Fréttatíminn - 09.09.2011, Side 36
Ég hélt að ég hefði hitt
frábæra manneskju og ákvað
að þetta væri raunverulegt.
Ég varð fyrir áfalli.
Bandaríkjamaðurinn Jason Gold-
berg taldi sig hafa fundið ástina á
Facebook-síðu föngulegrar íslenskrar
snótar. Hún reyndist síðan alls ekki
vera sú sem hann hélt en þó hlýtur
að vera huggun harmi gegn að hún
var ekki miðaldra, feitur karlmaður.
Bytturnar í Reykjavík eru
miklu klárari
Skúli er enginn bæklunarlæknir, hann
er fyllibytta úr Borgarnesi.
Mögnuð deila tveggja lækna endaði
á borði siðanefndar þar sem annar
er vændur um að hafa sagt hinn hafa
verið fullan í þrjátíu ár. Skjólstæð-
ingur læknanna blandaðist í deiluna
og komst að því að hann hafði verið
greindur með vitræna skerðingu án
þess að hafa hugmynd um það.
Já, en þú ert nú samt
útlendingur!
Ég get til að mynda aðeins vonað að
þið trúið því að ég sé ekki hættulegur
og að ég reyni að vera góð manneskja.
Kínverski auðmaðurinn Huang
Nubo reynir allt til að sannfæra Ís-
lendinga um að hann sé góður gæi.
Hva, kannt þú ekki öll trixin?
Hvernig stendur á því að þeir sem
voru mest áberandi eru ekki gjald-
þrota?
Björgólfur Thor Björgólfsson er jafn
ráðvilltur og hinn almenni leikmaður
og botnar ekkert í því hversu fáir
stórbokkar útrásarinnar hafa farið
á hausinn.
En þessi þingmennska er til
fyrirmyndar
Þessi blaðamennska er einfaldlega til
skammar.
Gamli Þjóðviljaritstjórinn Þráinn
Bertelsson kom Þórunni Sveinbjarn-
ardóttur til varnar í biðlaunaumræð-
unni, heldur óhress með þá stefnu
sem umræðan tók í vikunni.
Fékk tilboð sem hann gat
ekki hafnað
Maður er bara í klónum á mafíunni
og maður lítur á bankann sem
glæpamenn.
Halldór Lárusson, viðskiptavinur
Arion banka, er gáttaður á hagnaði
bankans sem hefur lítið viljað fyrir
hann gera.
Slíkt fólk nennir nú varla í
pólitík
Við höfum rætt við alls konar fólk.
Það er fullt af vel gefnu fólki á þessu
landi sem vantar vettvang til að geta
orðið að liði.
Heiða Kristín Helgadóttir,
framkvæmdastjóri Besta flokksins,
viðraði hugmyndir um að Besti
flokkurinn bjóði fram á landsvísu.
Laun heimsins eru vanþakklæti
Ég verð að segja að ég fyrirverð mig
að sumu leyti fyrir Alþingi þar sem
ég átti sæti í rúma tvo áratugi, fyrir
að hafa orðið sér til skammar með
þessum hætti.
Geir H. Haarde hugsar gömlum
vinnufélögum á Alþingi þegjandi
þörfina fyrir að drösla honum fyrir
Landsdóm fyrir þær sakir að hafa
ætlað að „haardera“ sig í gegnum
efnahagshrun.
Vikan sem Var
Hafðu
bankann
með þér
Þú getur fengið „appið“
í símann á m.isb.is
Snjallsímaforrit „app“ er, eins og nafnið bendir til, forrit sem bætir
eiginleikum við snjallsímann þinn. Með „appinu“ okkar getur þú tengst
Netbankanum þínum í gegnum farsímann og nálgast margvíslega þjónustu.
• Yfirlit og staða reikninga
• Yfirlit og staða kreditkorta
• Millifærslur
• Myntbreyta og gengi gjaldmiðla
• Samband við þjónustuver
• Staðsetning útibúa og hraðbanka
Þú færð nánari upplýsingar á www.islandsbanki.is/farsiminn
Skannaðu kóðann til að
sækja „appið“ frítt í símann.
Íslandsbanki býður fyrstur íslenskra
banka upp á snjallsímaforrit
F ram er haldið frásögn af tillögum stjórnlagaráðs um
nýja stjórnarskrá fyrir
lýðveldið Ísland. Nú verða
auðlindamálin tekin til
stuttrar umfjöllunar, en
með nokkuð frjálslegum
hætti.
Nýting takmarkaðra
gæða
Í 33. grein í tillögum stjórn-
lagaráðs er fjallað um
verndun náttúru lands-
ins, fögrum orðum eins og vera ber.
Helsta nýmælið í þeim málaflokki er
þó að finna í næstu grein, þeirri 34.
