Fréttatíminn


Fréttatíminn - 02.09.2011, Qupperneq 14

Fréttatíminn - 02.09.2011, Qupperneq 14
E ystrasaltsþjóðir minnast þess að tveir áratugir eru liðnir frá því þær öðluðust sjálfstæði undan oki Sovétríkjanna. Þáttur Íslands í því er skrifaður í sögu Eistlands, Lett- lands og Litháens og einkum nafn eins manns, Jóns Baldvins Hannibalssonar, þáverandi utan- ríkisráðherra. Vesturveldin voru tilbúin að fórna hagsmunum þessara þriggja smáríkja til að tryggja þá sem þau töldu aðra og meiri í samskiptum við stórveldið í austri, Sovétríkin. Utanríkisráðherra minnsta NATO-ríkisins var annarrar skoðunar og varði hagsmuni hinna undirokuðu ríkja með oddi og egg. Ég hef oft verið spurður af lærðum stjórnmála- fræðingum, segir Jón Baldvin, hvernig það mátti vera að Ísland, sem er ekki þekkt af því að vera stórveldi á alþjóðavettvangi, tók upp á því að hafa frumkvæði að einhvers konar hjálparstarfi við sjálfstæðisbaráttu þessara þriggja smáþjóða, Eista, Letta og Litháa, á árabilinu 1988 til 1991. Það er undrunartónn í spurningunni vegna þess að þetta er eiginlega brot á lögmálinu. Það er ekki til siðs að smáríki hegði sér svona. Það er samkvæmt bókinni til þess ætlast að þau leiti sér skjóls hjá hinum sem eru stærri og fyrirferð- armeiri en hafi ekki frumkvæði. Það flokkast kannski undir mikillæti að brjóta þetta lögmál. En við gerðum það nú samt. Þegar frá líður og sagnfræðingar eru farnir að skoða þetta þá tek ég eftir því, bæði í Eystra- saltslöndum og í alþjóðlegum fræðiritum, að þetta vekur nokkra undrun og er orðið svolítið rannsóknarefni. Þess vegna þarfnast þetta skýr- ingar, segir utanríkisráðherrann fyrrverandi. Langvarandi hnignun Það byrjar allt með hnignun Sovétríkjanna. Gorbatsjov kemur til valda 1985 og hans tímabil nær til ársloka 1991. Sovétríkin höfðu verið í langvarandi hnignun undir Brésneff. Gorbat- sjov er til þess að gera ungur maður og honum er ljóst, þegar hann nær völdum, að það verður að grípa til aðgerða því Sovétríkin eru hreinlega að koðna niður undan eigin þunga. Efnahags- kerfið er í molum. Afganistan-stríðið var þeim óbærilegt. Það er tvenns konar upplifun. Sovéskur al- menningur leit á þetta sem stöðugleikatímabil eftir allar hörmungar fyrri tíðar. En það var linnulaus hnignun. Sovétríkin voru í djúpri kreppu. Hann innleiðir það sem hann kallar um- bótastefnu sína undir tveimur slagorðum; Glas- nost, opnun, og Perestrojka, kerfisbreyting. Ég nefni þetta strax af því að sjálfstæðishreyf- ingar Eystrasaltsþjóðanna eiga rætur að rekja til þessa. Þær hefðu naumast orðið til ef Gorbatsjov hefði ekki verið að boða breytta tíma, ef hann hefði ekki afnumið Brésneff-kenninguna sem áskildi Sovétríkjunum rétt til hernaðaríhlutunar á þeirra yfirráðasvæði, sem þeir skilgreindu svo, þ.e. í Austur-Evrópu. OPIÐ HÚS Laugardag, 3. september, kl. 10-14 - HEILSURÆKT FYRIR ÞIG - • Frí heilsufarsskoðun • Lukkuleikur og tilboð • Kynning á fæðubótarefnum frá All Stars • Ný og glæsileg tímatafla kynnt með yfir 400 tímum í viku hverri. • Frítt í allar 9 World Class stöðvar milli kl. 10-14 Sjá nánar á worldclass.is C M Y CM MY CY CMY K Fréttatíminn2x10_2.sept.pdf 1 9/1/11 3:58 PM Það er ekki til siðs að smáríki hegði sér svona