Fréttatíminn - 08.04.2011, Side 25
Bröns
alla laugardaga og sunnudaga
Aðalstræti 2 | 101 Reykjavík | Sími: 517 4300 | www.geysirbistrobar.is
Verð
aðeins
1.795
með kaffi
eða te
KOSNINGAKAKA
S Ú K K U L A Ð I K A K A
LJÚFFENG SÚKKULAÐIKAKA MEÐ SÚKKULAÐIKREMI
Fáðu þér ljúenga súkkulaðiköku frá Kexsmiðjunni í næstu verslun!
KJÓSTU
www.kexsmidjan.is
RÓANDI KOSNINGAKÖKU
FRÁ KEXSMIÐJUNNI
„Ha, ég tók ekkert eftir því að
hann væri geðstirður!“ segir Alla.
„Ég reyndi að halda sönsum og
þannig er það enn,“ segir Björn. „Ég
er á steragjöf og finn að kveikurinn
er stuttur og hlutir sem skiptu engu
máli áður og ég hefði aldrei látið fara
í taugarnar á mér, verða svo stórir
og erfiðir, og skapið getur blossað
upp, það er eins og bensíni sé skvett
á eld. Ég finn blóðþrýstinginn rjúka
upp og ég sit og tel upp að tíu svo að
ég sé ekki að öskra á saklaust fólk út
af engu!“
Alla vill fá að koma á framfæri
þakklæti til lækna og hjúkrunar-
fólks.
„Þetta fólk er allt algjörir snilling-
ar; Jóhann Jónsson og Eiríkur Jóns-
son sem gerðu aðgerðirnar á okkur
og einnig allir hinir læknarnir og
hjúkrunarfólkið allt. En fólk verður
að sýna sjálfsábyrgð, það ber ábyrgð
á eigin heilsu, ekki læknarnir.“
Starfsemi nýrnanna er merkileg
að sögn Björns:
„Hugsaðu þér, það fara 180 lítrar
af vökva í gegnum nýrun á dag, og
af því skila nýrun bara út tveimur
lítrum með þvagi. Ég hef skroppið
tvisvar upp á deild í heimsókn
eftir að ég útskrifaðist og heimsótt
þá sem eru í skilun, þar þekki ég
nokkra. Mér er svo ofarlega í huga
þakklæti; Alla bakaði stóra tertu sem
ég fór með og ég vil endilega lofa
fólkinu sem annaðist mig að sjá mig
hressari með hverjum deginum sem
líður.“
Sótthreinsað heimili
En hvernig var fyrir þig, Alla, að
koma heim af spítalanum án Björns?
Var ekki tómlegt?
„Nei, nei, þetta var eins og frí fyrir
mig því hann þarf svo mikla þjón-
ustu,“ segir hún og horfir hlýlega á
manninn sinn og meinar greinilega
ekkert með þessu.
„Enda var mér bara stungið inn
þegar ég kom í heimsókn aftur!“
segir Björn. „Alla hefur örugglega
hringt og beðið þá að halda mér
inni,“ segir hann og kímir.
En það að koma heim eftir nýrna-
skipti er ekki eins og að koma heim
af spítala eftir rannsókn.
„Fyrst í stað mátti enginn koma
í heimsókn,“ segir Alla. „Ég sótt-
hreinsaði allt og gerði það sem ég
hafði vit til. Hér er spritt úti um allt,
sótthreinsiklútar. Þetta er alls ekki
líkt mér, ég ólst upp við eðlilegt
hreinlæti, en auðvitað geri ég allt til
að Björn haldi heilsu. Aðalatriðið er
að það er ekkert mál að gefa nýra
og mér finnst fólki bera skylda til að
bjarga lífi annarra ef það hefur tök
á,“ segir þessi jákvæða kona sem gaf
manni sínum stærstu gjöf sem hægt
er að gefa. Og best að enda þetta á
orðunum sem Björn sagði áðan:
„Eftir 42 ár erum við loks orðin
eitt!“