Fréttatíminn


Fréttatíminn - 02.09.2011, Blaðsíða 44

Fréttatíminn - 02.09.2011, Blaðsíða 44
Ég var mest í spilakössum,“ útskýr-ir Edith Louise Carlson ráðgjafi þeg-ar hún er spurð út í spilafíknina sem hún hefur nú verið frjáls frá í fimm ár. „Fyrsta fíkn mín var áfengi og fíkniefni en þegar ég stoppa það þá fer ég yfir í spilafíkn- ina, bláedrú.“ Edith, eða Dídí eins og hún er kölluð, bjó fyrstu fjögur ár ævi sinnar í Bandaríkjunum en þá fluttu þær mæðgur frá pabba hennar til Íslands. Hún varð edrú fyrir átján árum en hafði þá verið róna- kona og því má segja að hún sé sannkallað krafta- verk. Í dag er hún 42 ára og hún er gift og á tvö börn (eiginmaðurinn á eitt) sem eru uppkomin og þau muna ekki eftir mömmu sinni nema bara edrú. Skömmin mikil hjá konum „Þegar ég hætti í neyslu 1993 þá breyttist auðvitað allt en fljótlega þróaði ég með mér spilafíkn sem varð mjög alvarleg,“ útskýrir Dídí af miklu æðru- leysi. Hún spilaði í tíu ár og segir spilafíkn vera sjúkdóm sem auðvelt er að fela. „Það er engin lykt af þér og breytingarnar sem verða á manni eru fyrst og fremst spenna. Það ástand er svo sterkt að stundum þegar þú kemur af þessum spilastöðum titrarðu í raunverulegum fráhvörfum.“ Nú er meira um að karlar stígi fram úr myrkr- inu og segi frá spilafíkn sinni, hvað veldur? „Skömmin er oft svo mikil hjá konum að þær eiga erfiðara með að leita sér hjálpar. Þér líður svo ofboðslega illa ef þú ert kannski búin að eyða pen- ingum í spil sem þú hefðir getað notað til að kaupa föt á barnið þitt. Ég vona samt að fleiri konur stigi fram því vandamálið er ekki minna hjá konum.“ pirruð ef hún vann Áhugasamir um hjálp við spilafíkn er bent á spila- hópinn sem hittist alla mánudaga kl. 18 og auð- vitað helgarnámskeiðin. Dídí fór bæði í spila- hópinn og helgarnámskeiðin en þá býður Vogur einnig upp á þá leið að fara á sjúkrahúsið í með- ferð. Einnig er mælt með að spilafíklar sæki þar til gerða tólf spora fundi (GA). „Þetta er svo falinn sjúkdómur að þú lifir lengi í óheiðarleika og lygi áður en þú leitar hjálpar. En þegar þú færð bata þá breytist allt í lífi þínu og þú getur horfst í augu við fólk án þess að vera alltaf á flótta. Staðan í lífi mínu, áður en ég leitaði mér hjálpar, var orðin þannig að ég var farin að hugsa hvort ég ætti að keyra framan á næsta bíl og á hvaða hraða ég þyrfti að vera til að þetta væri bara alveg búið,“ segir Dídí en hún hugsaði mikið um það hvernig hún ætti að komast út kössunum en hún réði ekki við það sjálf. „Spilafíkn hættir fljótlega að snúast um pen- inga heldur spennuástandið sjálft. Þetta snýst ekki um að vinna eða tapa og stundum varð ég pirruð ef ég vann því það framlengdi bara ástandið, stjórn- leysið og sársaukann.“ Kraftaverk ofan af vogi Eins alvarlegur og sjúkdómurinn er þá fyrir kald- hæðni örlaganna ólst Dídí upp í Las Vegas fyrstu árin og síðan hún hætti að spila hefur hún tvisv- ar farið út í heimsókn til pabba síns sem nú er látinn. „Ég bjó meira að segja á spilavítahóteli og það var ekki gaman. Þetta var erfiður tími því hann var að deyja og ég vildi kveðja hann. Svo stóð ég við hlið hans þegar hann fársjúkur plant- aði sér fyrir framan spilakassa af því að hann var líka spilafíkill. Þá hugsaði ég með mér: Þetta er ekki að gerast.