Fréttatíminn - 08.04.2011, Síða 68
68 dægurmál Helgin 8.-10. apríl 2011
Rokkarinn
Jakob er
sendur í raf-
magnslausa
sveitina
Stútfullur af skemmtilegu efni – Góða helgi
F ljúgandi uglur, rennibraut úr loftinu, risavaxinn gosbrunnur og hrífandi útivistarflíkur. Svona hljómar lýsingin
á nýjustu Cintamani-versluninni sem opnuð
verður í dag, 8. apríl, með pomp og prakt.
Boðið verður upp á líflegar veitingar milli kl.
fimm og átta, plötusnúður í klakaboxi mun
spila ljúfa tóna og fleiri óvæntar uppákomur
verða í boði.
„Þetta er sannkallaður ævintýraheimur
sem við höfum skapað okkur hér,” segir
Dagný Guðmundsdóttir, rekstrarstjóri
Cintamani. „Við fengum hjálp frá Íslensku
auglýsingastofunni og arkitektinum Frey
Frostasyni til þess að skapa þennan
dásamlega ævintýraheim. Einnig fengum
við frábæra listamenn til liðs við okkur sem
hafa skapað líflegt andrúmsloft með stórum
og vígalegum listaverkum á veggjunum.
Fyrir krakkana höfum við komið upp öflugu
leikherbergi.
Fatahönnuðurinn Steinunn Sigurðar-
dóttir, sem þekktust er fyrir hönnun sína
hjá Ralph Lauren, Calvin Klein og Gucci, er
yfirhönnuður nýjustu línu Cintamani og sér
einnig um útlit fyrirtækisins. „Steinunn sér
til þess að allt passi
saman. Hún er yfir-
hönnuður hjá okkur
og hefur yfirsýn yfir
þær vörur sem við
seljum. Um leið og
nýja verslunin verður
opnuð kemur vorlína
Cintamani á markað,
en Steinunn kemur
ekkert að hönnun
hennar. Hún er á fullu að hanna 2012-línuna
sem kemur eftir sumarið. Einnig verður
þarna flott skódeild, fullt af nýjum merkjum
í skóm sem henta fyrir íslenskar aðstæður.
Fyrir þær sem ekki geta hamið sig verður
rennibraut úr kvenfatadeildinni niður í
skódeildina.“
cintamani Opnar í Bankastræti
Dásamlegur ævintýraheimur
Útivistarmerkið Cintamani opnar 800 fermetra verslun í Bankastræti þar sem
Sævar Karl hélt sig síðustu áratugina.
Dagný, rekstrar-
stjóri Cintamani,
í miðjum fram-
kvæmdum.
Þjóðleikhúsið frumsýnir í kvöld, föstudagskvöld,
Bjart með köflum, nýtt verk eftir leikskáldið vin-
sæla Ólaf Hauk Símonarson. Verkið á sér stað
árið 1968. Rokkarinn Jakob er sendur í rafmagns-
lausa sveitina með gítarinn og verður fljótlega
miðpunkturinn í fornum fjandskap á milli bæja í
sveitinni þar sem ástin kraumar og heiftin ólgar.
Í Bjart með köflum fæst Ólafur Haukur við
andstæðurnar og öfgarnar í Íslendingum og sam-
band þeirra við landið, við undirleik tónlistar frá
ofanverðum sjöunda áratugnum.
Ólafur Haukur hefur skrifað mörg leikrit sem
átt hafa einstökum vinsældum að fagna í Þjóð-
leikhúsinu á síðustu áratugum og má þar nefna
Gauragang, Þrek og tár, Hafið, Græna landið og
Bílaverkstæði Badda.
Þórhallur Sigurðsson hefur sett öll þessi
verk á svið og hann leikstýrir einnig þessu nýja
verki.
Ólafur Haukur
aftur á fjalirnar
Hlutirnir gerast þegar
rokkarinn úr bænum
hittir fyrir fólk sem
yrkir landið og sækir
sjóinn að hætti for-
feðranna.
Danslilja
Fyrsta veggmyndin í stíl
geómetrískrar abstraktlistar
Listagallerí og kaffihús
Þ að hefur ekki farið hátt en í hjarta aðalstöðva Arion banka
við Borgartún er listagallerí og
kaffihús sem opið er almenningi. Á
morgun, laugardag, verður opnuð
sýning á verkum Harðar Ágústs-
sonar málara. Af því tilefni verður
efnt til svokallaðs Harðarhádegis
þar sem Ólafur Gíslason list-
fræðingur og Pétur Ármannsson
arkitekt fjalla um Hörð (1922-
2005), verk hans og feril.
Pétur er einn höfunda bókar-
innar Hörður Ágústsson – Endur-
reisnarmaður íslenskra sjónlista.
Pétur hafði á dögunum umsjón
með endurgerð á listaverkinu
Danslilja sem Hörður gerði árið
1954 á vegg í útibúi Búnaðarbank-
ans við Laugaveg 114 þar sem af-
greiðslusalur Tryggingastofnunar
er nú til húsa. Þegar bankinn flutti
1970 var málað yfir verkið og það
hvarf sjónum. Verkið hefur nú hins
vegar verið endurgert á glervegg
í nýju Höfðaútibúi Arion en svo
heppilega vildi til að hluti af því
upprunalega fannst óskemmdur
efst á veggnum við Laugaveg
þegar niðurhengt loft hafði verið
tekið niður. Verður sú saga meðal
annars rakin á Harðarhádeginu á
laugardag.
Listagallerí og kaffihús Arion er
opið almenningi virka daga milli
kl. 11 og 15.30 og á laugardögum
frá 12 til 17.
ariOn Banki aðalstöðvarnar við
BOrg rtún í nýju hlutverki