Tveir áratugir eru liðnir frá því að Eystrasalts- ríkin þrjú öðluðust sjálf- stæði og losnuðu undan oki Sovétríkjanna. Jónas Haralds- son ræddi við Jón Baldvin Hannibals- son um sögu málsins og þátt Íslands og hins íslenska utan- ríkisráðherra í þróuninni á ögurstund. Sjálfstæðisbarátta í áföngum Smám saman fara að myndast hreyfingar í Eystrasalts- ríkjunum; fyrst eins máls hreyfingar, umhverfisvernd, en að öðru leyti menningarleg sjálfstæðisbarátta því þessar þjóðir voru við dauðans dyr í þeim skilningi að frá því að þær voru hernumdar og innlimaðar í stríðs- lokin af Rússum var stunduð þar grimmileg rússunar- pólitík. Forystumenn þessara þjóða, pólitískir og menn- ingarlegir, voru miskunnarlaust handteknir og fluttir í nauðungarbúðir, gúlagið, eða drepnir. Inn voru fluttir Rússar. Staðan var orðin þannig að rússneskan var orðin ráðandi mál. Tungumál þeirra voru eiginlega að verjast neðanjarðar þannig að þessar sjálfstæðishreyfingar verða til þegar nýlenduveldið slakar á klónni. Þetta gerist í áföngum frá 1987 til 1991. Það eru stofnaðar þverpólitískar sjálfstæðishreyfingar og efnt til kosn- inga. Það eru myndaðar ríkisstjórnir sem eru ábyrgar gagnvart þingum. Þjóðirnar eru eiginlega búnar að varpa af sér stalínisma-okinu en þær tilheyra ennþá Sovétríkjunum. Kuldalegar móttökur Þegar þær eru búnar að gera hreint fyrir sínum dyrum og leita vestur á bóginn eftir viðurkenningu á sjálf- stæði sínu og stuðningi við lýðræðisþróunina, verður þeim bylt við. Þeim er tekið kuldalega. Öfugt við það sem leiðtogar Vesturveldanna, Bush Bandaríkjaforseti, Kohl Þýskalandskanslari, Mitterrand, Thatcher, sögðu opinberlega, lögðu þau baka til þunga pressu á þessar þjóðir að vera ekki að þessu brölti. Þær áttu að draga sjálfstæðisyfirlýsingar sínar til baka, sætta sig við að vera innan Sovétríkjanna, semja um aukna sjálfstjórn en gera ekki ýtrustu kröfur. Þetta gekk svo langt að Kohl og Mitterrand sendu sameiginlega bréf til leiðtoga sjálf- stæðisbaráttunnar, Landbergis, eftir að Litháar lýstu yfir sjálfstæði 11. mars 1990, þar sem þeir beinlínis skora á hann opinberlega að draga þetta til baka. Hann neyddist til að frysta sjálfstæðisyfirlýsinguna gegn stuðningi við að aflétta viðskiptabanni Sovétríkjanna. Þeir voru orkulausir, það átti að svelta þá til hlýðni. Á þessu eru þær skýringar að forysturíkið, Banda- ríkin, óttast það að ef þessar þjóðir fara út úr þjóðafang- elsi Sovétríkjanna þá verði það byrjunin á þróun sem endi með því að Sovétríkin leysist upp. Maðurinn sem þeir áttu allt undir og vildu semja við, Gorbatsjov, var forseti Sovétríkjanna. Hann hafði einn höfuðtilgang í tilverunni; að koma í veg fyrir að Sovétríkin leystust upp. Bandaríkjamenn túlkuðu stöðu mála þannig að þeir yrðu að ná fram samningum um endalok kalda stríðsins, afvopnun og samkomulagi um að ekki yrði beitt vopnavaldi í Austur-Evrópu þótt þær þjóðir brytust undan rússneska hernáminu. Þá var þetta gríðarlega mikilvægt mál fyrir Þjóð- verja. Þýskaland var klofið land með einn höfuðtilgang; friðsamlega sameiningu landsins. Þeir töldu sig eiga allt undir Gorbatsjov. Þeir höfðu borgað stórfé til Gor- batsjovs til þess að hjálpa honum efnahagslega svo að hann styddi