Fréttatíminn - 09.09.2011, Blaðsíða 45
matur 41Helgin 9.-11. september 2011
Nýtt
Gráða og feta
ostateningar í olíu
Gráða & feta ostateningar henta
vel í kartöusalatið, á pítsuna,
í sósuna, salatið, ofnréttinn og
á smáréttabakkann.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
ms.is
Gráða & feta
ostateningar í olíu
Nýtt
Pylsumolar
Tvöföld ánægja
Tvíhleypa. Ef nota á þessar klassísku
vínarpylsur er skemmtilegt að fönka
partíið aðeins upp með tvíhleypu,
þ.e. að setja tvær í hvert brauð og
toppa þær svo með því sem gott
þykir. Auk þess sem hægt er að
færa fyrir því rök að þar með minnki
kolvetnisinntakan um helming en
próteinið aukist um helming. Gott
fyrir þá sem hugsa um línurnar.
Úti á landi fólkið
Sinnepið er svo það mikilvægasta
og það á að setja það ofan á. Það er
eitthvað sem landsbyggðarfólkið er
ekki alveg að fatta, treður öllu undir.
Sinnepið á að vera það fyrsta og það
síðasta sem bragðlaukarnir finna.
Svo á ekki að setja kokteilsósu á py-
lsu án þess að athuga vilja neytand-
ans. Alla vega hlusta eftir linmæli
Sunnlendinga áður en þeirri bleiku er
skellt undir.
Heimsókn í
vagninn
Þeir sem leggja metnað sinn í að
afgreiða góðar pylsur úr búllum
og vögnum í bæjum landsins
eiga það skilið að við færum
neysluna á hærra plan. Gott er
að byrja á því hvernig pantað er.
Það er náttúrlega klassík
að biðja um eina með öllu en
kannski ekki það frumlegasta.
Hví ekki frekar að tala um
slöngu. „Láttu mig fá eina slöngu
með tómat, sinnepi og steiktum“
hljómar bara betur. En ekki biðja
um heitan hund, það er ekki
fyndið.
On the road
Vegasjoppur landsins eru næstum
því búnar að eyðileggja pylsumenn-
ingu landans. Það er liðin tíð að
hægt sé að biðja um eina með öllu
og fá þessa gömlu góðu, hitaða
hálfan dag í vatnsbaði og dúnmjúkt
brauð með SS-pylsusinnepi ofan á.
Það hvarf endanlega með gamla
Staðarskálanum. Í staðinn fær
maður bensínstöðvapullu í flatt
hart ristað brauðið og þarf að setja
misgóðar sósur á sjálfur. Ekki góð
þróun
Ekki þarf heldur að taka fram að það
tekur lengri tíma að elda feitan drjóla
úr Pylsumeistaranum en þessar klassísku.