Fréttatíminn


Fréttatíminn - 09.09.2011, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 09.09.2011, Blaðsíða 2
TILBOÐ YFIR 30 GERÐIR GASGRILLA Á TILBOÐIHlíðasmára 13, Kóp - S. 554 0400 Er frá Þýskalandi www.grillbudin.is FULLT VERÐ 94.900 69.900 Þetta er ekki fólk sem verður okkur til skammar á erlendri grund heldur rjómi þessa samfé- lags. Nefnd mennta- og menning- armálaráðherra um eignar- hald á fjölmiðlum áætlar að skila tillögum í frumvarps- formi fyrir lok mánaðarins. „Það voru þau tímamörk sem við settum okkur og að öllu óbreyttu munu þau standast,“ segir Elfa Ýr Gylfadóttir, varaformaður nefndarinnar. Nefndin hefur undan- farnar vikur fundað með hagsmunaaðilum á fjöl- miðlamarkaði og að sögn Elfu hafa mjög mismunandi sjónarmið komið fram. Samkvæmt bráðabirgða- ákvæði fjölmiðlalaganna, sem Alþingi samþykkti 15. apríl í vor, átti nefndin að skila tillögum um „viðeig- andi takmarkanir á eignar- haldi á fjölmiðlum“ fyrir 1. júní 2011. Dráttur varð hins vegar á skipan nefndarinnar og umfang verksins varð meira en gert var ráð fyrir og því töfðust skilin. Þetta er ekki eina atriðið sem ekki er samkvæmt fjöl- miðlalögunum frá því í vor. Í lögunum er kveðið á um að stjórnir einkahlutafélaga og hlutafélaga fjölmiðlafyrir- tækja skuli senda fjölmiðla- nefnd nýjustu hlutaskrá sína fyrir 1. júní 2011 eða sæta ella dagsektum. Vandamálið við þetta ákvæði er að fjöl- miðlanefndin tók ekki til starfa fyrr en 1. september og getur því fyrst nú tekið við þessum lögbundnu upp- lýsingum. Eiríkur Jónsson, for- maður fjölmiðlanefndarinn- ar og dósent við lagadeild Háskóla Íslands, segir að nefndin hafi fundað einu sinni og að hún muni á næstu vikum senda út bréf til fjölmiðlafyrirtækja til að minna á þetta ákvæði laganna. -jk  fjölmiðlalög NefNd um eigNarhald fjölmiðla Tillögur um takmarkanir á eignarhaldi fjölmiðla á leiðinni Nefnd um eignarhald á fjölmiðlum Karl Axelsson lögmaður, formaður nefndarinnar, skipaður af ráðherra. Elfa Ýr Gylfadóttir fjölmiðlafræðingur, varaformaður, skipuð af ráðherra. Björn Þorláksson, fulltrúi VG. Einar Már Sigurðsson, fulltrúi Samfylkingarinnar. Svanhildur Hólm Valsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Salvör Gissurardóttir, fulltrúi Framsóknarflokksins. Baldvin Björgvinsson, fulltrúi Hreyfingarinnar. Vinsældir borgar- stjórans dvína Vinsældir Jóns Gnarr, borgar- stjóra í Reykjavík, hafa dvínað mikið frá því í fyrra ef marka má nýja könnun MMR. Þar kemur fram að 61,7% þeirra sem tóku afstöðu voru óánægð með hann en í ágúst 2010 var óánægju- hlutfallið 22,4%. MMR kannaði ánægju fólks með lífið og tilveruna. Íslendingar virðast enn sem fyrr almennt ánægðir með sumarfríið sitt, vinnuna sína og nágranna. