Fréttatíminn - 08.04.2011, Blaðsíða 8
Taíland
Balí
og Java
Bútan
18. maí – 1. júní
Pattaya
Verð frá 199.000 kr²
11. – 27. júlí
Koh Samui
Verð frá 275.000 kr²
11. – 23. október
Hua Hin
Verð frá 239.000 kr²
30. október – 20. nóvember
Phuket
Verð frá 287.500 kr²
12. – 25. nóvember
Krabi
Verð frá 267.000 kr²
Jólaferð 17. desember – 2. janúar
Hua Hin
Verð frá 388.000 kr²
Verð frá 368.000 kr²
Verð frá 687.000 kr²
14. september - 6. október
Fjölbreytt ferð um
Jakarta á Jövu og
Seminyak og Ubud á Balí.
Fjöldi skoðunarferða
innifaldar.
Íslensk fararstjórn.
11. – 23. október
Örfá sæti fáanleg.
¹ Verð per mann í tvíbýli í ferð til Pattaya 18. maí – 1. júní.
² Verð miðað við einstakling í tvíbýli.
Með fyrirvara um prentvillur. Nánari upplýsingar á www.oriental.is
www.oriental.is
Hjólað um
Laos
Verð frá 377.000 kr²
12. – 25. nóvember
Mögnuð ævintýrareisa.
NÁNAR Á
oriental.is
Ferðaskrifstofan Óríental ehf.
www.oriental.is
oriental@oriental.is
Sími 514 14 99 Ferðaskrifstofa
Leyfishafi
Ferðamálastofu
5 ÁRA
2006-2011
Verð frá 199.000 kr¹
ÍSLENSK
FARAR-
STJÓRN
AÐEINS 20
SÆTI LAUS
ALLT
INNIFALIÐ
ÍSLENSK
FARAR-
STJÓRN
MIKIÐ
INNIFALIÐ
Ó mar Ragnarsson, aldursforseti stjórnlagaráðs, stýrði fyrsta fundi ráðsins á miðvikudaginn. Stjórnlaganefnd lauk um leið störfum og skilaði af sér tveggja binda skýrslu þar sem
meðal annars koma fram tillögur um breytingar á stjórnarskránni.
Salvör Nordal var í gær kjörin formaður stjórnlagaráðs og Ari Teits-
son varaformaður. Skýrsla stjórnlaganefndar, sem er 700 blaðsíður,
mun nýtast stjórnlagaráði við þá vinnu sem fram undan er. Meðal
annars er lögð fram hugmynd um að 15% þjóðarinnar geti krafist
þjóðaratkvæðagreiðslu, sem og minnihluti Alþingis.
Atriði sem stjórnlaganefnd tók til umfjöllunar og gerði tillögur um
voru þessi helst: Hvernig festa megi í stjórnarskrá ákveðin grunn-
gildi sem íslensk
stjórnskipun er reist
á og kynna jafnframt
helstu einkenni lands
og þjóðar. Jafnframt
hvernig tryggja megi
að stjórnarskráin sé
skýr, auðlæsileg og
aðgengileg almenn-
ingi.
Gerðar eru tillögur
um hvernig skerpa
megi á skyldu stjór-
nvalda til að koma
þjóðréttarsamning-
um um mannréttindi
í framkvæmd með
löggjöf. Þá er fjallað
um hvort og þá
hvernig megi binda í
stjórnarskrá ákvæði
um þjóðareign á
náttúruauðlindum.
Fjallað er um hvaða
rök hnígi með og á
móti því að landið
verði eitt kjördæmi
eða atkvæðisréttur
jafnaður að fullu með
öðrum hætti.
Þá er fjallað um
hvernig unnt sé
að styrkja stöðu
Alþingis og stuðla að
skýrari aðgreiningu
löggjafarvalds og
framkvæmdavalds, m.a. með því að kanna kosti þess að ráðherrar
sitji ekki á þingi. Enn fremur hvort ástæða sé til að leggja til breyt-
ingar á stjórnskipulegri stöðu forseta Íslands og persónulegum vald-
heimildum hans, svo sem við stjórnarmyndun, synjun staðfestingar
laga og aðhaldi hans gagnvart Alþingi að öðru leyti.
Í skýrslunni er líka tekið fyrir hvernig marka megi stjórn ríkis-
ins skýrari reglur, til dæmis um skipun og lausn ríkisstjórnar, hlut-
verk forsætisráðherra og stöðu ráðherra. Þá er litið til þess hvernig
styrkja beri sjálfstæði dómstóla svo sem með reglum um skipun
dómara og skýrari ákvæðum um eftirlitshlutverk dómstóla með lög-
gjöf og stjórnvaldsákvörðunum.
Stjórnlaganefndin leggur áherslu á að ekki sé um eiginlegan frum-
varpstexta að ræða heldur grunn sem stjórnlagaráð geti unnið úr að
vild. Nefndin fékk til liðs við sig sérfræðinga til aðstoðar.
Allir fundir stjórnlagaráðs verða sýndir beint á vefnum.
kIRkJUGARÐAR dUftkIRkJUGöRÐUm fJölGAR
Líkbrennslur aukast
Frá því duftkersgarðurinn Sólland
var tekinn í notkun í Fossvogi árið
2009 hefur 361 verið jarðsettur í
garðinum. Að sögn Þórsteins Ragn-
arssonar, forstjóra Kirkjugarða
Reykjavíkurprófastsdæma, hefur
bálförum fjölgað til muna. „Nú eru
um 40% jarðsettir í duftkerum en
60% í hefðbundnum kistugröfum.“
Fossvogskirkjugarður, sem er
kistukirkjugarður, er fullsettur og
einnig duftgarðurinn við Fossvogs-
kirkju. Af skipulagsástæðum eru
sérstakir garðar fyrir duftker. „En
það er hægt að grafa duftker ofan á
kistugrafir með leyfi rétthafa. Við
lítum á þróunina með velþóknun
þó að við rekum ekki áróður fyrir
neinu. Það er jákvætt að nú fari
minna land undir kirkjugarðana
og duftgarðarnir verða mjög fal-
legir þegar fram í sækir,“ segir Þór-
steinn.
Talsverður munur er á duft-
görðum og kistugörðum þar sem
lagðir eru vegir í kistugörðum en
eingöngu er hægt að ganga um
duftkersgarðana. „Við sjáum líka
aukningu í bálförum á landsvísu
og margir garðar á landsbyggðinni
eru að undirbúa sérstaka reiti fyrir
duftker.“
thora@frettatiminn.is
Duftkirkjugarðurinn í Sóllandi.
Kannað
hvort
ástæða
sé til að
leggja til
breytingar
á stjórn
skipulegri
stöðu
forseta Ís
lands.
StJÓRnlAGAnefnd HættI Um leIÐ oG StJÓRnlAGARáÐ kom SAmAn
Hugmynd um að 15%
þjóðarinnar geti krafist
þjóðaratkvæðagreiðslu
Tveggja binda skýrsla stjórnlaganefndar með fjölmörgum tillögum að stjórnarskrárbreytingum
lögð fram sem grunnur sem stjórnlagaráð getur unnið úr að vild.
Ómar
Ragnarsson,
aldursfor-
seti stjórn-
lagaráðs,
stýrði
fyrsta fundi
ráðsins. Ljós-
mynd/Hari
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
8 fréttir Helgin 8.-10. apríl 2011