Fréttatíminn - 02.09.2011, Blaðsíða 45
Næsta miðvikudagskvöld, 7. septem-
ber, hefjast Samtöl um alkóhólisma
og hitt og þetta aftur í Von, húsi SÁÁ
við Efstaleiti, kl. 2030. Fyrsta kvöldið
ber yfirskriftina: Samtal um alkóhól-
isma og rokk & ról — 27 ára klúbbur-
inn. Þar munu Óttar Guðmundsson
geðlæknir og dr. Gunni ræða um líf og
örlög Brian Jones, Jimi Hendrix, Jan-
is Joplin, Kurt Cobain og Amy Wine-
house; hvaða áhrif hafði áfengis- og
vímuefnaneysla á líf þeirra og list —
og dauða.
Bati og lyf
Þessi samtöl á miðvikudagskvöld-
um gerðu mikla lukku í fyrra. Þá var
efnt til samtala um alkóhólisma og
bókmenntir, offitu, Guð, uppeldi og
margt fleira. Fyrirkomulagið verður
það sama í vetur. Fyrst munu tveir
til þrír framsögumenn halda stutt
erindi en síðan gefst gestum kostur
á að blanda sér í samtalið. Reynsl-
an í fyrra var sú að úr varð líflegt
spjall um áhugaverð efni í góðum
félagsskap. Markmið þessara sam-
tala er ekki að komast að einni til-
tekinni niðurstöðu heldur frekar að
eiga raunveruleg mannleg samskipti
utan Netheima; samskipti byggð á
virkni og virðingu.
Miðvikudaginn 14. september
verður Samtal um alkóhólisma og
lyfjalausa meðferð. Þar munu Pétur
Tyrfingsson sálfræðingur ræða um
hugræna atferlismeðferð við þung-
lyndi, Steindór J. Erlingsson vísinda-
sagnfræðingur mun fjalla um leið sína
til bata án lyfja og Þórarinn Tyrfings-
son, yfirlæknir á Vogi, mun fjalla um
áfengismeðferð og lyf. Út frá erindum
þeirra mun án efa spretta áhugavert
spjall enda um mikilvæg mál á ferð-
inni — ekki aðeins fyrir alkóhólista
sérstaklega, sem þurfa að gæta sín á
mörgum lyfjum — heldur ekki síður
vegna þess hversu hratt lyfjameðferð
við breiðist út; oft á kostnað annarrar
meðferðar.
Ókeypis inn
Af öðrum efnum sem verða tekin fyrir
í vetur má nefna: Samtal um gremju,
átök, deilur innan alkasamfélags-
ins, Samtal um mannréttindabaráttu
alkóhólista, Samtal um alkóhólisma
og snilligáfuna, Samtal um alkóhól-
ista og aldraða, Samtal um alkóhól-
isma og glæpavæðingu sjúkdómsins
og margt fleira. Nánari upplýsingar
eru inn á www.saa.is.
Samtölin á miðvikudagskvöldun-
um eru öllum opin, allir eru hjartan-
lega velkomnir og hvattir til að mæta.
Og það kostar ekkert.
samtöl um alkóhólisma og
allt milli himins og jarðar
Allan síðasta vetur héldum við svokallaða þUrra MiÐviKUDaGa í Von, eða Samtöl um alkóhólisma og hitt
og þetta. Þessir fundir voru ótrúlega vel sóttir núna í næstu viku hefst dagskráin aftur og þá mæta Dr. Gunni
og Óttar Guðmundsson geðlæknir og ræða um dauðu popparana.
Hollt í hádeginu á þriðjudögum:
Í hádeginu á þriðjudögum
verður boðið upp léttan og holl-
an málsverð í Von, húsi SÁÁ í
Efstaleiti 7, og léttan og hollan
fyrirlestur um ýmsar hliðar á
fíkn og bata við fíknisjúkdóm-
um: Hollur og góður félags-
skapur.
Í september bjóðum við
upp á mat frá hollustumat-
staðnum Happ. Gestir setj-
ast saman við langborð og því
óhætt fyrir fólk að koma ein-
samalt. Þegar maturinn hefur
verið reiddur fram, kl. 12.10,
hlýðum við á stuttan fyrirlest-
ur og að honum loknum mun
fyrirlesarinn spjalla við gesti og
svara fyrirspurnum. Spjallinu
lýkur klukkan 13 og þá getur
fólk haldið út í lífið endurnært
á líkama og sál.
Í hádeginu á á þriðjudaginn
næsta Lárus Blöndal sálfræð-
ingur fjalla um vanda fólks við
uppeldi eftir að það kemur úr
meðferð. Þetta er mikilvægt
málefni fyrir áfengis- og vímu-
efnasjúklinga sem margir koma
úr brotnum fjölskyldum en vilja
ekkert frekar en ná að snúa
fjölskyldusögu sinni við. Þann
13. september mun Þórarinn
Tyrfingsson yfirlæknir fjalla
um hugræna atferlismeðferð
fyrir alkóhólista og skýra út
kjarnann í henni og hugmynda-
fræðina að baki. Vikurnar þar
á eftir fjalla Hörður Oddfríðar-
son ráðgjafi um sjálfsvirðingu
og Halldóra Jónasdóttir ráðgjafi
um meðvirkni.
Fyrir matinn, fyrirlesturinn,
félagsskapinn og samveruna
greiðir fólk aðeins eitt þúsund
krónur.
