Fréttatíminn - 09.09.2011, Blaðsíða 6
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
www.ms.is
Með D-vítamíni sem hjálpar
þér að vinna kalkið úr mjólkinni.
Meira fjör með Fjörmjólk!
Nú í nýjum
umbúðum
með
skrúftapp
a
Ókeypis lögfræðiráðgjöf Lögréttu
E rindi okkar er einfalt. Við óskum eftir því að Þjóðleikhúsið fái að setja upp sambærilegt skilti og
til vara óskum við eftir því að Þjóðleik-
húsið fái afnot af auglýsingaskiltinu. Til
þrautavara að skiltið verði fjarlægt,” segir
Ari Matthíasson, framkvæmdastjóri Þjóð-
leikhússins.
Ari hefur sent skipulagsráði Reykjavík-
urborgar erindi vegna auglýsingaskiltis
Hörpu sem blasir við vegfarendum þeim
sem leið eiga um Sæbraut og hjá Hörpu.
Þetta skilti hefur áður komið til tals hjá
skipulagsráði en það var sett upp á bygg-
ingartíma Hörpu, þá sem skilti Íslenskra
aðalverktaka. Í fundargerðum getur að
líta erindi björgunarsveitarinnar Ingólfs
um að fá að setja segl sitt á skiltið en því
var hafnað á þeim forsendum að skiltið
væri til bráðabirgða. Ferðafélag Íslands
óskaði einnig eftir afnotum af skiltastæð-
inu en því erindi var frestað á tveimur
fundum og Þjóðleikhúsið fór þess einnig
á leit að það fengi að auglýsa sýningu
sína á Lé konungi á sínum tíma. Að sögn
Ara segir hann það því hafa komið þeim
hjá Þjóðleikhúsinu nokkuð á óvart þegar
á sama stað, í borgarlandi, væri komið
skiltastæði að því er virtist til að vera.
Hann leyfði sér að efast um að það stæðist
skiltareglugerð.
Ekki náðist í Pál Hannesson, formann
skipulagsráðs, en að því er Fréttatíminn
kemst næst mun hann vísa málinu áfram
til skipulagsráðs. Þar á Gísli Marteinn
Baldursson sæti. Hann segir einsýnt að
ekki gangi að hending ráði því hvar slík
skilti eru sett upp. Gísla minnir að þetta
tiltekna skilti sé innan deiliskipulags
Hörpu. „En ég skal ekki fullyrða neitt
um þetta. Ef það er það ekki, þá er skiltið
ólöglegt; það má ekki setja slíkt upp án
þess að fá tilskilin leyfi. Við sjáum víða,
þar sem ríkir sterakapítalismi, hversu
mikil sjónmengun getur verið af slíkum
skiltum – án þess að ég sé að segja að svo
sé um þetta.“
Jakob Bjarnar Grétarsson
ritstjorn@frettatiminn.is
Í Lögfræðiþjónustu Lögréttu veita laganemar á
3.-5. ári almenningi endurgjaldslausa lögfræðiað-
stoð í samstarfi við lagadeild Háskólans í Reykja-
vík. Sigríður Marta Hjartardóttir, framkvæmda-
stjóri Lögfræðiþjónustu Lögréttu, segir ljóst að
vitundarvakning hafi orðið á síðustu árum og
aukinn áhugi hjá fólki að leita réttar síns. „Við teljum endurgjaldslausa lögfræðiað-
stoð okkar svara brýnni eftirspurn þjóðfélagsins,“ segir hún. „Við verðum á Vísinda-
vöku Rannís 23. september næstkomandi og þar munum við kynna þjónustu okkar.
Þá veitum við einnig nemendum í framhaldsskólum á landinu réttindafræðslu.
Réttindafræðslan okkar kallast Lögfróður og er sambærileg við fræðsluna sem
læknanemar veita nemendum í framhaldsskólum, en sú fræðsla kallast Ástráður.“
Hægt er að hafa samband við Lögfræðiþjónustu Lögréttu í gegnum netfangið
logfrodur@ru.is, síma 777-8409 eða mæta í aðalinngang Háskólans í Reykjavík á
miðvikudögum kl. 17-20 þar sem laganemar taka á móti fólki. -jh
Fjórar tilnefningar til
fjölmiðlaverðlauna
umhverfisráðuneytisins
Dómnefnd hefur tilnefnt fjóra til
fjölmiðlaverðlauna umhverfisráðu-
neytisins sem veitt verða í fyrsta sinn
16. september næstkomandi, á Degi
íslenskrar náttúru, að því er fram kemur
í tilkynningu ráðuneytisins. Tilnefnd til
verðlaunanna eru: a) Morgunblaðið fyrir
upplýsandi og vandaða umfjöllun um
áhrif loftslagsbreytinga á íslenska nátt-
úru í greinaflokknum Hamskipti lífríkis
og landslags. Greinarnar skrifuðu blaða-
mennirnir Guðni Einarsson og Rúnar
Pálmason en þeim til aðstoðar var Elín
Esther Magnúsdóttir sem vann grafík,
Sigurbjörg Arnarsdóttir og Ingólfur
Þorsteinsson sem brutu flokkinn um og
flestar ljósmyndir tóku Ómar Óskarsson
og Ragnar Axelsson. b) Ragnar Axelsson
ljósmyndari fyrir að beina sjónum að
náttúruvernd og samspili manns og
náttúru í verkum sínum. c) Steinunn
Harðardóttir stjórnandi þáttarins Út um
græna grundu á Rás 1 fyrir umfjöllun um
íslenska náttúru, umhverfið og ferða-
mál. d) Svavar Hávarðsson blaðamaður
Fréttablaðsins fyrir ýtarlega
umfjöllun um mengun sem
ógnar náttúru og fólki. -jh
UppskErUhátíð FUll borg matar Frá miðvikUdEgi til sUnnUdags
Matarmarkaður í miðborg Reykjavíkur
Matar- og uppskeruhátíð tileinkuð ís-
lenskum mat og matargerð, Full borg
matar/Reykjavík Real Food Festival,
verður haldin í fyrsta sinn í borg-
inni frá miðvikudegi til sunnudags,
14.-18. september næstkomandi.
