Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.04.2011, Blaðsíða 28

Fréttatíminn - 08.04.2011, Blaðsíða 28
VeitingahúsFerðaþjónusta HeildsölurÍþrótta- og félagasamtök Ríki- og sveitarfélögVerslun H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA – 1 1 – 0 0 8 9 Greiðslulausnir sniðnar að þinni atvinnugrein. Þau vita hvað viðskiptavinir okkar vilja. Það skiptir okkur mestu. Auður B. Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs VÍS Hver einasti viðskiptavinur okkar er einstakur og þarfirnar geta verið ólíkar. Með þetta að leiðarljósi höfum við þróað lausnir – sniðnar að þinni atvinnugrein. Hafðu samband og í sameiningu finnum við greiðslulausn sem hentar þínum rekstri. Fyrirtækjalausnir Valitor sími 525 2080 www.valitor.is fyrirt@valitor.is Þjónusta Þ egar knattspyrnusagn- fræðingar glíma við þá vinsælu tómstundaiðju að setja saman lista yfir bestu knattspyrnumenn sögunnar, er nafn Tommys Lawton oftar en ekki ofarlega á blaði. Ferill þessa mikla markaskorara er magn- aður, þrátt fyrir að hann hafi misst út árin milli tvítugs og hálfþrítugs vegna seinni heimsstyrjaldarinnar. Árið 1937 var Lawton keyptur til Everton, átján ára að aldri, til að leika við hlið hins goðsagnakennda Dixies Dean. Þar sló hann strax í gegn, varð fastamaður í enska landsliðinu og átti stærstan þátt í Englandsmeistaratitli Everton árið 1939. Var hann um þær mundir af ýmsum talinn besti knattspyrnu- maður Bretlandseyja og þar með í heimi. Ekki var keppt í ensku deildar- keppninni á stríðsárunum. Bestu leikmennirnir voru þó fæstir sendir í fremstu víglínu, heldur látnir þjóna heima fyrir og keppa í endalausum sýningarleikjum sem ætlað var að slá á stríðsþreytu hermanna og al- mennings. Að stríðinu loknu hélt atvinnumannsferill Lawtons áfram. Hann gekk til liðs við Lundúnaliðið Chelsea og hélt áfram að skora mörk. Vorið 1947, í lok annars keppnis- tímabils síns í herbúðum Chelsea, mátti Tommy Lawton ennþá heita kunnasti knattspyrnumaður Bret- lands. Hann var enn lykilmaður í landsliðinu, en alls skoraði hann 22 mörk í 23 landsleikjum sínum á ár- unum 1938 til 1948. Stefndi hugurinn til Íslands? Fyrir nokkrum misserum setti höfundur þessarar greinar saman bók um sögu Knattspyrnufélagsins Fram. Við lestur á gömlum fundar- gerðum rak mig í rogastans. Þar kom fram að snemma á árinu 1947 hefði Tommy Lawton lýst áhuga á að taka að sér þjálfun meistara- flokks Fram á komandi sumri. Á stríðsárunum hafði enskur her- Messi í Safamýrina? Liltu munaði að besti knattspyrnumaður Bretlandseyja, ef ekki heims, yrði þjálfari og leikmaður Fram skömmu eftir lok síðari heimsstyrjaldarinnar. Stefán Pálsson sagnfræð- ingur fer hér aftur í tímann. ... virtist tilhugs- unin um að besti knattspyrnumaður í heimi hefði í raun og veru íhugað að halda til Ís- lands til að stjórna Frömurum á nýja malarvellinum í gömlu grjótnám- unni fyrir neðan Sjómannaskólann, gjörsamlega galin. 28 sagnfræði Helgin 8.-10. apríl 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.