Fréttatíminn


Fréttatíminn - 02.09.2011, Blaðsíða 68

Fréttatíminn - 02.09.2011, Blaðsíða 68
Helgin 2.-4. september 201148 tíska Strákum er alveg sama Það er mikill sjarmi yfir þeim karlmönn- um sem kunna að klæða sig eftir nýjustu tísku. Klæðaburðurinn er eitt af því fyrsta sem við stelpurnar tökum eftir. Við tengjum þetta á óútskýranlegan hátt við sjálfsöryggi, velgengni og hrein- leika. En karlmenn af þessu tagi eru því miður af skornum skammti. Það er eflaust ekkert óeðlilegt að karl- peningurinn er ekki jafn áhugasamur um tísku og við stelpurnar. Alls staðar í kringum okkur, á netinu, í tímaritum og auglýsingum, eru umfjallanir fyrir okk- ur stelpurnar um það hvernig við eigum að klæða okkur og snyrta. Frægar kon- ur eru oftar en ekki teknar fyrir þar sem klæðaburður og appelsínuhúð eru tekin rækilega fyrir. Strákar hafa ekki áhuga á svoleiðis skrifum. Sumir strákar standa þó upp úr fjöld- anum og hafa puttann á púlsinum. Grafa sér langa leið eftir umfjöllun um nýjustu strákatískuna og miðla henni áfram. Þessir strákar eru áberandi í samfé- laginu. Kröfurnar um klæðaval kynjanna eru ólíkar. Í báðum tilvikum eru það þó stelpurnar sem leggja þær. Við fylgj- umst með stelpunum, við fylgjumst með strákunum og gagnrýnum. Ég held að strákum sé alveg sama; nenna kannski ekki að taka þátt í þessu rugli og klæð- ast bara því sem þeir eiga. Með þann hugsunarhátt efst í huga að óþarft sé að kaupa sér ný föt úr því að þau fara úr tísku jafn fljótt og þau komast í tísku. tíska Kolbrún Pálsdóttir skrifar 5 dagar dress Með blandaðan stíl Kolbrún Anna Vignisdóttir er tvítug og stundar nám við Menntaskólann í Kópavogi. Samhliða skólanum vinnur hún á Vegamótum og hefur mikinn áhuga á tísku, ferðalögum, líkamsrækt og að borða góðan mat. „Minn stíll er mjög blandaður, myndi ég segja. Sumt er mjög „plain“, rokkað eða fínt,“ segir Kolbrún. „Ég fylgist auðvitað mjög mikið með tísku og klæði mig eftir henni en huga samt helst að því sem fer mér vel. Mín helsta fyrirmynd í tísku er franska leikkonan Chloe Sevigny sem hefur flottan fatastíl og hannar flottar fatalínur. Svo er það fyrirsætan Erin Wasson sem er alltaf svöl; í flottum fötum og með geðveikt húðflúr.“ Upplýsingavefur frá Vogue Vogue setti á laggir nýjan vef á dögunum, Voguepedia, sem auðveldar okkur að finna svörin við spurningunum. Vefurinn hefur að geyma upplýsingar um hönnuði, fyrirsætur, tískumerki, trend og fleira tískutengt, sem áður hefur birst í Vogue að sjálfsögðu. Vefurinn er þó enn á miklu byrjunarstigi og mun þróast heilmikið á næstu dögum, að því er fram kemur í breska Vogue. Nýr í ilmvatns- bransanum Hönnuðurinn Karl Lagerfeld, sem þekkt- astur er fyrir að hanna fyrir tískuhúsið Chanel, er að koma sér inn í ilmvatns- bransann. Hans fyrsti ilmur, Karleidos- cope, kom út í gær, fimmtudag, og er aðeins ætlaður fyrir konur. Að sögn Karls er ilmurinn þrunginn ástríðu og fjölbreytni og ilmar eins og haustið. Hönnunin á ilmvatnsglasinu er að sjálfsögðu ekki af verri endanum og verður það meðal annars merkt með undir- skrift Karls. Katie Price gefur út tíma- ritið Katie Glamúrfyrirsætan Katie Price, eða Jordan eins og hún er betur þekkt, er komin með sitt eigið tímarit. Tímaritið heitir Katie og fjallar meira og minna um einkalíf fyrirsætunnar. Í tímaritinu fjallar hún meðal annars um slúðrið, frægðina, gefur ýmis fegrunarráð og leyfir meðal annars lesendum að kíkja í fataskápinn sinn og dóttur sinnar, Princess Tiaamii. Fyrsta tölublaðið kom út fyrr í vikunni í Bretlandi og kostar 744 íslenskar krónur. Miðvikudagur Skór: Jeffrey Campbell Buxur: Monki Samfella: Selected Korselett: Urban Outfitters Vesti: Markaður Kross: LF stores Fimmtudagur Skór: Jeffrey Campbell Pils: Forever21 Bolur: Topshop Grifflur: Urban Outfitters Þriðjudagur Skór: Jeffrey Campbell Leggings: H&M Bolur: H&M Skyrta: Markaður Skinn: Gyllti kötturinn Föstudagur Skór: Topshop Buxur: H&M Skyrta: Zara Eyrnalokkur: Nasty Gal Mánudagur Skór: Dr. Martens Buxur: H&M Bolur: American Apparel Peysa: Topman Gleraugu: RayBan Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460 www.belladonna.is Stærðir 40-60. Flott föt fyrir flottar konur, Nýjar og flottar vörur í hverri viku Vertu þú sjálf vertu belladonna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.