Fréttatíminn - 02.09.2011, Síða 68
Helgin 2.-4. september 201148 tíska
Strákum er alveg sama
Það er mikill sjarmi yfir þeim karlmönn-
um sem kunna að klæða sig eftir nýjustu
tísku. Klæðaburðurinn er eitt af því
fyrsta sem við stelpurnar tökum eftir.
Við tengjum þetta á óútskýranlegan hátt
við sjálfsöryggi, velgengni og hrein-
leika. En karlmenn af þessu tagi eru því
miður af skornum skammti.
Það er eflaust ekkert óeðlilegt að karl-
peningurinn er ekki jafn áhugasamur
um tísku og við stelpurnar. Alls staðar í
kringum okkur, á netinu, í tímaritum og
auglýsingum, eru umfjallanir fyrir okk-
ur stelpurnar um það hvernig við eigum
að klæða okkur og snyrta. Frægar kon-
ur eru oftar en ekki teknar fyrir þar
sem klæðaburður og appelsínuhúð
eru tekin rækilega fyrir. Strákar
hafa ekki áhuga á svoleiðis skrifum.
Sumir strákar standa þó upp úr fjöld-
anum og hafa puttann á púlsinum. Grafa
sér langa leið eftir umfjöllun um nýjustu
strákatískuna og miðla henni áfram.
Þessir strákar eru áberandi í samfé-
laginu.
Kröfurnar um klæðaval kynjanna eru
ólíkar. Í báðum tilvikum eru það þó
stelpurnar sem leggja þær. Við fylgj-
umst með stelpunum, við fylgjumst með
strákunum og gagnrýnum. Ég held að
strákum sé alveg sama; nenna kannski
ekki að taka þátt í þessu rugli og klæð-
ast bara því sem þeir eiga. Með þann
hugsunarhátt efst í huga að óþarft
sé að kaupa sér ný föt úr því
að þau fara úr tísku jafn fljótt
og þau komast í tísku.
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
5
dagar
dress
Með blandaðan stíl
Kolbrún Anna Vignisdóttir er tvítug
og stundar nám við Menntaskólann í
Kópavogi. Samhliða skólanum vinnur hún
á Vegamótum og hefur mikinn áhuga á
tísku, ferðalögum, líkamsrækt og að borða
góðan mat.
„Minn stíll er mjög blandaður, myndi ég
segja. Sumt er mjög „plain“, rokkað eða
fínt,“ segir Kolbrún. „Ég fylgist auðvitað
mjög mikið með tísku og klæði mig eftir
henni en huga samt helst að því sem fer
mér vel. Mín helsta fyrirmynd í tísku er
franska leikkonan Chloe Sevigny sem hefur
flottan fatastíl og hannar flottar fatalínur.
Svo er það fyrirsætan Erin Wasson sem er
alltaf svöl; í flottum fötum og með geðveikt
húðflúr.“
Upplýsingavefur frá Vogue
Vogue setti á laggir nýjan vef á dögunum,
Voguepedia, sem auðveldar okkur að
finna svörin við spurningunum. Vefurinn
hefur að geyma upplýsingar um hönnuði,
fyrirsætur, tískumerki, trend og fleira
tískutengt, sem áður hefur birst í Vogue að
sjálfsögðu.
Vefurinn er þó enn á miklu byrjunarstigi og
mun þróast heilmikið á næstu dögum, að
því er fram kemur í breska Vogue.
Nýr í ilmvatns-
bransanum
Hönnuðurinn Karl Lagerfeld, sem þekkt-
astur er fyrir að hanna fyrir tískuhúsið
Chanel, er að koma sér inn í ilmvatns-
bransann. Hans fyrsti ilmur, Karleidos-
cope, kom út í gær, fimmtudag, og er
aðeins ætlaður fyrir konur. Að sögn Karls
er ilmurinn þrunginn ástríðu og fjölbreytni
og ilmar eins og haustið.
Hönnunin á ilmvatnsglasinu er að
sjálfsögðu ekki af verri endanum og
verður það meðal annars
merkt með undir-
skrift Karls.
Katie Price
gefur út tíma-
ritið Katie
Glamúrfyrirsætan Katie Price,
eða Jordan eins og hún er betur
þekkt, er komin með sitt eigið
tímarit. Tímaritið heitir Katie og
fjallar meira og minna um einkalíf
fyrirsætunnar. Í tímaritinu fjallar
hún meðal annars um slúðrið,
frægðina, gefur ýmis fegrunarráð
og leyfir meðal annars lesendum
að kíkja í fataskápinn sinn og
dóttur sinnar, Princess Tiaamii.
Fyrsta tölublaðið kom út fyrr í
vikunni í Bretlandi og kostar 744
íslenskar krónur.
Miðvikudagur
Skór: Jeffrey Campbell
Buxur: Monki
Samfella: Selected
Korselett: Urban Outfitters
Vesti: Markaður
Kross: LF stores
Fimmtudagur
Skór: Jeffrey Campbell
Pils: Forever21
Bolur: Topshop
Grifflur: Urban Outfitters
Þriðjudagur
Skór: Jeffrey Campbell
Leggings: H&M
Bolur: H&M
Skyrta: Markaður
Skinn: Gyllti kötturinn
Föstudagur
Skór: Topshop
Buxur: H&M
Skyrta: Zara
Eyrnalokkur: Nasty Gal
Mánudagur
Skór: Dr. Martens
Buxur: H&M
Bolur: American Apparel
Peysa: Topman
Gleraugu: RayBan
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
Stærðir
40-60.
Flott föt fyrir
flottar konur,
Nýjar og flottar vörur
í hverri viku
Vertu þú sjálf
vertu belladonna