Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.02.1967, Page 45

Læknablaðið - 01.02.1967, Page 45
LÆKNABLAÐIÐ 15 sé á engan hátt hæfur til að teljast sérfræðingur í þeirri grein eftir t. d. tíu ár. Nefndin ætlar, að flestum læknum sé ljós sú öra þróun, .sem á sér stað í læknisfræði, og að það er fullt starf að stunda og fylgjast með nýjungum í sérgrein sinni eða undirsérgrein. Nefndin vill benda á, að um margt er erfiðara að halda við sérfræði- þekkingu hér á landi en víða annars staðar, og telur, að nær öllum ís- lenzkum sérfræðingum sé það ljó.st. Bendir hún á nokkur atriði, sem eiga þátt í þessu, án þess að hún ætli sér að rekja þau til hlítar. Þessi atriði eru: 1. Fólksfæð. 2. Við núverandi starfsaðstöðu er lítill tími til lestrar. 3. Ekkert nothæft bóka- eða tímaritasafn er til í landinu, og því verða læknar að eyða meira fé í bóka- og tímaritakaup en annars staðar tíðkast. 4. Læknafundir eru fáir og efnisval fátæklegt. 5. Erfiðleikar eru á að sækja erlend læknaþing; beinn kostnaður við ferðir og oft algjör tekjumissir á meðan og stundum kostnaður við staðgengil. 6. Af sömu ástæðum eru erfiðleikar á nokkurra mánaða námsdvölum á erlendum spítölum. 7. Sérfræðistörf hafa verið þannig launuð á undanförnum árum, að sérfræðingar hafa orðið að sjá sér farborða með öðrum óskyldum störfum og því stundað sérgrein sína sem aukastarf. 8. Léleg .starfsaðstaða; hörgull á sjúkrarúmum, skortur á rann- .sóknarstofum og takmarkaður aðgangur að þeim. Þó að sumt af því, sem hér hefur verið talið, stafi af sérstöðu þjóð- arinnar, er margt, sem gera má til úrbóta, og telur nefndin, að það sé hlutverk lækna og samtaka þeirra að berjast fyrir þeim. Nefndin telur, að L. R. megi ekkert aðhafast, er gæti orðið til að lækka staðal íslenzkra sérfræðinga, og við verðum að fallast á skil- greiningu WHO, að sérfræðingur kallist sá, sem stundar eingöngu sér-J grein sína. Hún vill hér enn fremur benda á skilgreiningu Platt Com- mittee á „consultant“, en það er „sá, sem skipaður hefur verið af sjúkrahúsyfirvöldum vegna hæfni, prófa, þjálfunar og reynslu. Honum er ætlað að taka á sig ábyrgð á rannsókn og/eða meðferð á sjúklingum í einu eða fleiri sjúkrahúsum og er óháður eftirliti annarra í læknis- fræðilegu tilliti". Næstum allir íslenzkir sérfræðingar hafa lokið framhaldsnámi á erlendum spítölum, oft langtum fremri þeim, sem eru hér á landi. Það er því skoðun nefndarinnar, að þeim sé að loknu slíku námi engu síður treystandi til að rannsaka og stunda sjúklinga á eigin ábyrgð en þeim sérfræðingum, .sem hér eru fyrir. Þetta sjónarmið virðist ekki vera viðurkennt af heilbrigðisyfir- völdum og yfirlæknum í píramíðakerfi okkar, því að nýjum sérfræð- ingum er hér annaðhvort ekki hleypt inn á spítalana (enda þótt þar vanti sérfræðing í þeirri grein, er um ræðir) eða þeir eru settir í svokallaðar aðstoðarlæknisstöður, sem engin ábyrgð fylgir. Trygginga-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.