Fréttatíminn - 08.04.2011, Blaðsíða 54
54 ferðir Helgin 8.-10. apríl 2011
Heilsuferð til Spánar
með Heilsuborg,
Sirrý og VITA
Komdu
léttari heim
VITA er lífið
VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444 | VITA.is
VITA er í eigu Icelandair Group.
GROUP
Verð frá 159.900 kr. *
og 15.000 Vildarpunktar
Orihuela Costa Resort
12. – 19. maí
á mann m.v. 2 í tvíbýli
Innifalið: Flug til Alicante, flugvallaskattar, akstur til og frá flugvelli,
gisting með hálfu fæði og íslensk fararstjórn.
* Verð án Vildarpunkta 169.900 kr.
Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is
Hjá VITA getur þú lækkað verðið á ferðinni
þinni um allt að 10.000 kr. með 15.000 Vildarpunktum.
Auk þess eru veittir 2.500 Vildarpunktar fyrir allar
keyptar ferðir í leiguflugi með VITA. Þannig öðlast þú
stöðugt fleiri tækifæri til þess að njóta lífsins.
Þú getur notað
Vildarpunktana
hjá okkur
Skemmtileg vikuferð í sólina á Spáni þar sem fléttað er saman hreyfingu, gleði, dekri og fræðslu.
Heilsukokkur matreiðir kræsingar fyrir hópinn. Hentar fyrir einstaklinga og hópa, konur og karla á
öllum aldri. Gist er á litlu, fallegu hóteli sem er eingöngu fyrir Heilsuborgarhópinn.
Sirrý og Anna Borg sjúkra- og einkaþjálfari
sjá um fararstjórn og námskeið á Spáni.
S pænskur ferðadagur verð-ur haldinn á Blómatorginu í Kringlunni á morgun,
laugardaginn 9. apríl. Þar verður
kynnt það helsta sem í boði er
í spænskri ferðamennsku, auk
þess sem spænsk menning verð-
ur áberandi. Allir ættu að finna
eitthvað við sitt hæfi því auk
þess sem sumarleyfismöguleik-
ar á Spáni verða kynntir spilar
Þorvaldur Már Guðmundsson
spænska tónlist á gítar og boðið
verður upp á ýmis skemmtiatriði
fyrir alla aldurshópa.
Á ferðadeginum verða ýmis
áhugaverð ferðatilboð í boði og
auðvelt að bóka draumasum-
arfríið til Spánar. Framreiddir
verða gómsætir spænskir réttir
af Cocina de La Rosa og gestum
boðið að kynna sér matarmenn-
ingu allra landshluta Spánar.
Áhugasamir matgæðingar ættu
ekki að láta það fram hjá sér
fara. Að auki verður spurninga-
keppni þar sem veitt verða glæsi-
leg verðlaun, andlitsmálun fyrir
börnin og myndataka. Trúðurinn
Wally mætir á svæðið og margt
fleira verður í boði.
Það er ferðamálaráð Spánar
sem stendur fyrir kynningunni í
Kringlunni en íslenskir ferða-
skipuleggjendur taka einnig
þátt.
Þetta er í fjórða sinn sem
ferðamálaráð Spánar stendur
fyrir spænskum ferðadegi á Ís-
landi. Trine Fredrikke Peder-
sen hjá ferðamálaráði Spánar
segir að Spánn hafi verið einn
vinsælasti áfangastaður Íslend-
inga um langt skeið. „Það er því
ekki að ástæðulausu að viðtök-
urnar á þeim kynningum sem
ferðamálaráðið hefur staðið fyrir
á Íslandi hingað til hafa verið
eins góðar og raun ber vitni.
Spánn hefur upp á svo fjölmargt
að bjóða og Íslendingar eru sér-
staklega opnir fyrir að kynna sér
það,“ segir Pedersen.
Dagskráin stendur frá klukk-
an 11 til 18.
S pænsku borgina Alicante þekkja margir Íslendingar
en hún er höfuðborg héraðsins.
Í nágrenni hennar á fjöldi Íslend-
inga sumarhús. Borgin er falleg og
gömul spænsk borg, með heillandi
miðbæ, veitingahúsum, verslunum
og fallegri höfn.
Frá Alicante er ekki löng leið
til borgarinnar Valencia sem er
ein sú framsæknasta í Evrópu í
dag og spennandi heim að sækja.
Hún er þriðja stærsta borg Spánar
með 800 þúsund íbúa, fræg fyrir
sína fögru appelsínulundi, nætur-
líf, gamla bæinn, paellu, Valencia-
kokteilinn, keramiklist, vefnaðar-
vöru og húsgagnagerð. Þar finnur
ferðamaðurinn heillandi gamlan
borgarhluta, sem iðar af mann-
lífi, dómkirkjur, veitingastaði og
frábæra strönd.
Veðurfar er stöðugt á svæðinu,
sól flesta daga og algengur hiti yfir
sumartímann 25-30 gráður.
Sæki menn í stutta ferð frá Alic-
ante má nefna að einn glæsilegasti
skemmtigarður Evrópu, Terra
Mitica, er ofan við hinn þekkta
sumarleyfisstað Benidorm. Þang-
að er um klukkustundar akstur frá
Alicante. Garðurinn skiptist í fimm
svæði, sem hvert og eitt tilheyrir
sögu og menningarheimi ákveðins
lands. Þar er Egyptaland og heim-
ur faraóanna, Grikkland og hofin,
Rómaveldi, eyjarnar og Iberia.
Enginn ætti að verða svikinn af
degi í þessum ævintýraheimi.
Ferðaskrifstofan Heimsferðir
býður flugsæti til Alicante frá
aprílmánuði fram í október.
Appelsínulundir, næt-
urlíf og gamlir miðbæir
Flugsæti bjóðast til Alicante fram í október. Fjöldi Íslendinga á
sumarhús í grennd við borgina. Tiltölulega stutt er til Benidorm og
Valencia sem er þriðja stærsta borg Spánar.
Alicante á Spáni. Fjölmargir Íslendingar eiga hús í grennd við borgina.
sólarfrí Borgarlíf í alicante og Valencia
spænskur ferðadagur Haldinn í Kringlunni á laugardag
Spánn
hefur upp
á svo fjöl-
margt að
bjóða.
Spánarferðalög, tón-
list og skemmtun fyr-
ir alla fjölskylduna
Ferðamálaráð Spánar stendur að kynningunni auk þess sem
íslenskir skipuleggjendur ferða taka þátt. Spánn hefur verið
einn vinsælasti áfangastaður Íslendinga um langt skeið.