Fréttatíminn


Fréttatíminn - 02.09.2011, Blaðsíða 39

Fréttatíminn - 02.09.2011, Blaðsíða 39
RMG í Von RÚNAR ÞÓ R, MEGAS & GYLFI ÆGIS Í VON, EFST ALEITI 7, SU NNUDAGIN N 4. SEPTEM BER KL. 21. AÐGANGSE YRIR 2.000 .- KRÓNUR r ennur ósker tur til SÁÁ S a m t ö k á h u g a f ó l k s u m á f e n g i s - o g v í m u e f n a v a n d a n n 12. september DRugStoRE CowboY Bandarísk 1989 Leikstjóri: Gus Van Sant Leikarar: Matt Dillon, Kelly Lynch, James LeGros, William S. Burroughs Drugstore Cowboy kom ferli Gus Van Sant á flug og líklega hefur hann enn ekki gert betur — nema ef vera skyldi My own Private Idaho. Handritið var byggt á þá óbirtri sögu James Fogle. Fogle þessi er kostulegur fýr, dópisti, tugthúslimur og glæpamaður — en skemmtilegur sögumaður og fínn penni. Drugstore Cowboy er byggð á parti af æfi Fogle; að hluta til sjálfs- æfisöguleg og að hluta til sú mynd sem Fogle vill gefa af sjálfum sér. James Fogle var drykkfelldur smákrimmi sem sérhæfði sig ungur í að ræna lyfjaverslanir við norðan- verða Kyrrahafsströnd Bandaríkjanna vegna þess að þar voru ekki vopnaðir verðir og að til var virkur markaður fyrir læknadóp þar sem skipta mátti ránsfengnum fyrir peninga. Fogle féll þó á endanum í freistni og fór sjálfur að nota lyfin sem hann stal. Hann var reglulega handtekinn og sat lengst af bak við lás og slá. Þar dró hann úr lyfjaáti, las mikið og skrifaði ýmis- legt. Þegar Drugstore Cowboy var frumsýnd 1989 sat Fogle í fangelsi, 52 ára útlifaður kall og ekki ýkja líkur Matt Dillon í myndinni. Frægðarsólin skein því ekki skært á Fogle og velgengnin varð honum ekki til blessunar. Í mars á þessu ári var hann dæmdur enn á ný, nú í 15 ára fangelsi. og sakarefnið var kunnuglegt; rán og ránstilraunir í nokkrum lyfjabúðum. Þegar dómur- inn féll var Fogle 73 ára gamall. Hann var spurður hvort það væri ekki sárt að horfa til þess að hann myndi að öllum líkindum deyja í fangelsinu og aldrei ná því að verða frjáls. Fogle svaraði því til að miðað við lifnaðinn á sér væri hann örugglega dauður ef hann hefði ekki verið handtekinn ári fyrr. og ef hann hefði ekki setið í fangelsum öll þessi ár hefði hann lesið minna og örugglega ekkert skrifað. Hann þakkaði því fangelsum fyrir langt og ágætt líf. Drugstore Cowboy er ekki skrifuð af manni sem hefur kynnst bata. Aðalpersónan reynir reyndar að láta renna af sér í myndinni en yfir sögunni svífa hugmyndir um dópneyslu sem frjálst val á lífsstíl, ofsóknir lögreglu gegn dópistum og óbærileg leiðindi edrúlífs. Þessar hugmyndir holdgerast í William S. Burroughs, sem leikur gamlan og lífseigan dópista í myndinni, hlutverk sem ekki er í bók Fogle heldur byggt á smásögu eftir Burroughs sjálfan. William S. Burroughs var einmitt þetta; gamall og ótrúlega lífseigur dópisti. Burrougs var fæddur 1914, sama ár og ópíum varð ólöglegt í Bandaríkjunum. Hann var því orðinn 75 ára þegar hann lék í myndinni. og hann lifði enn lengur; var orðinn 83 ára þegar hann dó. Þótt Burroughs hafi ekki orðið háður heróíni fyrr en 30 árum eftir að ópíum var bannað ber afstaða hans til dópistans og hvernig samfélagið tekur á honum merki þess hvernig stjórnvöld brugðust því fólki sem var háð ópíumefnum þegar efnin voru bönnuð 1914. Þá hafði morfín og önnur ópíumefni verið notuð til lækninga áratugum saman. Ópíum var stofninn í nánast öllum verkja- lyfjum og var notað í fjölda lyfja við ýmsum kvillum. Sumir læknar reyndu meira að segja að lækna alkóhólisma með ópíum. Óhjákvæmilega hafði því stór hópur fólks þróað með sér fíkn í þessi efni. Þegar þessi lyf voru gerð ólögleg og þeim lögum fylgt hart eftir með handtökum á læknum, sem héldu