anton.eli93@ hotmail.com og kosta þeir þúsund krónur. Og það er ekki auðvelt að kveðja vin sinn átján ára. „Við vorum bestu vinir frá því í grunnskóla. Þetta var hræðilegt áfall og er það enn, segir Anton Elí. Það er þó styrkur í sorg- inni að nánasti vinahópur Eyþórs Darra er mjög mikið saman. „Við erum orðin nánari, ef eitthvað er, og það hjálpar mikið,“ segir Anton Elí. óskar Hrafn þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Við erum orðin nánari, ef eitt- hvað er, og það hjálpar mikið. skipuð hefur verið rannsóknarnefnd til að rannsaka starfshætti og viðbrögð kaþ- ólsku kirkjunnar á íslandi vegna ásakana á hendur starfsmönnum um kynferðis- brot og önnur ofbeldisbrot. fréttatíminn greindi í sumar frá kynferðisbrotum innan hennar. Róbert spanó, lagaprófessor við hí, sá um skipan nefndarinnar og í henni sitja, að því er fram kom á mbl.is, hjördís hákonardóttir, fyrrverandi hæstaréttardómari sem er formaður, hrefna friðriksdóttir, dósent í fjölskyldurétti við lagadeild HÍ, og Jón Friðrik Sigurðsson, yfirsálfræðingur á geðsviði landspítalans og prófessor við hí og hR. Rannsóknin mun taka til starfs- manna landakotsskóla til ársins 2005. Verður þeim sem telja sig hafa sætt ofbeldi af hálfu starfsmanna skólans gefinn kostur á viðtali og að skila skriflegri greinargerð. nefndin á að skila niðurstöðum eigi síðar en 1. september 2012. -jh Ljósmynd Hari svona lítur límmiðinn, sem gerður var til minningar um eyþór darra, út. 4 fréttir helgin 2.-4. september 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.