Markmið hátíðarinnar er að kynna
íslenskan mat og matarhefðir á léttan
og skemmtilegan hátt fyrir öllum
sem áhuga hafa á góðum og girnileg-
um mat, að því er fram kemur á síðu
Samtaka iðnaðarins. Hátíðin er ætluð
allri fjölskyldunni en boðið verður
upp á markað í miðborg Reykjavíkur
þar sem hægt verður að kaupa, prófa
og smakka ýmsar matvörur beint frá
framleiðendum og fá um leið að vita
hvernig maturinn er framleiddur og
hvaðan hann kemur.
„Veitingastaðir í borginni taka
þátt í hátíðinni með því að bjóða
upp á sérstaka hátíðarmatseðla þar
sem allir ættu að finna eitthvað sem
hentar þeirra smekk og fjárhag. Veit-
ingastaðir sem þykja útfæra bestu
matseðlana fá svo heiðursverðlaun í
lok hátíðar en veitt verða verðlaun í
þremur flokkum, besti hátíðarmat-
seðill, besta brasserí og besta fjöl-
skyldumátíðin,“ segir enn fremur.
Boðið verður upp á fjölda viðburða
en fyrirtæki, stofnanir og félagasam-
tök standa fyrir eigin uppákomum
sem tengjast mat og matarmenn-
ingu. Meðal viðburða á hátíðinni
verða Matardagar Matvís þar sem
landslið matreiðslumeistara velur
matreiðslumann og matreiðslunema
ársins.
Bakhjarlar hátíðarinnar eru
Reykjavíkurborg, Samtök iðnaðarins,
Markaðsráð kindakjöts, Iceland res-
ponsible Fisheries, Sölufélag garð-
yrkjumanna og Svínaræktarfélag
Íslands.
Hægt
verður
að kaupa,
prófa og
smakka.
dEiliskipUlag ÞjóðlEikhúsið vill skilti hörpU í bUrtU
Umdeilt auglýsingaskilti
Hörpu við Sæbrautina
Umdeilt auglýsingaskilti Hörpu. Þjóðleikhúsið hefur sent erindi til skipulagsráðs þar sem farið er fram á að fá að setja upp
sambærilegt skilti, eða þá afnotarétt, eða þá að skiltið verði fjarlægt. Ljósmynd/Hari
Við sjáum
víða,
þar sem
ríkir stera
kapítalismi,
hversu mikil
sjónmengun
getur verið
af slíkum
skiltum.
Skipulagsráð Reykjavíkur verður að taka afstöðu til erindis framkvæmdastjóra Þjóðleikhússins
sem efast um að tilskilin leyfi séu fyrir auglýsingaskilti Hörpu. Hann krefst jafnræðis með stofn-
unum tveimur; sambærilegt skilti eða aðgengi að skiltinu og til þrautavara að það fari.
Kristján Valur vígslubiskup
Kristján Valur Ingólfsson verður næsti vígslu-
biskup í Skálholti. Hann tekur við af Sigurði
Sigurðarsyni sem lést á liðnu ári. Í síðari
umferð vígslubiskupskjörsins fékk Kristján
Valur 80 atkvæði en Sigrún Óskarsdóttir 61
atkvæði. Á kjörskrá voru 149. Greidd voru 142
atkvæði. Einn seðill var auður. Kristján Valur
fæddist árið 1947. Hann var vígður árið 1974
sem sóknarprestur í Raufarhafnarprestakalli.
Hann hefur einnig þjónað sem farprestur
þjóðkirkjunnar í Ísafjarðarprestakalli, sóknar-
prestur í Grenjaðarstaðarprestakalli og rektor
Skálholtsskóla. Hann var lektor í helgisiðafræði
við guðfræðideild Háskóla Íslands frá 2000-
2008. Undanfarið hefur hann gegnt starfi
verkefnisstjóra helgisiða og kirkjutónlistar á
Biskupsstofu og þjónað sem sóknarprestur á
Þingvöllum. -jh
Nýr eigandi Hótel Hamars
Landsel ehf., eignarhaldsfélag í eigu Arion
banka, hefur gengið frá sölu á 70% hlut sínum
í Hótel Hamri, skammt frá Borgarnesi, að því
er Skessuhorn greinir frá. Sigurður Ólafsson
kjötiðnaðarmeistari er nýr eigandi hlutarins
og hefur hann tekið við rekstrinum. Hjónin
Hjörtur Árnason og Unnur Halldórsdóttir eiga
enn 30% hlut í hótelinu en þau hafa starfað
við það frá upphafi. Unnur er hætt störfum en
Hjörtur aðstoðar nýjan eiganda við að setja sig
inn í reksturinn út september. -jh
6 fréttir Helgin 9.-11. september 2011