áfram að útvega fólki skammtinn sinn varð á einu bretti til stór hópur ólöglegra dópista. Í þess- ari fyrstu kynslóð ólöglegra dópista voru konur í meirihluta og lang flestir tilheyrðu millistétt. Þetta fólk upplifði skyndilegu stefnubreytingu stjórnvalda sem svik. Vímuefnasýki þess var skyndilega glæpavædd. Á einni nóttu var þessu fólki steypt úr virðulegri millistétt og gert að glæpa- mönnum. Það gat ekki lengur fengið lyfin sín hjá læknum heldur varð að treysta á framboðið á götunni. Í þessum sviptingum spruttu upp allskyns meðferðir við ópíumfíkn. Þegar farið hefur verið yfir gögn sjúkrastofnana og meðferðar- heimila telja menn að um 2 prósent sjúklinganna hafi tekist að halda sér frá neyslu eftir meðferð. Aðrir héldu neyslunni áfram þrátt fyrir að hún væri ólögleg. Af Burroughs er það að segja að honum tókst aldrei að losna við heró- ínið. Hann var á methadoni þegar hann dó eftir að hafa verið meira og minna háður ópíumefnum í meira en hálfa öld. Hann skaut konuna sína í svallveislu þar sem hún stóð með epli á hausnum eins og sonur Vilhjálms Tell. Sonur hans dó úr alkóhólisma og sakaði föður sinn um ömurleika eigin lífs; meðal annars að einn af dópfélögum hans hefði nauðgað sér á unglingsárunum. Burroughs hafði mikil persónuleg kynni og áhrif á bittnikskáldin á fimmta og sjötta áratugnum — eituræturnar sem Laxness kallaði — einkum Allen Ginsberg og Jack Kerouac. Burroghs var aðeins eldri en þessi kynslóð skálda og rithöfunda, en byrjaði samt seinna að skrifa. Flest það sem hann skrifaði var byggt á upplifunum hans og hugmyndum sem heróínfíkill. Þótt hann væri aldrei mikið lesinn óx orðspor hans og hann varð á endanum einskonar tákngerv- ingur þess sem stendur utan sam- félagsins; nauðugur en líka viljugur. Þessi staða tryggði honum endalaust framboð af ungum aðdáendum sem sóttust eftir kynnum við hann og greiddu fyrir með heróíni. 06 07 september 2011 september 2011 BrOT Úr SÖGU fíKla 5. september tHE LoSt wEEkEND Bandarísk, 1945 Leikstjóri: Billy Wilder Leikarar: Ray Milland, Jane Wyman, Phillip Terry Óskarsverðlaunamynd frá 1945. Besta myndin, besta handritið, besti leikstjórinn (Billy Wilder) og besti leikarinn í aðalhlutverki (Ray Milland). Eftir að hafa unnið handritið að Double Indemnity með Raymond Chandler leitaði leikstjórinn Billy Wilder að efni í næstu mynd sem gæti skýrt fyrir honum hvernig alkó- hólismi umbreytt mönnum. Þegar þeir hófu skrifin var Chandler í AA en hann féll síðan um það leiti sem þeir voru að klára handritið. Wilder kenndi sér um og taldi sig hafa keyrt Chandler út og hrakið hann út í drykkju. Þegar Chandler kvartaði undan því að sér hefði ekki verið boðið í frumsýningarpartíið spurði Wilder hvernig hann hefði átt að gera það. Chandler hefði verið dauður undir borði á einhverjum barnum. Wilder fann það sem hann leitaði að bók eftir Charles R. Jackson, The Lost Weekend. Þetta er lýsing á fimm daga drykkjutúr langt leidds alkóhólista í New York snemma á fjórða áratugnum. Jackson þekkti efnið vel. Hann hafði verið túramaður en reyndi að hætta. Eftir brösótta göngu í tvö ár náði hann bata innan AA þegar hann var 36 ára, 1938. Jackson hefur því örugglega setið marga fundi með upphafsmönnum AA í New York. Til að staðsetja bata Jackson í sögu AA má geta þess að AA-bókin kom út 1939 þegar Jackson var búinn að vera edrú í ár. um það leyti sem hann náði að stöðva drykkjuna neitaði John D. Rockefell- er jr. Bill Wilson um fjárstuðning til að reisa AA-spítala með þeim orðum að AA ætti að hafna utan að komandi fjárhagsaðstoð. Þrátt fyrir góð tengsl við AA — Jackson var dyggur talsmaður samtakanna og meðal annars