Fréttatíminn - 02.09.2011, Page 78
Já, ég skall-
aði jörðina af
ákafa. Menn
geta verið í
fjörutíu ár í
hestamennsku
en það breytir
því ekki að
menn detta af
baki.
„Þetta verður á óhefðbundnum
nótum. Ég fæ til dæmis hestamenn-
ina og leikarana Hilmi Snæ og Atla
Rafn til liðs við mig ... við strák-
arnir höfum farið í nokkuð margar
ferðir saman; riðið Kjöl, Arnarfell
og hingað og þangað og ég veit ekki
hvert. Það var í þessum ferðum sem
hugmyndin kviknaði og mér finnst
við hæfi að skapa smá stemningu;
dimma ljósin, akústískt, Roy Ro-
gers við varðeldinn, einn bjór og svo
tökum við nokkur lög,“ segir Helgi
Björns, tónlistarmaður og leikari.
Helgi hefur heldur betur hitt í
mark með Reiðmönnum vindanna,
þar sem hann syngur gömul lög,
ekki síst þau sem eiga sér skír-
skotun til hestamanna og hesta-
mennsku. Hann blæs nú til stórtón-
leika í Háskólabíói 8. október, með
tíu manna hljómsveit og bakradda-
söngvurum. „Já, það er gaman að
flytja þessi lög. Fer mér vel sem
söngvara. En, þarna verður léttur
andi svífandi yfir vötnum, barinn
opinn, afslöppuð stemning, söngur
og gleði.“
Hestamennska getur reynst
skeinuhætt og nýverið datt Helgi af
baki, svo illa að hann nefbrotnaði.
„Já, ég skallaði jörðina af ákafa.
Menn geta verið í fjörutíu ár í hesta-
mennsku en það breytir því ekki að
menn detta af baki. Þetta eru lifandi
skepnur.“
Tvennir tónleikar eru fyrirhug-
aðir og hefst miðasala 8. september.
Helgi hefur átt í deilum við Hörpu
vegna ætlaðra samningsbrota húss-
ins. „Ég er ekki að fara í Hörpuna
með þessa tónleika. Hefði kannski
átt heima þar. Í staðinn verð ég með
tvenna tónleika í stað þess að halda
eina í Hörpu. Það er bara fínt.“
tónleikar Helgi, Hilmir Snær og atli rafn í roy rogerS-Stemmningu á tónleikum
Helgi Björns í Háskólabíói
Signý guðlaugSdóttir Hannar þrívíddarHeima
Þegar tökulið-
ið okkar kom
til baka komu
allir beint til
mín og áttu
ekki orð yfir
Íslandi.
S igný fór í heimsreisu eftir að hún útskrifaðist frá Menntaskólanum í Hamrahlíð og ferðaðist meðal annars
um Nýja-Sjáland. Ári síðar ákvað hún að
læra ljósmyndun á Nýja-Sjálandi en skipti
síðan yfir í stafræna hönnun (Digital Media
Design). Því námi lauk hún með hæstu
einkunn árið 2008. Í kjölfarið sótti hún um
starf hjá Weta Digital og fékk vinnu þar
tveimur mánuðum seinna enda berst fyrir-
tækinu fjöldi umsókna í
hverri viku.
