Fréttatíminn - 09.09.2011, Page 29
Leitið upplýsinga á auglýsingadeild
Fréttatímans í síma 531 3310 eða á
valdimar@frettatiminn.is
Fréttatímanum er dreift á heimili á höfuðborgar-
svæðinu og Akureyri og í lausadreifingu um allt land.
Dreifing á bæklingum og fylgiblöðum með
Fréttatímanum er hagkvæmur kostur.
tuttugu ára. Það er stutt ljóð um
hana í Ísfrétt og þegar ég fagnaði
því að hafa afhent handritið að
fyrstu skáldsögunni minni, Regn-
boga í póstinum árið 1996, fékk ég
mér tattú af sverði Freys á hægri
kálfann. Ég efast heldur ekki um
að ég eigi eftir að skrifa einhvern
tíma verk út frá þeirri reynslu sem
ég varð fyrir í Úganda í fyrra. Í
Wales á dögunum hitti ég líka hina
áttræðu Pat sem ég veit að á eftir
að birtast í einhverri sögu eftir
mig. Hún býr ein og þegar hún þarf
einhvern að tala við fer hún út að
hliðinu sínu með sultukrukku og
biður einhvern að opna hana fyrir
sig. Enginn neitar svona geðugri
konu um það og allir vilja staldra
við stutta stund til að spjalla. Ég
sendi Pat Brekkukotsannál á ensku
í pósti í gær en hefði vitaskuld átt
að færa henni reiðinnar býsn af
sultukrukkum með vel áskrúfuðu
loki.“
Fylgistu með ungum kvenrit-
höfundum? Sem eru reyndar ekki
margir.
„Þetta er spurning um gæði, ekki
magn, og þær sem hafa skotið upp
kollinum undanfarin ár eru býsna
færar.“
Af hverju heldurðu að það séu
ekki fleiri ungar konur að skrifa
bækur?
„Blaðamaður nokkur hélt því
fram við mig að þær væru þjak-
aðri af meiri fullkomnunaráráttu
en karlmenn. Þegar handritum
kvenna væri hafnað reyndu þær
hvað þær gætu að betrumbæta
handritið og kæmu svo aftur eða
hættu við útgáfuna en strákarnir
gæfu skrifin sín hikstalaust út
sjálfir eða í samstarfi við vini sína.
Það má vel vera rétt í sumum til-
vikum. Nú eru konur komnar í for-
svar nokkurra af helstu forlögum
landsins og það á eflaust eftir að
hafa prýðisáhrif á útgáfu á verkum
kvenna. Sjálf er ég svo upptekin við
að skrifa að ég hef ekki haft mikil
tök á að velta þessu fyrir mér.“
Að hverju ertu að vinna núna?
„Ég er að yrkja ljóðabálk sem
kemur vonandi út á næsta ári. Hún
fjallar um handavinnu.“
Það er nú dálítið kvenlegt.
„Hvort það er, en hún fjallar líka
um veðurfar og grimmd. “
Auk ljóðabókarinnar ætlar
Gerður að demba sér í að skrifa
skáldsögu.
„Hún kemur líklega út árið 2013.
Þetta er það sem ég er að fara að
vinda mér í, á milli þess sem ég fer
til útlanda og kynni verkin mín.
Þetta verður ekki glæpasaga – en
líklega bók um glæp,“ segir hún
leyndardómsfull.
Gera má ráð fyrir því að vitsugur
og brókastuldur af þvottasnúrum
komi þar hvergi við sögu. Og þeir
sem ekki kannast við vitsugur geta
nagað sig í handarbökin yfir að
hafa ekki lesið Harry Potter.