Fréttatíminn - 08.04.2011, Page 50
MatartíMinn Eru skólaMötunEytin að drEpa börnin okkar?
Þ egar við setjum saman námskrá í íslensku reynum við að efla með börnunum
málskilning og hæfni til að beita
málinu. Og við höldum að þeim
því besta sem skrifað hefur verið á
íslenska tungu.
Þetta er markmiðið í kennslu-
stundinni. Þegar kemur að há-
degishléi fara börnin í mötuneytið
að borða. Þar virðist markmiðið
vera allt annað. Þar er ekki það
besta í boði – og varla það næst-
besta heldur. Þar sem verðið fyrir
matinn er gjald fyrir opinbera
þjónustu, og þar með pólitískt
mál, er því haldið svo lágu að mjög
erfitt er fyrir skólana að bjóða
upp á góðan mat. Þótt vissulega
sé hægt að útbúa frábæra máltíð
fyrir lítinn pening, endurtekur
það enginn fimm daga í viku allan
ársins hring. Á endanum þurfum
við að greiða fyrir gæði í mat eins
og öðru.
Niðurstaðan er því miður sú að
þótt börnin fái að kynnast Njálu
og Laxness í íslenskutímum er
lítið annað en Ísfólkið og Morgan
Kane í matinn.
Það almenna er ekki nógu gott
fyrir börnin
Að hluta til virðist þetta byggt á
hugsanaskekkju. Þegar litið er
yfir matseðla skólanna og þeir
bornir saman við hillur stórmark-
aðanna má halda því fram að það
sem skólarnir bjóða upp á sé ekki
verra en gengur og gerist á heim-
ilum landsins. Skólarnir virðast
telja í lagi að nota svona mæli-
kvarða á matinn þótt þeim dytti
ekki í hug að nota hann í íslensku-
námi. Þar er krökkunum ekki
kennt að lesa Séð & heyrt, nýjustu
sjálfshjálparbækurnar eða krimm-
ana. Íslenskukennarar veigra sér
ekki við að halda að krökkunum
lesefni sem er líkara því sem þau
tíu prósent landsmanna nota sem
mest og best lesa.
Hvers vegna skyldi ekki sama
gilda um matinn?
Matarlæsi mikilvægara en
fjármálalæsi
Undanfarna alltof marga mán-
uði hefur mikið verið rætt um
nauðsyn þess að kenna börnum og
ungmennum fjármálalæsi. Menn
segja ófært að skólarnir skili börn-
unum út í lífið ólæsum á vexti og
verðbætur, áhættu og skuldasöfn-
un. Þegar hádegismaturinn var
fluttur frá heimilunum til skólanna
gafst þeim frábært tækifæri til að
kenna börnunum matarlæsi. Og
það er enginn vafi á að vanhæfni í
að meta hvaða matur er boðlegur
og hver nánast óhæfur, skaðar fjöl-
skyldurnar í landinu ekki minna
en ólæsi á peninga og Visa-kort.
Það er jafn erfitt fyrir fólk að
ætla að stauta sig í gegnum inni-
haldslýsingar og gylliboð á um-
búðunum úti í búð og í bankanum.
Mötuneytin eru tækifæri
Áherslur í skólastarfi hafa að
flestra mati þróast um of í átt til
bóknáms og þekkingar. Kunnátta,
hæfni, leikni og geta hafa fallið
í skuggann. Háskólarnir unga
út fólki sem veit voða margt en
getur kannski fátt annað en setið
á fundi og rætt málin. Á sama tíma
hrörnar iðnnám og annað starfs-
nám. Það þykir ekki lengur fínt í
ráðstefnuheimum og krakkarnir
sækjast ekki eftir því.
Þegar skólarnir drógu til sín
jafn umfangsmikla framleiðslu
og skólamötuneytin skapaðist
tækifæri til að vega upp á móti
þessu. Eldhúsin og mötuneytin
eru frábært tækifæri til að kenna
börnum leikni og hæfni í að búa
til og borða mat – nokkuð sem þau
munu þurfa að gera þrisvar á dag
svo lengi sem þau lifa.
Ekkert markmið án leiðar
Góður Málstaður duGar Ekki
skólaMáltíðir Hvað Er í Matinn í daG, föstudaGinn 8. apríl?
