Fréttatíminn - 09.09.2011, Síða 52
48 bíó Helgin 9.-11. september 2011
Þ egar við Bragi Hin-r iksson leikst jór i ákváðum að gera
fyrstu myndina þá var hún
nú hálfgert tilraunaverkefni
sem við ákváðum að kýla
bara á. Við skrifuðum þetta
saman og byrjuðum bara á að
fara á netið og gúggla hvernig
ætti að skrifa handrit,“ segir
Sveppi. „Maður byrjar auð-
vitað á því að finna upp sög-
una og setur svo kjöt á beinin.
Við byrjuðum að skrifa hand-
ritið að þessari mynd í lok
síðasta árs og þetta liggur
einhvern veginn ótrúlega vel
fyrir okkur.“ Sveppi segir að
handritsvinnan sé orðin mun
auðveldari þar sem þeir séu
búnir að gera þetta tvisvar
áður og farnir að þekkja
helstu persónurnar mjög vel.
„Við erum núna búin að
gera þrjár myndir í fullri
lengd, og þar af eina í þrívídd,
á eiginlega tveimur árum. Og
við höfum alveg velt því fyrir
okkur hvort við eigum ekki
að gera bara fjórðu myndina.
Það er alveg inni í myndinni
en ekki endilega alveg svona
einn, tveir og þrír. Við vilj-
um ekkert endilega byrja að
skrifa strax, taka upp næsta
sumar og sýna næsta haust.
Við ætlum frekar að eiga það
inni. Svona dálítið eins og In-
diana Jones. Þar komu þrjár í
röð og svo kom svona ein lé-
leg seinna. Við eigum eftir að
gera eina lélega, sem fjórða
myndin er alltaf.“
Vinsældir myndanna eru
slíkar að ætla mætti að Sveppi
hafi dottið niður á gullæð sem
afli honum mikilla peninga á
stuttum tíma. „Það eru voða-
lega margir sem halda það
en íslensk kvikmyndagerð
hefur nú aldrei þótt neinn
gróðabransi. Þetta byggist
mjög mikið á styrkjum og
öðru slíku. En það sem gerir
okkur kleift að búa til myndir
svona ört er náttúrlega að við
erum að fá fullt af fólki í bíó.
Þannig að það er auðveldara
að borga öllum laun og allt
það. Þetta gerir það líka að
verkum að menn eins og ég
og Bragi, sem erum búnir að
vera að vinna mjög mikið í
þessu og skrifum, framleið-
um og sjáum um markaðs-
setningu, erum alveg sáttir
þegar við fáum launin okkar.
En maður er ekkert ríkur.“
Sem fyrr taka Villi og Gói
þátt í hasarnum með Sveppa
auk þess sem Ilmur vinkona
hans blandast í málið. Ballið
byrjar þegar Ilmur lokast inni
í töfraskápnum í herbergi
Sveppa og til að bæta gráu
ofan á svart lætur illmenni í
útlöndum ræna skápnum. Og
þá þurfa Sveppi, Villi og Gói
að taka á honum stóra sínum
í eltingarleik við bófana úti
um víðan völl þar sem hættur
leynast við hvert fótmál.
Sveppinn segir andann í
þessum kjarnahópi mjög góð-
an enda kjósi hann að vinna
aðeins með fólki sem honum
finnst skemmtilegt. „Það
er alltaf mjög mikil stemn-
ing. Þótt mér finnist svolítið
plebbalegt að segja það, þá
er það nú þannig að þegar
stemningin er góð og allir
eru ánægðir og sáttir þá skil-
ar það sér alla leið á tjaldið.
Þetta er bara raunin og það
er aldrei neitt voðalegt stress
hjá okkur. Það eru allir bara
léttir og kátir og við vöðum
bara í þetta.“
Algjör Sveppi eltiSt við töfrASkáp
Sveppi og félagar frumsýna í dag, föstudag, þriðju ævintýramyndina um litskrúðugan vinahóp
sem er einkar lagið að lenda í alls konar háska og átökum við skuggalega skúrka. Nýja myndin
heitir Algjör Sveppi og töfraskápurinn og fylgir eftir miklum vinsældum fyrri myndanna Leitin
að Villa og Dularfulla hótelherbergið. Sveppi gengst við því að hann sé barnalegur enda finnist
honum gaman að fíflast og kalla fram hlátur hjá krökkum.
Við erum
alveg sáttir
þegar við
fáum launin
okkar. En
maður
er ekkert
ríkur.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
bíó
Sálræn stór-
slysamynd
Hinn sérkennilegi og kvíðasjúki
danski leikstjóri Lars von Trier
vekur jafnan athygli með myndum
sínum og ekki síður þar sem hann
mætir í eigin persónu. Síðast skaut
hann áhorfendum skelk í bringu
með hinni vægast sagt ónotalegu
Antichrist en er nú mættur til leiks
með Melancholia sem hverfist um
efni sem hann þekkir vel.
Kirsten Dunst og hinn fjall-
myndarlegi Alexander Skars-
gård leika Justine og Michael
sem eru að fagna brúðkaupi sínu á
heimili systur brúðarinnar. Justine
glímir við mikið þunglyndi og
streitu og atburðir taka óvænta
stefnu þegar yfirvofandi árekstur
jarðarinnar og áður óþekktrar
reikistjörnu, Melancholia, ógnar
öllu lífi á jörðinni.
