Fréttatíminn - 08.04.2011, Page 67
Á hljómgrunnur.is er að finna aðgengi-
legt yfirlit yfir tónlistarviðburði sem
eru fram undan. Rokk, djass, popp,
klassík og allt þar á milli.
Föstudagur 8. apríl
Vortónleikar Lúðrasveitar Hafnarfjarðar
Gaflaraleikhúsið, Hafnarfirði, kl. 20
Á efnisskránni fer mikið fyrir suðrænum tónum
og svítum af ýmsu tagi og þrír trompetleikarar
spila Bugler’s holiday eftir L. Anderson. Stjórn-
andi er Rúnar Óskarsson. Aðgangur 1.000 kr.
Jón Múli níræður
Salurinn, Kópavogi, kl. 20.30
Vegna fjölda áskorana hefur verið ákveðið
að efna til aukatónleika. Ragnar Bjarnason,
Ellen Kristjánsdóttir, Sigurður Guðmundsson,
Magga Stína og Ómar Ragnarsson syngja mörg
þekktustu lög bræðranna Jóns Múla og Jónasar
Árnasona. Sigríður, Elísabet og Elín Eyþórs-
dætur syngja eitt lag ásamt föður sínum,
Eyþóri Gunnarssyni, sem jafnframt stjórnar
hljómsveitinni. Hana skipa, auk Eyþórs, þeir
Óskar Guðjónsson á saxófón, Scott MacLemore
á trommur og Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson
á bassa. Aðgangur 3.500 kr.
laugardagur 9. apríl
Frédérique Friess, Ólöf Sigursveinsdóttir
og Hrönn Þráinsdóttir
Norræna húsið kl. 15.15
Frédérique Friess sópran, sem tilnefnd var
bjartasta vonin af ungum söngvurum í óperu-
tímaritinu Opernwelt 2003, syngur ásamt
Ólöfu Sigursveinsdóttur sellóleikara og Hrönn
Þráinsdóttur píanóleikara í 15:15 tónleikasyrp-
unni. Tónleikarnir eru tileinkaðir minningu
Sigursveins D. Kristinssonar á 100 ára afmæli
hans. Aðgangur er 1.500 kr. en 750 kr. fyrir eldri
borgara, öryrkja og námsmenn.
Björgvinshátíð
Menningarhúsið Hof, Akureyri, kl. 16
Hátíð til heiðurs Björgvini Guðmundssyni tón-
skáldi. Tónverk og valdir þættir, m.a. kantatan
Til komi þitt ríki með hundrað manna kór og
fjórum einsöngvurum og þættir úr söngleikn-
um Skrúðsbóndinn og sýnd kvikmynd (15 mín.)
um ferð Kantötukórsins til Norðurlandanna
1951. Aðgangur 2.500 kr.
Bryndís Halla og Edda Erlends
Salurinn, Kópavogi, kl. 17
Þær Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari og
Edda Erlendsdóttir píanóleikari eiga langt og
farsælt samstarf að baki og hafa oft leikið
saman á tónleikum. Að þessu sinni ljá þær
Tíbrár-röð Salarins krafta sína og flytja verk
fyrir selló og píanó. Aðgangur 3.500 kr.
sunnudagur 10. apríl
Kvennakórinn Léttsveit Reykjavíkur
Íslenska óperan kl. 17 og 20
Suðrænn tangó og afrískt hljóðfall verða í fyrir-
rúmi á tvennum tónleikum Léttsveitarinnar
í Íslensku óperunni á sunnudag. Kristín Jóna
Þorsteinsdóttir og Kjartan Guðnason sjá um
áslátt. Gunnar Hrafnsson spilar á bassa og
Aðalheiður Þorsteinsdóttir á píanóið. Ein-
söngvari er Bergþór Pálsson og öllu stjórnar
Jóhanna V. Þórhallsdóttir. Aðgangur 3.500 kr.
Handanleikar – Hljóðsóló Kiru Kiru
Listasafn Íslands kl. 21
Sólóverkefni Kristínar Bjarkar, Kiru Kiru,
spratt upp úr Tilraunaeldhúsinu árið
1999. Hún hefur síðan þá verið iðin við
tónleikahald ásamt því að semja tónlist og
hljóðmyndir fyrir leikhús og dansverk eða
í samhengi við eigin innsetningar. Andi
Tilraunaeldhússins svífur enn yfir vötnum
því Kristín Björk vinnur mikið í samstarfi
við ólíka listamenn.
.
Signatures of Nature
2. ára afmæli
Frábær afmælistilboð um helgina
15-30% afsláttur af öllum vörum
Kæru viðskiptavinir við viljum nota
tækifærið og þakka fyrir viðskiptin við
Signatures Of Nature síðastliðin 2 ár.
Verið velkomin til okkar í Smáralind
um helgina og fagnið með okkur.