það að Þýskaland mætti sameinast friðsam- lega og halda áfram í NATO. Síðan komu tilbrigði við þessi sömu stef frá Mitterrand og Thatcher. Hún sagði: Gorbatsjov er lykilmaður í því að við getum bundið enda á kalda stríðið og það má ekkert gera sem gæti valdið því að honum yrði steypt af stóli og harðlínumennirnir komi til baka. Þetta var alvarlegt mál því ef þeir trúðu þessu þá trúðu þeir því að þeir ættu allt sitt undir Gorbatsjov. Ef hann færi frá kæmu harðlínumenn til baka og þá myndi allt ganga til baka og þar með væri kannski hætta á vopnuðum átökum aftur í Austur-Evrópu. Það var þess vegna ekki lítið sem hvíldi á herðum þessara leiðtoga sjálfstæðishreyfinganna. Þeim var sagt að friður og stöðugleiki í Evrópu og möguleikar á að binda enda á kalda stríðið byggðist á því að þeir héldu áfram að vera þrælar í Sovétríkjunum. Undarlegur mishljómur Þetta er mönnum æ betur ljóst núna þegar öll skjölin eru farin að koma fram. En menn með góða tónheyrn heyrðu þó að það var undarlegur mishljómur, annars vegar í ræðunum um lýðræði og sjálfsákvörðunarrétt þjóða og hins vegar þessari undarlegu þögn og þrýst- ingi á bak við tjöldin um það að prinsippin áttu ekki við og realpólitíkin var öll önnur. Stundum braust það út opinberlega. Á árinu 1990 er mikið að gerast. Það eru stofnuð samtök um stöðug- leika og frið í Evrópu og settar af stað ráðstefnur og samningaferli um afvopnun í Vín. Einn parturinn af þessu var að undirbúa samninga austurs og vesturs, fyrrverandi Varsjárbandalagsríkja og vestrænna lýð- ræðisríkja. Ein af þessum ráðstefnum var haldin í Kaup- mannahöfn. Uffe Ellemann-Jensen, sem var nánasti samstarfs- maður minn að því er varðaði það að styðja við bakið á Eystrasaltsþjóðunum, var gestgjafi á þessari ráðstefnu. Þangað koma utanríkisráðherrar hinna nýfrjálsu þjóða. Þeim hafði verið boðið og búast við að fá að tala máli sinna þjóða. En Rússar segja: Ef þessum mönnum verður hleypt inn þá erum við farnir. Og þar með var komin hótunin um að setja allt samningaferlið um endalok kalda stríðsins í uppnám. Uffe lúffaði og þeir voru reknir út. Af því að þetta er á Norðurlöndum, og ég einn af utan- ríkisráðherrum Norðurlanda, þá þýddi það að þegar gestgjafar og stórveldamenn eru búnir þá koma Norður- landamenn. Ég fleygði ræðunni þegar ég heyrði þessi tíðindi og talaði yfir hausamótunum á öllum, bara um málefni Eystrasaltsríkja, og sagði einfaldlega að ef leið- togar vestrænna lýðræðisríkja stæðu í þeirri trú að þeir gætu samið við Sovétríkin um endalok seinni heims- styrjaldar í þessum heimshluta og um frelsun Austur- Evrópu, afvopnunarmál eða hvað annað í samskiptum á kostnað þeirra þriggja smáþjóða sem verst hefðu verið leiknar í stríðinu, hernumdar af báðum aðilum og inn- limaðar í hálfa öld, væri það óþolandi og kæmi ekki til greina. Við vorum allir sann- færðir um það að ef þetta yrði gert á þessum tíma myndu önnur ríki hunskast til að koma í kjölfarið. Jón Baldvin Hannibalsson, þáverandi utanríkisráðherra, í Lettlandi í janúar 1991. Hann svaraði neyðarkalli Eystrasaltsríkj- anna, einn NATO-ráðherra. Ljósmynd/RAX. Framhald á næstu opnu 14 viðtal Helgin 2.-4. september 2011
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.