Fréttatíminn


Fréttatíminn - 02.09.2011, Page 40

Fréttatíminn - 02.09.2011, Page 40
„Við alkóhólistar verðum að horfast í augu við að það er verið að fara mjög illa með unga fólk- ið okkar. Það er verið að ýta því út á jaðarinn í samfélaginu, loka það úti. Það er búið að hamra á því síðan einhvern tímann í grunnskóla að það sé mislukkað, gallað og eigi enga framtíð — nema að það verði eins og Hin. Og Hin eru fólk sem situr stillt í skóla fram undir þrítugt, sleppur út með einhverja BA-gráðu og situr svo á rassinum á einhverjum fundum daginn út og inn. Auðvitað er ekkert að því ef einhverjir vilja verja lífi sínu svona. En að ætla að troða öllum inn í þetta mót — með góðu og illu, fémútum og lyfjagjöfum — er náttúrlega galið,” segir Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ. Samtökin eru nú að undirbúa prógramm til að aðstoða ungt atvinnulaust fólk með áfengis- og vímuefnavanda, sem er með litla menntun og takmarkaða reynslu af vinnumarkaði. „Við eigum að viðurkenna að það er ekk- ert að þessum krökkum. Það er kerfið sem er arfavitlaust,” segir Gunnar Smári. „Fyrir 30-40 árum fóru kannski 20 prósent af hverjum ár- gangi í framhaldsskóla. Nú fara um 70 prósent þangað. Og okkur finnst það ekki nóg. Samt vita allir að framhaldsskólinn hefur ekki þroskast til að taka á móti 70 prósent af fólkinu í stað 20 prósenta. Unga fólkið hefur ekkert breyst. Það er með sömu genin, sömu hæfileikana, orkuna og athyglina og áður. Í stað þess að skólinn teygji sig í átt til áhuga stærri hóps hefur ork- an farið í að reyna að steypa öllum börnunum í sama mót. Börnunum er selt að lífið sé tapað ef þú verður ekki eins og þessi 20 prósent, for- eldrar eru skelfdir til að beita börnin óbærileg- um þrýstingi eða reyna að breyta börnunum með lyfjagjöfum, sálfræðiviðtölum, námsráð- gjöf — hverjum sem er. Fæst af þessu hjálpar fólki til að verða heilli eða betri manneskjur. Þetta gengur meira og minna út á að normal- ísera fólk; breyta öllum í námsráðgjafa sem getur setið við skrifborð eða fundarborð allan daginn og talað og talað og talað.” forgangsröðun leiðinlega fólksins „Það er líka einhver furðuleg forgangsröð i gangi,” heldur Gunnar Smári áfram. „Þetta er forgangsröð leiðinlega fólksins. Hún er sú að fyrst áttu að mennta þig til atvinnuöryggis og svo áttu að rækta sjálfan þig. Það var mað- ur sem sagði að í heiminum væri tvenns kon- ar tegundir af fólki. Fólk sem leiddist það sem það starfaði við; druslaðist í gegnum daginn og hlakkaði til helgarinnar og fríanna og hins veg- ar fólk sem elskar það sem að gerir. Hjá því geta þrír tímar liðið eins og fimm mínútur. Hjá hin- um geta fimm mínútur liðið eins og þrír tímar. Samrt viljum við að krakkarnir okkar noti for- gangsröðun leiðinlega fólksins; mennti sig til einhverrar vinnu en þeytist síðan á milli nám- skeiða í leit að lífsfyllingu eða reyni að lifa í gegnum börnin sín um helgar.” „Þú ert ekki góður blaðamaður vegna þess að þú hafðir góða kennara,” fullyrðir Gunnar Smári allt í einu og ég hrekk við, átta mig á að hann er tala við mig en ekki sjálfan sig eða fólk almennt. Ha, ég? segi ég til að segja eitthvað. „Já, þú. Þú hafðir reyndar frábæra kennara en það er ekki málið. Þú ert góður blaðamaður af því þú ert góður Mikael Torfason. Þú ert besti Mikael Torfason sem ég hef séð. Og ef þú hefðir ekki verið góður Mikael Torfason hefðir þú ekki getað lært neitt af þessum ágætu kennurum. En vegna þess að þú ert góður Mikael Torfason hefðir þú líka orðið góður í hverju sem þú hefð- ir tekið þér fyrir hendurl. Þú hefðir orðið frá- bær rafvirki, ráðgjafi, læknir eða leikari.” Ég veit það nú ekki. „Víst veistu það.” Þögn. „Fólk á líka bera virðingu fyrir vali krakk- anna sem vilja ekki vera í skóla,” byrjar Gunnar Smári aftur. „Það eru um 30 prósent krakkanna sem byrja í framhaldsskóla sem hætta án þess að klára hann. Þetta er aðeins skárra hlutfall en hjá þeim sem byrjuðu á Grámosanum eft- ir Thor, en samt frekar lélegt. Það gengur varð- andi Grámosann að segja að hann sé samt góð bók. Lesendurnir sem gáfust upp séu bara lé- legir lesendur. En það gengur ekki með krakk- ana og framhaldsskólann. Framhaldsskólinn segist ætla að þjónusta alla krakka en gerir það ekki. 30 prósent finna sig ekki í náminu, leið- ist og hætta. Og við eigum ekki að garga á eftir þeim að þeir séu lélegir nemendur. Það er ekk- ert að þessum krökkum. Það er hins vegar eitt- hvað alvarlegt að skólunum.” Jón