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 91,0% ánægð með nágranna sína, 90,2% sögðust ánægð með sumarfríið sitt og 89,9% sögðust ánægð með vinnuna sína. Breytingarnar, frá fyrri könnun MMR í ágúst 2010, eru því ekki miklar. Þá sögðust 92,9% þeirra sem tóku afstöðu vera ánægðir með nágranna sína, 91,9% voru ánægð með sumarfríið sitt og 91,2% voru ánægð með vinnuna sína. Veðrið í sumar hefur þó ekki gert sömu lukku og veðrið í fyrra því 62,0% þeirra sem tóku afstöðu núna sögðust vera ánægð með það borið saman við 94,7% fyrir ári. - jh Landsvirkjun fær betri kjör en ríkissjóður Landsvirkjun tilkynnti um sölu á skuldabréfum að fjárhæð 63,2 milljónir Bandaríkjadollara, jafn- virði u.þ.b. 7,3 milljarða króna á þriðjudaginn. Bréfin eru til 7 ára og eru þau seld á 4,3% ávöxtunarkröfu. Fyrir rúmri viku tilkynnti Landsvirkjun um 70 milljón dollara útgáfu til tíu ára. Ber sú útgáfa 4,9% vexti. Fyrirtækið hefur því aflað ríflega 133 milljóna dollara á síðustu dögum. Fénu verður meðal annars varið til framkvæmda á Norðausturlandi sem áætlað er að hefjist á næsta ári en að hluta er um endurfjármögnun að ræða. Greining Íslandsbanka vekur athygli á því hve hagstæðra kjara Landsvirkjun nýtur en fyrirtækið fær betri kjör en ríkissjóður Íslands. Krafa 5 ára dollara- bréfs ríkissjóðs var 5,2% í ágústlok. - jh Fjármálablindir Íslendingar Stofnun um fjármálalæsi, ásamt efnahags- og viðskiptaráðuneyti, Samtökum atvinnulífsins og Samtökum iðnaðarins, efna til ráðstefnu um fjármálalæsi í Þjóðmenningarhúsinu í dag, 9. september, kl. 9.15 – 14.30. Ráðstefnunni er ætlað að stuðla að átaki um að bæta fjár- málavitund í samfélaginu og finna leiðir sem best eru til þess fallnar að efla fjármálalæsi á Íslandi. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn meðan húsrúm leyfir. Í tilkynningu Stofnunar um fjármálalæsi segir að niðurstöður rannsókna sýni að Íslendingar hafi almennt litla þekkingu á hugtökum og eðli fjármála. Á meðal fyrirlesara er dr. Adele Atkinson, einn helsti sérfræðingur heims um fjármálalæsi, en hún vinnur við rannsóknir og stefnumótun á fjármálalæsi hjá OECD. - jh Hvalskipum fleytt upp í fjöru Hvalskipunum Hval 5 og Hval 6 hefur verið búin lega í fjörunni skammt frá Hvalstöðinni í Hval- firði. Skipunum var síðastliðið þriðjudagskvöld fleytt á flóðinu upp í fjöruna með talsverðum tilfæringum, að því er fram kemur í Skessuhorni. Meðal annars voru öflugar beltagröfur notaðar til verksins. Skipin, sem til fjölda ár höfðu legið við bryggju í Reykjavík, voru viku áður dregin af dráttarbátnum Magna frá Reykjavík upp í Hvalfjörð. Áður en þeim var fleytt frá bryggju í Hvalfirði var búið að moka upp úr fjörunni í legu fyrir þau. Þessum skipum var sökkt af Grænfriðungum í Reykjavíkurhöfn fyrir um aldarfjórðungi. - jh S ko, ég nenni ekkert að tala við þig ef Bjarkartónleikarnir eiga að vera einhver aukasetning. Ég sá hana úti í Manchester og fólkið þar sturlaðist við hverja hennar hreyfingu. Í tímaritunum Q og Mojo er hún efst á baugi og lofuð í hástert fyrir tónleika sína og væntanlega plötu. Hún verður með aukatónleika í Hörpu og miðasala hefst í dag á midi.is og harpa. is,“ segir Grímur Atlason, framkvæmda- stjóri Iceland Airwaves. Ekki stóð til að hafa Björk innan sviga. Hún hefur nú þegar selt um 6.000 miða á sína tónleika sem verða í Hörpu. Grímur er kátur. Í vikunni varð uppselt á Iceland Airwaves. „Síðustu ár hefur verið uppselt á Airwaves og í fyrra vorum við ánægð. Þá var sett met, uppselt í kringum 25. sept- ember. Við erum þremur vikum fyrr á ferðinni núna þótt hátíðin sé talsvert stærri og við að selja fleiri miða. Höfum bætt við tónleikastöðum og þar skiptir Harpa mestu máli; notum alla salina þar með einum eða öðrum hætti.