“ Þegar Dídí flutti barnung til Íslands varð hún eitt af þessum kerfisbörnum sem við lesum stund- um um í blöðunum. Hún flakkaði á milli fóstur- heimila því móðir hennar átti í vandræðum. Hún fullorðnaðist sem róni og svarf í húsagörðum eða fangaklefum. Það var lítil von í hennar lífi þar til hún eignaðist son sinn og náði sér upp úr mesta ruglinu. Svo kom dóttir en áfram hélt hún áfram að falla og fyrir átján árum breyttist hún svo í eitt af þessum kraftaverkum ofan af Vogi. Þá var son- urinn í góðu yfirlæti hjá pabba sínum á Borgar- firði Eystri en dótturina vann hún aftur og hugs- aði mikið um að veita henni það sem hún sjálf fór á mis við. „Ég vil meina að lífið sem ég lifi í dag sé kraftaverk og það er SÁÁ að þakka. Börnin mín muna bara eftir mér edrú,“ segir Dídí að lokum og biður fólk sem telur sig eiga í vanda að leita til SÁÁ. -MT 12 september 2011 FLEStIR mISSA tökIN Í SPILAköSSum n „Alla mánudaga í Von hittist svokallaður spilahópur en í hann ertu hjartanlega velkomin ef þér finnst þú eiga við spilavanda að stríða eða ert að velta því fyrir þér hvort þetta sér orðið vandamál hjá þér,“ segir Snorri Sigurður Karlsson, ráðgjafi hjá SÁÁ, en í þessum hóp er sérstök kynning á spilavandanum sem slíkum, kynning á GA (Gamblers Anonymous) og grúbbuvinna svokölluð. „Þetta kostar ekki neitt og svo á hverju hausti bjóðum við líka upp á helgarmeðferð og sú næsta verður 22. – 23. október,“ útskýrir Snorri sem segist sjá breytingar á hópnum sem leitar sér hjálpar með tilkomu pókersins Internetinu: „Stærsti hluti þeirra sem leita til okkar eru að spila í spilaköss- um en ungir strákar sérstaklega eru að koma til okkar í viðtal hérna í Von af því að þeir hafa misst tökin á póker á netinu,“ segir Snorri og vill ítreka að spilafíkn geti verið mjög sterk og mörg dæmi um að menn og konur hafi lagt sig í hættu til að spila eða gjörsamlega spilað frá sér allt og haldið áfram eftir það. SÁÁ BJarGaÐi lífi MíNU – aftur EDiTH lOUiSE CarlSON ráðgjafi varð edrú 1993 en þá hafði hún búið á götunni og verið róni. Hún vann aftur dóttur sína og heldur góðu sambandi við son sinn sem ólst upp hjá barnsföður hennar. Fyrir fimm árum fékk hún svo aftur hjálp hjá SÁÁ og hóf batagöngu vegna spilafíknar sem var að rústa lífi hennar. EDiTH lOUiSE CarlSON „þegar ég hætti í neyslu 1993 þá breyttist auðvitað allt en fljótlega þróaði ég með mér spilafíkn sem varð mjög alvarleg.“ STEfaNía OG HÖrÐUr ráðgjafara SÁÁ taka vel á móti foreldrum sem þurfa á fræðslu og styrk samtakanna að halda. Mikilvægt að foreldrar kynni sér sjúkdóminn og úrræðin: Alla þriðjudaga kl. 18 hittast foreldrar ásamt ráðgjöfum SÁÁ á Vogi og hlýða á fyr- irlestra og styðja hvert annað. „Þetta eru fimm fyrirlestrar sem eru opn- ir öllum foreldrum sem eiga börn sem þau telja að eigi í vanda vegna áfengis- og/eða vímuefnaneyslu,“ segir Hörður J. Oddfríð- arson áfengisráðgjafi en hann og Stefanía Bára Jónsdóttir segja að þriðju- dagskvöldin hafi lengi mælst vel fyrir og verið vel sótt. „Þetta er opið öllum en við mælum með að foreldra komi með barnið í viðtal til ráð- gjafa hér Von, Efstaleiti 7, sem er fjölskyldu- og barnahúsið okkar,“ útskýrir Stefanía en viðtalið gerir foreldrum ekki síður gott en börnunum en alkóhólismi er fjölskyldusjúk- dómur og mikilvægt að foreldrar samhæfi reynslu sína, styrk og vonir. HVAÐ gEtA FoRELDRAR gERt SEM ÓTTAST uM BARNIð SITT? HVAÐ: Spilahópur HVAR: Von, Efstaleiti 7 FYRIR HVERN: Spilafíkla HVENÆR: Alla mánudaga kl. 18 NÁNAR: www.saa.is SNOrri SiGUrÐUr KarlSSON „Stærsti hluti þeirra sem leita til okkar eru að spila í spilakössum.“ HVAÐ: Foreldrafræðsla HVAR: Á Vogi FYRIR HVERN: Foreldra unglinga HVENÆR: Alla þriðjudaga kl. 18 (búið kl. 20.30) NÁNAR: www.saa.is MYND: GUNNi GUNN MYND: GUNNi GUNN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.