„Eftir að hafa búið á Nýja-
Sjálandi í fjögur ár ákvað ég
að flytja heim til Íslands og
eyða tíma með fjölskyldunni
og vinum. Eftir rúmt ár á Ís-
landi ákváðum við kærastinn
minn að flytja aftur til Nýja-
Sjálands. Mér var þá boðin
vinna sem 3D Artist hjá Weta
Digital þar sem ég er núna
að hanna og smíða þrívíddar-
módel fyrir The Hobbit.“
Hjá Weta Digital hefur
Signý unnið við gerð mynd-
anna Avatar, District 9, The
Lovely Bones, Rise of the
Planet of the Apes, Tinna og
nú The Hobbit. „Við byrjum
svo á fleiri skemmtilegum
verkefnum fljótlega, þar á meðal Avatar 2
og Prometheus.“ Ridley Scott, leikstjóri
Prometheus, tók upphafsatriði myndarinnar
við Heklurætur í sumar. „Þegar tökuliðið
okkar kom til baka komu allir beint til mín
í vinnunni og áttu ekki orð yfir Íslandi og
fannst meðal annars ótrúlegt að hafa þurft
að vera með heyrnartól við tökur vegna
hávaðans í Dettifossi. Þeim fannst þetta
stórmerkilegt.“
Leikstjórinn Peter Jackson er einn
stofnenda og eigenda Weta Digital og fyrir-
tækið hefur nánast lagt undir sig Miramar-
hverfið í höfuðborginni Wellington. „Þetta
er stórt fyrirtæki og í þrívíddarhlutanum
einum starfa um 900 manns. Við búum flest
í hverfinu og ég bý í sömu götu og verið er
að taka The Hobbit og get
stundum fylgst með stúdíó-
tökunum út um gluggann
hjá mér.“
Signý segist vera í algeru
draumastarfi þarna. Verk-
efnin eru skemmtileg auk
þess sem hjá fyrirtækinu
er mikið lagt upp úr því að
listafólkinu þar líði sem
best. „Vinnudagarnir eru
mjög langir en það er varla
hægt að kvarta þar sem við
erum bæði með kokka og
þjóna og það er eldað ofan
í og stjanað við mann alla
daga. Á hverjum föstu-
degi er haldin veisla, „beer
o´clock“ fyrir allt starfsfólk-
ið. Fyrirtækið heldur líka
mjög flott partí reglulega.
1. janúar kom James Cameron til dæmis
og hélt 3.000 manna partí til þess að þakka
öllum sem unnu við Avatar fyrir vel unnin
störf. Hann vildi kynnast starfsfólkinu og
láta okkur vita að við færum fljótlega að
vinna fyrir hann við Avatar 2 og 3 sem eiga
að koma út 2014 og 2015.“
Signý Guðlaugsdóttir býr og starfar á Nýja-Sjálandi þar sem hún vinnur nú við hönnun á þrívíddarheimi
væntanlegrar stórmyndar um Hobbitann, sem eins og flestir vita er forleikurinn að Hringadróttinssögu.
Hún bjó einnig til stóran hluta þrívíddarheims Rise of the Planet of the Apes og vann við Avatar eftir James
Cameron en leikstjórinn hefur lýst yfir áhuga sínum á að fá sama fólk til þess að vinna að Avatar 2.
Signý Guðlaugsdóttir vinnur langa vinnudaga í Wellington þar sem hún hannar
þrívíddarheima fyrir stórmyndir á borð við Avatar og The Hobbit.
Skapar heimsmynd
Tinna og Hobbita
Halldór í messi?
Spennan vegna stóru Frankfúrtar-
bókamessunnar, þar sem Ísland verður í
hlutverki gestgjafa, eykst nú dag frá degi
innan hins íslenska bókmenntageira, en
mánuður er í hátíðina. Sá sem er potturinn
og pannan í undirbúningi er Halldór
Guðmundsson bókmenntafræðingur og
rithöfundur og álagið virðist vera farið að
segja til sín. Halldór skrifaði dularfull skila-
boð til vina sinna á Facebook
í gær, svohljóðandi: „Er líf
eftir messu? Var líf fyrir
messu? Skyldi mér verða á
í messunni? Hver les mér
þá messuna? Verður
messufall? Er ég
bara messagutti?
Eða er þetta allt
í messi? Lionel
Messi? Ætti
ég kannski
að sms-a
um
þetta?“
„Á mánudag verður
tekið úr lás,“ segir Bragi
Valdimar Skúlason. Vefur
Baggalúts, fjöllistahóps,
verður opnaður eftir
sumarfrí nú á mánudag.
