Fréttatíminn


Fréttatíminn - 02.09.2011, Blaðsíða 26

Fréttatíminn - 02.09.2011, Blaðsíða 26
V ið vorum búin að koma okkur fyrir, leigja íbúð í Kaupmannahöfn og leigja út okkar íbúð hér á Ís- landi í eitt ár. Það lá því strax fyrir að við værum ekkert á heim- leið, eftir að samstarfssamningnum var rift,“ segir Halldór, sem strax fór að leita sér að verktakavinnu. Eftir nokkur slík störf var honum boðið starf sem hljóðmaður í Glersalnum í Tívolí: „Þar var að fara í gang skemmtidag- skrá, sem Sören Östergaard var með. Hann er svona Laddi þeirra Dana og þarna var leikið, sungið og talað – svo- lítill kabarett.“ Halldór hafði aldrei búið í Danmörku, en Arnrún hins vegar í eitt og hálft ár þegar hún var níu og tíu ára og pabbi hennar var að bæta við sig menntun í kennararéttindum. Arnrún vissi því hversu gott væri að búa í Danmörku og Halldóri fannst ágætt að fá tilbreytingu og starfa með hljóðmeisturum frá öðru landi. Roði í auga Allt gekk vel, lífið gekk sinn vanagang þar til í maí árið 2009 að Halldór tók eft- ir roða í öðru auganu og þegar roðinn var enn til staðar þremur vikum síðar fór hann til heimilislæknis. „Ég hélt kannski að þetta væri jafnvel bara frjóofnæmi og hafði engar áhyggj- ur af þessu. Ég var undir gríðarlegu álagi í vinnunni í Tívolí, þurfti að leggja mig eftir vinnudaginn og var hægur í gang á morgnana. Heimilislæknirinn gaf mér sýklalyf og krem, en ekki fór roðinn. Það endaði með því að heimilis- læknirinn gafst upp á að reyna að finna út hvað væri að og vísaði mér á augn- lækni sem fann heldur ekkert og vísaði mér á endanum á augnlæknadeildina á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn.“ „Ég hélt líka að þetta væri eitthvað sem myndi jafna sig af sjálfu sér,” segir Arnrún, ,,en var farið að finnast þetta nokkuð langvinnt. Mér fannst í raun ekki óeðlilegt að Halldór gæti mögu- lega hafa yfirkeyrt sig, hann leggur sig alltaf 100% fram í starfi, og eigin- lega ennþá meira þarna, útlendingur í ókunnugu landi.“ Vísað milli lækna Í nóvember – hálfu ári eftir að roðinn byrjaði í auganu - vísaði auglæknir- inn Halldóri á augnlæknadeildina á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn og þangað fór Halldór einu sinni til tvisvar í viku allan desembermánuð. En á þeim bæ vissu menn ekki heldur hvað þetta gæti verið. „Ég fann ekkert fyrir þessu, það var bara þessi roði og ég sá betur með því auga en hinu. Það sem læknarnir skildu ekki var að þetta væri bara í öðru aug- anu, því ef þetta væri sýking væri hún fljót að berast milli augnanna. Ég lenti meðal annars á nemum sem voru við störf í eitt skiptið og þeir áttu að reyna að finna út hvað þetta væri – en þeim varð auðvitað ekkert frekar ágengt en útlærðum læknum með margra ára reynslu. Það voru tekin strok og sýni og loks milli jóla og nýárs fékk ég svar. Þá hringdi augnlæknirinn í mig og bað mig að koma niður á spítala því það væri komin greining.“ Aldrei slíku vant ákvað Arnrún að verða samferða Halldóri niður í bæ og bíða hjá föðursystur sinni á meðan hann væri hjá lækninum. En þá hringdi Með ólæknandi krabba- mein í eitlum og beinmerg Ungt par var nýflutt til Kaupmannahafnar þar sem í höfn voru starfsmannaskipti milli Þjóð- leikhússins og Konunglega leikhússins í Kaupmannahöfn. Hljóðmaðurinn Halldór Snær Bjarnason ætlaði að starfa þar í eitt ár og með í för voru tvö börn þeirra Arnrúnar Ey- steinsdóttur, Eysteinn Aron, tíu ára, og Jódís Guðrún eins árs. Þau höfðu þó vart komið sér fyrir í Kaupmannahöfn þegar hrunið skall á – og starfsmannaskiptin rofnuðu. En verri hlutir biðu þeirra. Anna Kristine hitti þessi ungu, jákvæðu hjón. Anna Kristine ritstjorn@frettatiminn.is 26 viðtal Helgin 2.-4. september 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.