Þórir Bergsson og Gunnar Smári Egilsson
matur@frettatiminn.is
50 matur
Til að gefa snögga mynd af skóla-
máltíðum í Reykjavík þá verður
þetta í matinn í hádeginu í dag:
Sjö skólar bjóða upp á einhverja
útgáfu af skyri: Skyr og brauð
(Álftamýrarskóli og Réttarholts-
skóli), skyr með rjómablandi
(Seljaskóli), skyr með rjómablandi
og ávextir (Ingunnarskóli), hrært
skyr og ávöxtur (Árbæjarskóli),
heimalagað skyr ásamt brauði með
osti, ávextir (Hvassaleitisskóli) og
skyr, flatkökur með hangiáleggi og
skonsur með osti (Grandaskóli).
Grautur og slátur er á borðum
í fimm skólum: Grjónagrautur og
lifrarpylsa (Ölduselsskóli), grjóna-
grautur með lifrarpylsu og blóðmör
(Borgarskóli), grjónagrautur,
slátur og ávöxtur (Melaskóli), hrís-
grjónagrautur og slátur, ávöxtur
(Korpuskóli) og mjólkurgrautur og
slátur (Selásskóli).
Í fimm skólum er súpa: Blaðlauks-
súpa og brauð (Hagaskóli),
grænmetissúpa og brauð (Brúar-
skóli), súpa, heimabakað brauð,
grænmeti og ávextir (Háteigsskóli),
grænmetissúpa með brauðbollum
og ávöxtur (Húsaskóli) og mexikósk
tortillasúpa (Langholtsskóli).
Aðeins tveir skólar bjóða upp á
fisk í dag: Plokkfiskur og salat
(Safamýrarskóli) og soðin ýsa með
rúgbrauði, soðnum rófum og
gulrótum (Vogaskóli).
Kjötréttir eru í þrettán skólum:
Grísasneið með kartöflum, salati
og brúnni sósu (Fossvogsskóli,
Öskjuhlíðarskóli, Sæmundarskóli
og Norðlingaskóli), sveitabuff, brún
sósa, kartöflur, rauðkál, grænar
baunir og ávöxtur (Breiðholtsskóli),
hamborgarhryggur (Foldaskóli),
gúllas með kartöflumús (Engja-
skóli), svikinn héri, soðnar kartöflur,
rauðkál, brún heimalöguð sósa
og ferskir ávextir (Vesturbæjar-
skóli), kjötbúðingur og kartöflumús
(Hamraskóli), sænskar kjötbollur,
kartöflumús og meðlæti (Breiða-
gerðisskóli), sænskar kjötbollur
og kartöflumús (Laugarnes-
skóli), ofnsteiktur kjúklingur með
fersku salati, kartöflum og sósu
(Austurbæjarskóli) og ofnsteiktur
kjúklingur með kartöflubátum og
AB-kokteilsósu (Askja, barnaskóli
Hjallastefnunnar).
Það er pasta í fjórum skólum:
Kjúklinganúðlur með fersku græn-
meti (Fellaskóli), hakk, spaghettí
og brauð (Hlíðaskóli), pylsupasta,
ostasósa og salat (Klébergsskóli) og
pasta (Hólabrekkuskóli).
Eitthvað sem kallast má skyndi
biti í átta skólum: Píta með hakki
og fersku grænmeti (Ártúnsskóli),
hamborgari og franskar (Suður-
hlíðarskóli), Chillí í tortillu ásamt
jöklasalati, sýrðum rjóma og rifnum
osti (Landakotsskóli og Skóli Ísaks
Jónssonar), pizza/pasta (Lauga-
lækjarskóli), pizza með skinku
(Rimaskóli), pizza, ávextir (Víkur-
skóli) og pitsa með hvítlauksolíu
(Waldorfskólinn Sólstafir).
Og loks verður einn skóli með
eggjaköku með kartöflum, skinku
og brauði (Dalskóli).
Það er rétt að benda fólki á að
svona þverskurður í gegnum
eitt hádegi gefur ekkert tilefni til
samanburðar milli skóla. Eins er
rétt að vara fólk við því að það sem
hljómar vel á matseðli getur verið
óspennandi á diski og það sem
hljómar ómerkilega í eyra getur
verið himneskt á tungu.
Stofnanavæddur
hádegismatur
Tveir fiskar en átta skyndibitar
Það er margreynt í allri baráttu að
það dugar ekki að hafa góðan mál-
stað. Þú verður líka að finna færa leið
að markinu.