sá fyrsti sem fjallaði opinberlega um misnotkun á lyfjum samhliða drykkju — koma samtökin ekki fyrir í The Lost Weekend, enda gerist sagan fyrir stofnun AA. Í bókinni — og myndinni — koma hins vegar fram hverskonar meðferð áfengissjúklingar fengu á spítölum áður en AA-leiðin breytti hugmyndum manna um leið til bata. Bók Jackson varð metsölubók og bíómyndin sló líka í gegn. Þessi fyrrum túramaður og hálfgildings róni varð ágætlega fjáður og menn biðu spenntir eftir næstu verkum hans. Hann flutti með nýstofnaða fjölskyldu til Hollywood en síðan aftur til Austurstrandarinnar. Næsta bók hans seldist ágætlega en fékk blendna dóma. Þar næsta bók fékk laka dóma og dræma sölu. Jackson féll eftir margra ára edrú- mennsku. Hann yfirgaf fjölskylduna og leigði íbúð með samkynhneigðum vini sínum í New York. Hann leigði herbergi á Chelsea Hotel og 21. sept- ember 1968 gleypti hann heilt glas af svefntöflum og vaknaði aldrei aftur. Hann var 65 ára þegar hann dó. Charles R. Jackson er langt í frá eini alkóhólistinn sem hefur dáið sviplega á þessu nafntogaða hóteli. Nancy Spungen, spússa Sid Vicious dó þar tíu árum síðar, 12. október 1978, og írska skáldið Dylan Thomas 15 árum fyrr, 9. nóvember 1953. „Það eru allir velkomnir og þessi kynning kostar ekkert,“ segir Guð- mann Magnússon ráðgjafi um Allt sem þú þarft að vita um alkó- hólisma (og vanda aðstandenda) á 45 mínútum. „Það er mjög mik- ilvægt bæði fyrir alkóhólista og aðstandendur þeirra, og reyndar alla sem hafa áhuga, að kynna sér sjúkdóminn og starfsemi SÁÁ.“ Í raun má segja að flestir Ís- lendingar hefðu not af svona kynningu því öll erum við á ein- hvern hátt tengd áfengissýki. „Svo ekki sé talað um þá stað- reynd að yfir 20 þúsund Íslend- ingar hafa komið til SÁÁ í með- ferð – núlifandi Íslendingar – frá stofnun samtakanna árið 1977,“ segir Guðmann og bendir á að ef þú ert karlmaður kominn yfir fermingaraldur þá eru um 18% líkur á að þú munir fara á Vog fyrr eða síðar. 10% ef þú ert stúlka komin yfir sama aldur. „Þannig að ég myndi segja að flestir Ís- lendingar standi nærri einhverj- um alkóhólista. Þessi sjúkdóm- ur snertir okkur öll að einhverju leiti.“ Á kynningarfundinum er stikl- að á stóru varðandi hvað alkóhól- ismi er og af hverju hann sé kall- aður fjölskyldusjúkdómur. Svo er farið yfir hugmyndafræði SÁÁ og úrræðin sem eru í boði fyrir alkó- hólista og fjölskyldur þeirra. ALLT Að 100 koNuR Kjarnakonur SÁÁ hittast vikulega: HVAÐ: Kynningarfundur HVAR: Von, Efstaleiti 7 FYRIR HVERN: Allir velkomnir HVENÆR: Fimmtudaga kl. 18 NÁNAR: www.saa.is „Það hafa mætt alveg frá fjórum konum og upp í hundrað á síðustu tíu árum,“ segir Lára Erlings- dóttir, lyfjatæknir og Kjarnakona. „Okkar mark- mið eru einföld; bati við sjúkdóminum og stuðn- ingur við SÁÁ.“ Kjarnakonur eru félagsskapur kvenna sem hittast vikulega og taka þátt í starfi SÁÁ með því að safna peningum en í fyrsta sæti er batinn og fræðsla um sjúkdóminn. Allar konur eru velkomnar og það þarf ekkert boðskort held- ur bara mæta og deila reynslu sinni, styrk og von- um með öðrum konum. HVAÐ: Kjarnakonur HVAR: Von, Efstaleiti 7 HVENÆR: Alla miðvikudaga kl. 20 FYRIR HVERN: Konur NÁNAR: www.saa.is SOlla OG KJarNaKONUr það er um að gera að taka þátt því Kjarnakonur vilja stuðla að heilbrigðu og fallegu lífi. ALLt SEm þú þARFt AÐ VItA uM ALKÓHÓL- ISMA Á 45 MÍNúTuM Yfir 20 þúsund núlifandi Íslendinga hafa leitað sér meðferðar hjá SÁÁ: GUÐMaNN MaGNÚSSON Ef þú ert karlmaður kominn yfir fermingaraldur þá eru um 18% líkur á að þú munir fara á vog fyrr eða síðar. M YN D : G U N N i G U N N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.