Trier sækir hér í eigin reynslu af
þunglyndi og vinnur með þá kenn-
ingu að þunglyndir bregðist við af
meiri yfirvegun en aðrir á tauga-
trekkjandi augnablikum.
Úrvalslið leikara prýðir mynd-
ina ásamt Dunst og Skarsgård
og má þar nefna Stellan Skars-
gård, föður Alexanders, Charlotte
Rampling, John Hurt, Udo Kier
og sjálfan Kiefer Sutherland.
Aðrir miðlar: Imdb: 7,9, Rotten Tom-
atoes: 76%, Metacritic: -
Colin Farrell
drekkur blóð
Árið 1985 naut unglingahroll-
vekjan Fright Night töluverðra
vinsælda sem fylgt var eftir með
Fright Night Part 2 þremur árum
síðar. Fright Night fjallaði um
unglingspilt sem horfir reglulega
á hryllingsþáttinn Fright Night í
sjónvarpinu og fyllist grunsemd-
um um að nýr nágranni hans sé
vampíra sem bíti fólk í hverfinu
á háls. Hann fær umsjónarmann
sjónvarpsþáttarins í lið með sér til
að ráða niðurlögum blóðsugunnar
en sá hefur á árum áður getið sér
gott orð fyrir að leika vampírubana
í hryllingsmyndum.
Endurgerð myndarinnar, með
Colin Farrell í hlutverki nágrann-
ans skuggalega, er komin í bíó en
David Tennant, sem þykir hafa
gert Doctor Who einna best skil
í samnefndum sjónvarpsþáttum,
leikur vampírubanann að þessu
sinni.
Aðrir miðlar: Imdb: 6,9, Rotten Tomato-
es: 76%, Metacritic: 64/100
Svolítið eins og Indiana Jones
Sveppi hefur áhuga á því að gera fjórðu myndina um Algjöran Sveppa en stefnir þó að því að láta líða aðeins lengra á milli
mynda en hingað til.
Tölvutöskur
Hliðartöskur
Veski
- Búið til úr
reiðhjólaslöngum
- Ólin er úr
öryggisbeltum
www.kolors.is
Dekkja-
töskur
frumSýndAr
Tennur kyntröllsins Colins Farrell eru
óvenjubeittar að þessu sinni.
Kirsten Dunst
leikur unga
brúði sem ætlar
að ganga að
eiga kærastann
í skugga reiki-
stjörnunnar
Melancholia.
frumSýndAr
Heimildarmynd um þrjár írskar fjöl-
skyldur sem eiga í miklu stríði hver
við aðra. Við fáum að fylgjast með
leikstjóranum Ian Palmer sem í byrjun
myndar er staddur í brúðkaupi hjá
einni fjölskyldunni til að festa það
á filmu. Þegar hann heyrir af því að
menn séu að skipuleggja boxbardaga
fær hann leyfi frá fjölskyldunni til að
taka bardagann upp. Hann eyðir svo
næstu tólf árum í að taka upp blóðuga
bardaga á milli þessara fjölskyldna.
Berir hnefar, engar lotur og alvöru
bardagar.
Knuckle sló í gegn á Sundance-kvik-
myndahátíðinni í ár og að lokinni
frumsýningu bitust fyrirtæki um
réttinn. Í því kapphlaupi voru fyrirtæki
frá Gerald Butler, Robert Downey Jr.
og Vin Diesel. HBO hreppti hins vegar
hnossið og talið er að kapalstöðin hafi
uppi áform um að gera sjónvarps-
þáttaröð byggða á myndinni.
Með hnúum og hnefum
Þessi grjótharða heimildarmynd vakti mikla
athygli á Sundance-hátíðinni.
S vinalängorna, eða Svínastían, er fyrsta kvikmyndin sem
leikkonan Pernilla August leik-
stýrir og er alveg hreint magnað
byrjandaverk. Myndin segir
átakanlega sögu Leenu sem elst
upp ásamt litla bróður sínum
hjá alkóhóliseruðum foreldrum.
Glatað uppeldið setur varanlegt
mark á börnin sem fá að kenna á öllu því ógeði sem sjálf-
hverfir alkar geta mögulega boðið börnum upp á.
Myndin hefst þegar Leena, tveggja barna hamingjusam-
lega gift móðir, fær símtal frá móður sinni sem hún hefur
löngu útilokað úr lífi sínu. Sú gamla er að drepast og vill
hitta stúlkuna sína. Treg í taumi fer Leena til fundar við
konuna sem eyðilagði æsku hennar og gömul sár ýfast upp.
Þessi sorgarsaga er sögð í nútíð en Leena hverfur aftur
í tíma í huganum og áhorfandinn fær að þjást með henni í
ömurleika æskuáranna.
Noomi Rapace er frábær í hlutverki Leenu, sýnir á sér
allt aðra hlið en í Millennium-þríleiknum og um leið hversu
stórkostleg leikkona hún er. Hnátan Tehilla Blad, sem
leikur Leenu unga, gefur Noomi svo lítið eftir. Og Pernilla
segir sögu Leenu af svo mikilli tilfinningu og tilgerðarleysi
að það þarf enginn að skammast sín fyrir að fella nokkur
tár yfir örlögum stúlkunnar sem slapp úr svínastíunni.
Þórarinn Þórarinsson
Noomi
Rapace er
frábær að
vanda.
bíódómur SvinAlängornA
Demantur í flórnum