Snilld Martins
Luthers King
var að ræða
drauma sína og
hjálpa með því
svörtum jafnt
sem hvítum
Bandaríkja-
mönnum að
lyfta sér upp
yfir syndir for-
tíðar og deilur
nútíðar. Þessi
leið Kings
gerði Bandaríkjamönnum fært að
snúa við blaðinu. Bandaríkin standa
ekki lengur Evrópu langt að baki í
jafnrétti kynþátta heldur eru gömlu
heimsálfunni langtum fremri. Mál-
staður Kings var ekki betri en
þúsunda annarra sem börðust fyrir
réttindum svartra. Lausn hans bar
hins vegar af.
Gandhi var að sama skapi ekki
einn um að berjast fyrir sjálfstæði
Indlands. Honum tókst hins vegar
að sameina
ólíka hópa með
því að hoppa
yfir það sem
sundraði fólk og
rekja mátti til
áhrifa nýlendu-
tímans. Hann
sveipaði um
sig dulu í stað
þess að kaupa
föt saumuð í
Birmingham úr
indverskri ull.
Hann vann sitt eigið salt í stað þess
að kaupa það af einokunarkaupmönn-
um. Með einföldum vísunum ræktaði
hann kjark landa sinna til að standa
á eigin fótum og benti á það sem gat
sameinað þá fremur en sundrað.
Þegar Carlo Petrini stóð í hópi
miðaldra kommúnista og gáfumanna
fyrir utan McDonald’s við endann
á Spænsku tröppunum í Róm, átt-
aði hann sig á að barátta þeirra var
töpuð. Það er vonlaust að vinna
McDonald’s með því að benda á hvað
sé að McDonald’s. Og í raun er sú
barátta einskis virði nema þú getir
útskýrt hvað maður er sjálfur. Petrini
fór heim og reyndi að skilgreina hvað
hefðbundin ítölsk matarmenning
væri. Hann komst að því að hún var
staðbundin,
árstíðarbundin,
sanngjörn
gagnvart fram-
leiðendum
jafnt sem neyt-
endum og bæði
góð á bragðið
og holl fyrir
líkama og sál.
Það vill svo til
að McDonald’s
er ekkert
af þessu en
eftir að Petrini
skilgreindi
undirstöður hefðbundinnar matar-
menningar – og kallaði slow food til
heiðurs McDonald’s og þess konar
fast food – var ástæðulaust að minn-
ast frekar á hamborgarakeðjuna.
Þessi hugljómun Petrinis hefur haft
víðtæk áhrif úti um allan heim og
það er langt í frá að það sjái fyrir end-
ann á þeim. Í anda þessa viljum við
hvetja fólk til að draga fram og ræða
bestu matarmenninguna í íslenskum
skólum. Það er auðveldara að elta
hana uppi en hlaupa undan því sem
er vont, illt og heimskt. Þess vegna
viljum við biðja ykkur um að senda
okkur ábendingar um það sem vel
er gert í skólamötuneytum landsins.
Netfangið er matur@frettatiminn.is
Flutningur hádegismatarins frá heimilum til skólanna er menningarleg straumhvörf. Í þeim
felast miklar hættur og augljós víti til varnaðar. En þessar breytingar geta líka skapað frábær
tækifæri.
Matur
Helgin 8.-10. apríl 2011
Martin Luther
King sameinaði
baráttuna með því
að horfa fram.
Gandhi sameinaði
baráttuna með því
að horfa aftur.
Carlo Petrini
forðaði baráttunni
frá endalausum
skilgreiningum á
óvininum.
Jamie Oliver reynir í þáttaröð sinni á Stöð 2 að sannfæra grunnskólanemendur og
foreldra í Huntington um að ferskur matur sé jafnvel betri en mikið unninn, sætur
og saltaður.
Eins og í mörgu öðru er viðkemur mat eru Japanar ljósárum á undan okkur
þegar kemur að hádegismat barnanna. Hið hefðbundna Bento box, nestisbox
sem heldur utan um nesti og hádegismat barna og fullorðinna, byggist á fjöl-
breyttum mat þar sem litir, næring og bragð eru í fullkomnu jafnvægi. Og við
erum ekki
að nálgast
Japana. Við
erum frekar á
hinni leiðinni, á
eftir Banda-
ríkjamönnum
þar sem mál-
tíðirnar er fyrir
löngu hættar
að bragðast
eða líta út eins
og matur. Ljós-
myndir/Nordic
Photos/Getty
Images
CINTAMANI
WWW.CINTAMANI.IS