“ Grím skortir hvergi orð þegar hann lýsir tónlistarhátíðinni sem er handan við hornið en honum vefst þó tunga um tönn aðspurð- ur hvað sæti mestum tíðindum. Það fer eftir því hvernig á það er litið. „Um 150 íslenskar hljómsveitir koma fram. Rjóminn af því sem við Íslendingar eigum, fersk bönd, hljóm- sveitirnar sem munu bera hróður Íslend- inga víða. Ekki sjálfskipaðir sendiherrar á launum sem eigna sér verk annarra heldur lið sem fer um heiminn og leggur hann undir sig. Þetta er ekki fólk sem verður okkur til skammar á erlendri grund heldur rjómi þessa samfélags.“ Með herkjum tekst að stöðva Grím í þessari ræðu og beina sjónum að erlendum gestum og hann tekur fram að hann nefni af fullkomnu handahófi John Grant, Beach House, tUnE-yArDs, Si- nead O´Connor, Plastic Ono Band, James Murphy og Karkwa frá Kanada. Umfangið er mikið: Um 250 tónleikar, 200 gerningar utan dagskrár. „Um ellefu hundruð listamenn koma fram, 6.000 gestir eru með miða. Þeir kaupa þó ekki allir miða; listamennirnir fá miða, 150 blaða- menn koma erlendis frá og kaupa sig inn en við bjóðum nokkrum tugum öðrum auk fólks úr tónlistargeiranum.“ Grímur segir hagræn áhrif mikil; upp- gjör liggur ekki fyrir en seldir miðar eru um 4.000 og kosta að meðaltali um 12 til 13 þúsund krónur. „Miðasalan sjálf skilar í kringum 50 milljónum og síðan eru ýmsir tekjupóstar aðrir; helstu styrktaraðilar eru Reykjavíkurborg og Icelandair. Í fyrsta skipti fengum við fimm milljóna króna framlag á fjárlögum, sem lýsir skilningi stjórnvalda. Samanlögð velta er 70 milljónir en um 100 milljónir skila sér beint í ríkiskassann í formi skatta vegna þessarar hátíðar. Setja má margfeldisstuðul; varlega áætlað eru 3.000 manns að kaupa flug, hótel, bjór og svo framvegis auk Íslendinganna sem mæta. Samanlagt 6.000 manns og bærinn iðar af lífi. Hvað þýðir það fyrir reykvískt hagkerfi?“ Í könnun sem gerð var í fyrra kom í ljós að hátíðin skilaði til samfélags- ins um milljarði. Nú koma um fimm til sex hundruð fleiri erlendis frá. Jakob Bjarnar Grétarsson ritstjorn@frettatiminn.is  icelaNd airwaveS SamaNlögð velta er rúmlega 70 milljóNir Yfir hundrað milljónir beint í kassa ríkissjóðs Í vikunni seldist upp á Iceland Airwaves. Framkvæmdastjóri tónlistarhátíðarinnar, Grímur Atlason, er kampakátur og má vera það. Fyrir dyrum standa 250 tónleikar, ellefu hundruð listamenn koma fram, sex þúsund gestir mæta og Grímur velkist ekki í vafa um að hátíðin er mikilvæg fyrir Steingrím Joð og ríkiskassann. Grímur Atlason Býr sig undir að taka á móti sex þúsund gestum á Iceland Airwaves. Uppselt er á hátíðina sem er stærri en nokkru sinni fyrr. Ljósmynd/Hari. 2 fréttir Helgin 9.-11. september 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.