Gnarr og Ólafur ragnar „Sá sem hættir í framhaldsskóla er ekki lélegur nemandi,” heldur Gunnar Smári áfram. „Ekki frekar en sá sem heldur áfram er lélegt drop- out. Þú ert ekki blaðamaður eða rithöfundur vegna þess að þér tókst ekki að verða BA í fé- lagsfræði. Er það?” Ha, nei. „Nei, þú tókst menntaða ákvörðun um að þú vildir ekki verða eins og formið sem var verið að troða þér ofan í. Þú veltir fyrir þér að kannski ættirðu að láta þig hafa það og breyta síðan forminu innan frá; en þú sást að það var tóm steypa. Þess vegna tókstu töskuna þína og labbaðir út.” Ég veit ekki hvort ég hafi hugsað akkúrat svona. „Eitthvað í þessa áttina alla vega,” fullyrðir Gunnar Smári. „Ef sýndum öllum drengjum eins og þér mynd af Ólafi Ragnari annars vegar og Jóni Gnarr hins vegar og spyrðum hvorum myndir þú vilja líkast; hver heldurðu að niður- staðan yrði? 100 prósent drengjanna myndu velja Jón vegna þess að hann vildi ekki láta gangast undir það þrönga form sem við erum að reyna að troða öllum í. Það myndi enginn velja Ólaf Ragnar með doktorsprófið, prófess- orstöðuna, Parliamentarians for Global Action og allt það. Stelpurnar myndu hins vegar velja Dorrit af því hún lítur út fyrir að vera ólíkinda- tól sem lætur engan segja sér fyrir verkum.” „En í sjálfu sér er ekkert að því að vera Ólaf- ur Ragnar,” segir Gunnar Smári. „Það eru í raun fáir sem eru betri í að vera þeir sjálfir en einmitt hann. En ég á bara við að það geta ekki allir ver- ið eins. Það getur ekki sami mælikvarðinn gilt yfir okkur öll. Það er ekki hollt fyrir hvert okk- ar og það er heldur ekki hollt fyrir allan hóp- inn. Allir hópar verða að vera samsettir úr mis- munandi fólki til að skapa einhverja spennu og orku. Einhver verður að vera svoldið óþekkur, annar dáldið óvirkur og sumir bara normal. Ef við reynum að gera alla normal verður hópur- inn geldur og leiðinlegur. Þessi samfélagstil- raun að gera alla eins er því ekki aðeins skaðleg einstaklingunum heldur líka hættuleg samfé- laginu.” Dásamlegar lendur normalítetsins „Þegar ég var strákur sá maður stolta menn labba inn í sjoppur, með vinnuvetlinga upp úr rassvasanum og kaupa sér pulsu, kók og Dag- blaðið,” heldur Gunnar Smári áfram. „Síðan hefur maður gengið undir manns hönd til að sannfæra verkalýðinn um að hann sé ómögu- legur, lélegt lið sem mistókst að verða félags- fræðingar. Og heldurðu að þetta hafi gert fólk hamingjusamara?” Uhh, nei. „Nei, auðvitað ekki,” endurtók Gunnar þaÐ SKEMMTilEGa Er allTaf SaTT Það er að myndast jaðarhópur í samfélaginu, týnda kynslóðin, sem passar ekki í skólana og fær ekki vinnu og berst við áfengis- og vímuefnavanda. GUNNar SMÁri EGilSSON, formaður SÁÁ, sagði Mikael Torfasyni frá því hvað hann vill gera til að hjálpa strákum og stelpum sem eru nákvæmlega eins og hann og allir hinir gallagripirnir sem stigu út fyrir normið. 08 09 september 2011 september 2011 GallaGripir Til BJarGar TÝNDU KYNSlÓÐiNNi alla þriðjudaga kl. 16.15 munu nokkrir gallagripir bjóða ungu fólki til skrafs og ráðgerðar í vonarhúsinu að Efstaleiti 7. Borgarstjórinn og gallagripurinn Jón Gnarr ríður á vaðið þriðjudaginn 13. September og svo koma þeir koll af kolli þessir drengir allir saman. þótt strákarnir, sem eitt sinn þóttu meingallaðir, ríði á vaðið þá eru bæði stelpur og strákar sem átt hafa í vandræðum vegna áfengis- og vímefnaneyslu hvött til að mæta. þetta er fyrir alla og þegar talið berst að stelpunum segir Bubbi Morthens að þær séu oft ekki jafn gallaðar og strákarnir hlæja flestir en Jón Gnarr bætir því við að þær stæri sig heldur ekki eins mikið af öllu ruglinu. Strákar eru líka oft fyrirferðamiklir og í dag er það þannig að fleiri strákar virðast utanveltu í kerfinu og tolla illa í skóla og eru lengur atvinnulausir en stelpurnar. þetta ræddu gallagripirnir þegar þeir mættu í von til að láta taka þessa mynd af sér. Margir voru að hittast í fyrsta sinn í lengri tíma og Stefán Máni var þarna með krakkana sína sem Bubbi heillaði upp úr skónum og Tolli og Guðmundur Oddur (sem var að koma frá Seyðisfirði) festust á samræðum um listina. Svo sögðu menn sögur af því hvað það var erfitt að hætta að reykja og horfðu á Einar Örn vefja sér sígarettu. En það allt skiptir ekki máli því allir þessir menn hafa reynslu af því að hafa ekki verið eins og fólk er flest og tekist að líta á það sem kost fremur en galla. M YN D : G U N N i G U N N

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.