Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.04.2011, Blaðsíða 44

Fréttatíminn - 08.04.2011, Blaðsíða 44
Áhugahópur háskólamanna um sjávarútvegsmál Áróður um kvótakerfið H i n n 1 5 . mars hélt svokallaður „Áhugahópur há- skólamanna um sjávarútvegsmál“ sitt annað málþing um kvótakerfið. Að þessu sinni bar mál- þingið yfirskriftina „Kvótakerfi og sam- félag“. Málflutnings- mennirnir voru þrír að tölu og eru þeir allir hagfræðingar að mennt og starfs- menn Háskóla Ís- lands; nánar tiltekið Sveinn Agnarsson, forstöðumaður Hag- fræðistofnunar HÍ, Birgir Þór Runólfs- son, dósent við hagfræðideild HÍ, og Ragnar Árnason, prófessor við hagfræðideild HÍ. Fundarstjórn sinnti Illugi Gunnarsson af miklum skörungsskap og tilkynnti í upphafi að markmiðið með málþinginu væri að stofna til fræðilegrar og málefna- legrar umfjöllunar og umræðu um kvótakerfið, byggðrar á viðteknum vinnubrögðum háskólasamfélags- ins. Ekki tengsl milli hnignunar byggðarlaga og kvótakerfis Fyrstur tók til máls Sveinn Agnars- son sem fjallaði um framlegð fjár- magns og vinnuafls í sjávarútvegi. Einföld og hlutlæg umfjöllun þar sem Sveinn gerði grein fyrir hag- ræðingu í greininni og hlutfalls- legri verðmætasköpun. Síðan kom röðin að Birgi Þór Runólfssyni en hann fjallaði um kvótakerfið og byggðaþróun. Hann birti niður- stöður gagnaúrvinnslu byggðrar á tímaröðum talna um mannfjölda, at- vinnu og sjávarútveg, með áherslu á Vestfirði. Eindregin niðurstaða hans var sú að ekki væri hægt að sjá nein tengsl milli hnignunar strjálla byggðarlaga og innleiðingar kvótakerfisins. Máli sínu til stuðn- ings vísaði hann í lokaorðunum til niðurstaðna skýrslu Þjóðhagsstofn- unar frá árinu 2000 um stjórnkerfi fiskveiða og byggðaþróun. Í þeirri skýrslu segir þó að spurningunni um þessi tengsl sé ósvarað, ekki að það séu engin tengsl. Tvennt stakk mig við niðurstöðu Birgis. Annars vegar það að gögn hans hvorki sönn- uðu né afsönnuðu að tengsl væru milli innleiðingar kvótakerfisins og byggðaröskunar. Þau sýndu í raun bara margbrotinn veruleika sjávar- byggða. Hann hefði væntanlega fengið einhverja niðurstöðu hefði hann keyrt saman gögnin fyrir ein- stök bæjarfélög á Vestfjörðunum. Hins vegar virtist hann ekki taka með í reikninginn vinnu annarra fræðimanna og stofnana sem hafa fjallað um áhrif kvótakerfisins á byggðaþróun, þá sérstaklega með aðferðum félagsfræða. Íslenskir og erlendir fræðimenn hafa fjallað um þetta, en í fræðaheiminum er það þekkt að „aukaverkanir“ af inn- leiðingu kvótakerfis, með framselj- anlegum fiskveiðiheimildum, eru meðal annars byggðaröskun, sér- staklega í strjálbýlum byggðarlög- um sem eru háð útveginum. Íslensk stjórnvöld hafa gert sér grein fyrir neikvæðum áhrifum kvótakerfisins á margar sjávarbyggðir landsins og gripið til aðgerða, t.d. með innleið- ingu byggðakvóta og strandveiða. Því miður hafa samt stjórnvöld lagt litla áherslu á að þetta mál sé skoðað á heildstæðan hátt. Hag- fræðingar hafa einnig komið inn á þetta, en í skýrslu Hagfræðistofn- unar um þjóðhags- leg áhrif aflareglu frá árinu 2007 má lesa að hvarf kvóta úr strjálum byggð- um landsins hefur í för með sér mikla byggðaröskun. Það sætir því furðu að Birgir taki ekki til- lit til fyrirliggjandi þekkingar á þessu sviði, eins og venja er í allri þekkingar- öflun á háskólastigi. Á sama tíma gerir hann sig sekan um alhæfingu á grunni órökstuddra niður- staðna. Útúrsnúningur og rökleysa Að lokum tók Ragnar Árnason til máls og bar erindi hans heitið „Upptaka kvótaréttinda – Skattur á byggðir“. Þar setti Ragnar upp reikningsdæmi með ákveðnum for- sendum sem áttu að vera vísun til raunveruleikans. Hann setti upp dæmi þar sem stjórnvöld hafa inn- kallað kvótann og gríðarlegir fjár- munir myndu ekki bara tapast við þá ákvörðun heldur myndu um- breytast í skatt á landsbyggðina. Ragnar minntist ekkert á í erindi sínu að samfara umræðunni um innköllun aflaheimilda hefur ver- ið fjallað um að handhöfum kvóta verði bættur kvótamissirinn, ann- að hvort með bótum eða með því að aflaheimildunum verði strax endur- úthlutað til fyrirtækjanna. Í upphafi gerði Ragnar grein fyrir núverandi dreifingu aflahlutdeildar á milli svæða, en hún er, að frátöldum 8%, fyrir utan höfuðborgina. Með því fékk hann út að sjávarútvegurinn væri að mestu stundaður á lands- byggðinni og virði aflahlutdeildar væri forsenda atvinnu og lífsafkomu fólksins þar. Hann gaf sér síðan að verðmæti allrar aflahlutdeildar væri 450-500 milljarðar. Út frá heildar- verðmæti aflahlutdeildar og dreif- ingu aflahlutdeildar á landinu reikn- aði hann virði aflahlutdeildar fyrir mismunandi svæði og bæi. Í fram- haldinu reiknaði hann virði afla- hlutdeildar fyrir hvern einstakling á landsbyggðinni og í ákveðnum byggðakjörnum og bakfærði það sem skuld við innköllun aflaheim- ilda. Niðurstaða Ragnars var sú að með innköllun aflaheimilda myndi af laheimildaverðmæti umbreyt- ast í háar neikvæðar fjárhæðir eða háan skatt á hvern einstakling á landsbyggðinni og þá sérstaklega í ákveðnum byggðakjörnum. Skatt- byrðin, eða tapið, væri mest fyrir íbúa helstu útgerðarbæja landsins, frá nokkrum hundruðum þúsunda upp í tugi milljóna króna. Það er augljóst að forsendur reikningsdæmis um innköllun kvóta eiga að taka mið af mögu- legum stjórnvaldsaðgerðum til að tryggja rekstraröryggi greinarinnar og hagsmuni þjóðarinnar. Síðan er hægt að reikna tap eða hagnað þjóð- arinnar vegna þeirra aðgerða. Að setja upp reikningsdæmi þar sem innköllun kvótans er túlkuð sem há skattbyrði á hvern núlifandi ein- stakling á landsbyggðinni er útúr- snúningur og rökleysa. Hlutlaus og upplýst umræða í háskólum Nafngiftin sem hópurinn hefur valið sjálfum sér: „Áhugahópur háskólamanna um sjávarútvegs- mál“ er villandi því að hópurinn er í raun lokaður hópur nokkurra Sigríður Ólafsdóttir sérfræðingur á sviði auðlinda- stjórnunar haf- og strandsvæða og stundakennari við líf- og umhverfisvísindasvið HÍ 44 viðhorf Helgin 8.-10. apríl 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.