LÍkAmLEg, FéLAgSLEg
oG ANDLEG NæRING
HVAÐ: Hollt í hádeginu
HVAR: Á Vogi
FYRIR HVERN: Alkóhólista
og aðstandendur í bata
HVENÆR: Þriðjudaga kl. 12
NÁNAR: www.saa.is
HVAÐ: Þurrir miðvikudagar
HVAR: Á Vogi
FYRIR HVERN:
Allir velkomnir
HVENÆR: Miðvikudaga
kl. 20. 30
NÁNAR: www.saa.is
JiMi HENDrix, JaNiS JOpliN OG
KUrT COBaiN í næstu viku ræða Óttar
Guðmundsson geðlæknir og Dr. Gunni poppari
líf og örlög 27 ára klúbbsins goðsagnakennda.
13 september 2011
vEfUr SÁÁ
n Vefur samtakanna, www.saa.
is, er lifandi vefur með pistlum
og greinaskrifum auk frétta og
tilkynninga sem tengjast SÁÁ
og edrúsamfélaginu á Íslandi al-
mennt. Þetta er mjög virkur vefur
og reglulega uppfærður og mikil-
vægt að öll okkar sem vilja lifa
heilbrigðu edrúlífi fylgjumst vel
með á vefnum. En það gleymist
oft vefurinn er svo miklu meira
en það því hvergi á Íslandi er
hægt að finna á sama stað annan
eins fróðleik um þennan skað-
sama fjölskyldusjúkdóm sem
tekið hefur svo mikið frá Íslandi.
Þarna eru lærðar greinar og próf
og alskonar fréttir af því helsta
sem er að gerast í heiminum auk
þess að í vetur munum við senda
út viðburði í Von í beinni á vefn-
um fyrir landsmenn alla.
BæJarSTÓra-
rÁÐSTEfNa
n Miðvikudaginn 21. september
verður bæjarstjóraráðstefna um
áfengis- og vímuefnavandann
í Von, húsi SÁÁ við Efstaleiti 7.
Þar munu bæjar- og sveitastjór-
ar sveitarfélaganna í nágrenni
Reykjavíkur — hringurinn frá
Borgarfirði að Selfoss að Reykja-
nesi og allt þar fyrir innan — hitt-
ast og bera saman bækur sínar
um stefnu og aðgerðir í áfengis-
og vímuefnamálum. Þótt heil-
brigðisþjónusta til áfengis- og
vímuefnasjúklinga sé á vegum
ríkisins þá er allur félagslegur
stuðningur, forvarnir og félagsleg
stefnumörkun á hendi sveitar-
félaganna. þá er því mikilvægt
fyrir sveitarfélögin að hafa sam-
eiginlegan vettvang til að ræða
þessi mál.
afMæliSfUNDUr SÁÁ
n Miðvikudaginn 6. október kl.
20 í Háskólabíó höldum við af-
mælisfund SÁÁ. Í ár verður sami
baráttuhugurinn og áður en mik-
ilvægt að sem flestir sjái sér fært
að mæta. Hörkuræður, músík og
uppistand er árlegur viðburður.
SÁÁ Á aKUrEYri
n „Þú getur gengið beint inn af
götunni og ef ég er ekki upp-
tekinn við ráðgjöf þá geturðu
fengið kynningu á sjúkdóminum
og starfsemi SÁÁ bara með því
sama,“ segir Anna Hildur Guð-
mundsdóttir, ráðgjafi SÁÁ á Ak-
ureyri, en skrifstofan er opin frá
kl. 9-18 alla daga og mikil starf-
semi í húsinu.
ÖrYGGiSrÁÐiÐ
n Í dag, föstudaginn 2. septem-
ber, munu fulltrúar frá SÁÁ,
Landspítalanum, Samhjálp.
Krýsuvíkursamtökunum, Barna-
verndarstofu, Vímulausri æsku
og áfangaheimilunum Takmark-
inu og Dyngjunni eiga fund og
ræða vanda áfengis- og vímu-
efnasjúklinga. Markmiðið er að
draga fram heildstæða mynd af
vandanum, greina hvar skóinn
kreppir helst og leita úrlausn.
lÁrUS BlÖNDal Er einn af
þeim sem mun halda fyrirlestur í
september.
RÁÐStEFNA um
bEtRI mEÐFERÐ
SÁÁ hefur árum saman haldið ráð-
stefnu í tengslum við afmælisfundinn
í Háskólabíó. Að þessu sinni verður
sjónum beint að kjarnanum í rekstri
SÁÁ; meðferðinni sjálfri. Allar þær
stéttir sem koma að fjölfaglegri með-
ferðinni munu meta stöðuna; hvað
hafi vel tekist og reynist enn vel, hvað
þurfi að aðlaga breyttum aðstæðum
sjúklingahópsins og hvar megi gera
betur. Fyrirlestrar verða fluttir af
læknum, sálfræðingum, hjúkrunarfræð-
ingum, áfengis- og vímuefnaráðgjöfum,
félagsráðgjöfum og fleirum — og munu
allir vanda sig við að tala ekki inn í
eigin stétt heldur þvert á móti þannig
að aðrar stéttir og leikmenn geti skilið.
Þessi ráðstefna er því ekki aðeins ætl-
uð fagmönnum sem vinna við áfengis-
og vímuefnameðferð heldur öllu
áhugafólki um áfengis- og vímuefna-
vandann — því það er okkur áfengis- og
vímuefnasjúklingum mikilvægt að hér
þróist og eflist góð meðferð samhliða
styrkingu 12 spora-samtaka og hertri
réttindabarátta og eyðingu fordóma.
Fylgist með vef samtakanna www.saa.
is en afmælisfundurinn er 6. október
og verður ráðstefnan betur kynnt á
vefnum fyrir fundinn.
MYND: GUNNi GUNN