Meginþunginn mun hvíla á
herðum Braga því félagar
hans mæta haltir til leiks;
Guðmundur Pálsson út-
varpsmaður leggur líklega
eitthvað til málanna, en
hann er í fæðingarorlofi og
má því búast við að hann sé
í tilfinningalegu uppnámi,
og Karl Sigurðsson er
kominn í bólakaf í pólitíkina
sem borgarfulltrúi Besta
flokksins. Bragi
segir spurður að Karl hafi
skriftarleyfi þótt hann muni
líkast til misnota aðstöðu
sína og hygla sínum flokki.
„Klárlega,“ segir Bragi sem
lofar því hins vegar, þrátt
fyrir þessi ljón á veginum,
að vefurinn gangi í endur-
nýjun lífdaga eftir tiltekt og
útlitsbreytingar.
Baggalútur braggast
365 ætlar sér stóra hluti
Í dag fer fram fjölmiðlamót í golfi á Sand-
gerðisvelli og ætlar fyrirtækið 365 sér
stóra hluti. Keppt verður milli liða, auk
einstaklingskeppni, og munu 24 mæta til
keppni frá 365. Logi Bergmann Eiðsson,
sem fer fyrir þeim hópi, segir að mikill
uppgangur hafi verið í golfíþróttinni innan
fyrirtækisins. „Allt í gangi. Hér er fínn
golfklúbbur. Við erum stærst,“ segir Logi
sem er með 10 í forgjöf. „Þetta hefur verið
vont golfsumar. Ég var í átta en er nú
kominn í tíu. Verður ekki verra því menn
geta ekki hækkað nema um tvo á leiktíð.“
RÚV og Mogginn mæta einnig fjölmennir
til leiks, með tíu til fimmtán manna lið.
Fjölmiðlamótið hefur verið haldið í um 20
ár og er meðal annars merkilegt fyrir það
að spilað hefur verið á velflestum 18 holu
golfvöllum landsins.
Reiðmenn vindanna í Háskólabíói. „Það fer mér vel að
flytja þessi gömlu lög,“ segir Helgi Björns sem hefur
hitt beint í mark með hestasöngvum sínum.
Signý átti langt spjall við James
Cameron og benti honum meðal
annars á ýmislegt sem hún telur
að megi breyta í Avatar 2 og 3.
Fram koma: Páll Óskar Hjálmtýsson söngvari, Monika Abendroth hörpuleikari,
Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú) söngvari, Anna Guðný Guðmundsdóttir
píanóleikari, Sigurður I. Snorrason klarinettleikari, Davíð Ólafsson söngvari,
Stefán Helgi Stefánsson söngvari, Helgi Már Hannesson píanóleikari, Friðrik
Ómar Hjörleifsson söngvari, Jögvan Hansen söngvari, Jón Jónsson söngvari,
Gospeltónar, Jóhann Friðgeir Valdimarsson söngvari
og Gréta Salóme Stefánsdóttir fiðluleikari.
Öll vinna við tónleikana er án endurgjalds og mun allur aðgangseyrir renna beint í
styrktarsjóð fyrir eiginmann og börn Hönnu Lilju. Einnig verður tekið á móti
frjálsum framlögum.
www.facebook.com/styrktartonleikar.honnu.lilju
GUÐRÍÐARKIRKJU GRAFARHOLTI, MÁNUDAGINN 5. SEPTEMBER,
KL. 20.30. MIÐAVERÐ KR. 3.000. MIÐASALA FER FRAM Á MIDI.IS
OG VIÐ INNGANG GUÐRÍÐARKIRKJU.
STYRKTARSJÓÐUR:
0322-13-700345 KT. 080171-5529
Minningar- og
styrktartónleikar
Hönnu Lilju Valsdóttur
og barna
58 dægurmál Helgin 2.-4. september 2011