Þar segir m.a.: „Auðlindir í náttúru Ís-
lands, sem ekki eru í einkaeigu, eru
sameiginleg og ævarandi eign þjóðar-
innar.“ Síðan er tilgreint að „stjórnvöld
get[i] á grundvelli laga veitt leyfi til
afnota eða hagnýtingar auðlinda eða
annarra takmarkaðra almannagæða,
gegn fullu gjaldi og til tiltekins hóflegs
tíma í senn. Slík leyfi skal veita á jafn-
ræðisgrundvelli og þau leiða aldrei til
eignarréttar eða óafturkallanlegs for-
ræðis yfir auðlindunum.“
Hér er brotið í blað. Kjarni ákvæðanna
er þessi:
1. Auðlindir utan einkalanda eru
ævarandi þjóðareign sem ekki má
ráðstafa varanlega. Hér er áréttað
það sem þegar stendur að nokkru
í lögum eða almennt samkomulag
virðist um.
2. Einkaaðilar eiga aftur á móti að nýta
auðlindirnar en greiða fyrir það
fullt gjald. Með því er e.k. markaðs-
verð haft í huga, en ekki pólitískt
ákvarðað gjald. Á því
tvennu er reginmunur;
ekki endilega á upp-
hæð gjaldsins heldur því
hvernig verðákvörðunin
er tekin.
3. Allir eiga að hafa jafnan
rétt til nýtingarinnar. Vita-
skuld ber um leið að taka
tillit til þess sem á undan
er gengið; eðlilegt er að
þeir sem haft hafa nýt-
ingarleyfi fái aðlögun að
breyttu fyrirkomulagi.
4. Sama fyrirkomulag
skal hafa um önnur takmörkuð
almannagæði, svo sem um fjar-
skiptarásir eða heimildir til losunar
á gróðurhúsalofttegundum, svo
dæmi séu tekin.
Útfærslan á 2. og 3. atriðinu skiptir
sköpum. Að mati undirritaðs verður
það vart gert nema með uppboðum á
tímabundnum nýtingarrétti á hinum
takmörkuðu gæðum um leið og veitt er
eðlileg aðlögun í formi fyrningartíma á
fyrri réttindum. Fyrir rúmu ári fól svo-
kölluð sáttanefnd um fiskveiðistjórn-
un okkur Jóni Steinssyni hagfræðingi
að útfæra tilboðs- og fyrningarkerfi á
veiðikvótum í þessa veru; sjá http://
www.sjavarutvegsraduneyti.is/media/
Skyrslur/Fylgiskjal8_Tilbodsleid.pdf.
Við vorum ekki að finna upp hjólið.
Ámóta hugmyndir, innlendar sem
erlendar, hafa legið fyrir áratugum
saman. Hugmyndin fékk litla um-
fjöllun en var samt harðlega andmælt
af talsmönnum útgerðar og stungið
undir stól af stjórnvöldum. Í staðinn
sitja menn nú uppi með moðsuðulausn,
ef lausn skyldi kalla, sem gengur undir
nafninu pottaleið.
Skrítin tík, pólitík
Erlendur sendimaður sem bjó ára-
tugum saman á Íslandi skrifaði bók
um reynslu sína. Hann sagði hugtökin
vinstri og hægri ónothæf um íslensk
stjórnmál, nær væri að nota mæli-
kvarðann aftur og fram. Kvótaumræð-
an á Íslandi verður aðeins heimfærð
upp á þennan seinni skala. Halda
mætti að hugmynd um markaðslausn
á útdeilingarvanda takmarkaðra gæða,
eins og sú sem við Jón lögðum til, ætti
talsmenn meðal flokka sem kenna sig
við markaðsbúskap og um leið meðal
talsmanna atvinnurekenda. Svo er
þó ekki. Þegar markaðslausn okkar
Jóns var kynnt sjávarútvegsnefndinni
fyrrnefndu spurði forkólfur útgerðar-
manna í fundarlok hví við hefðum ekki
bara komið með kommúnistaávarpið
og lagt það á borðið! Skyldi Karl Marx
hafa hrokkið við í gröf sinni í London?
Auðlindir til lands og sjávar á að
nýta á vistvænan hátt. Um leið verður
að gæta réttlætis, m.a. þess að þjóðin
njóti eðlilegs arðs af eignum sínum.
Jafnframt fái framsækið einkaframtak
notið sín. Stjórnarskrárdrög stjórn-
lagaráðs leggja grundvöll að þessu,
en það þarf vilja skynsamra manna til
að útfæra hugmyndirnar, manna sem
snúa fram en ekki aftur á þjóðarskút-
unni.
Hvað næst?
Í næsta pistli verður snúið aftur að
lýðræðismálunum og þá fjallað um
þátttöku almennings í ákvarðanatöku
á þann hátt sem stjórnlagaráð leggur
til. Boðuðum pistli um hvað verða eigi
um tillögur stjórnlagaráðs er slegið á
Ný stjórnarskrá
Kvótinn og kommúnistaávarpið
Þorkell Helgason
sat í stjórnlagaráði
32 viðhorf Helgin 9.-11. september 2011