Læknablaðið - 01.02.1967, Blaðsíða 61
LÆKNABLAÐIÐ
29
báðir beinasérfræðingar spítalans hafa verið fjarverandi samtímis, og
má raunar segja sama um Landspítalann, að á stundum hafa á bein-
brotavöktunum verið læknar, sem ekki eru sérlærðir í slíku.
Allir, sem verða fyrir höfuðsly.sum, eru lagðir á Landakotsspítala,
og er það raunar æskilegt vegna þess, að þar er eini læknirinn, sem
fengizt hefur við aðgerðir við slíkum slysum, auk þess sem þar er
greiður aðgangur að ráðgefandi taugalækni og lyflæknum. Hins vegar
er nefndinni ekki ljóst, hvert á að senda þá, sem lenda í slíkum sly.sum,
i fjarveru þessa læknis á ári hverju.
Mjög margt vantar á Landakot, hvað snertir tæki og aðbúnað. í
því sambandi er rétt að komi fram, að lögboðin daggjöld til sjúkra-
húsa af hálfu hins opinbera eru í engu samræmi við raunverulegan
kostnað og fást ekki leiðrétt. Líða einkaspítalar, svo sem Landakot og
Hafnarfjarðarspítali, auðvitað við það.
G. Sjúkrahúsið í Keflavík: Það er undir stjórn sérfræðings í
skurðlækningum. Setja þarf staðal fyrir það sjúkrahús og tryggja,
að allir læknar í héruðum þeim, sem það á að þjóna, fái aðstöðu til
að stunda sína sjúklinga í því.
UM FRAMKVÆMDARATRIÐI
f viðræðum við suma forráðamenn sjúkrahúsa hefur komið fram
skilningur á viðhorfum nefndarinnar um nauðsyn þess að opna sjúkra-
húsin, en þeir hafa jafnframt lýst efasemdum um, að slíkt væri fram-
kvæmanlegt.
Hér eru engin óleysanleg vandamál að dómi nefndarinnar, enda
ekki verið að reyna kerfi, sem hefur ekki verið þrautreynt annars
staðar.
Nefndin ætlar ekki að setja fastar reglur um, hvernig skipt yrði
úr píramíðakerfinu í frjálsara kerfi sérfræðinga, enda margs að gæta
í því sambandi. Nefndin vill þó benda á eftirfarandi atriði um leið
til framkvæmdar:
1) Allar stöður við spítala yrðu lagðar niður nema stöður aðstoðar-
lækna.
2) Þeir læknar, sem nú eru starfandi við hvern spítala, mynda
kjarna læknaliðsins og mynda læknaráð, svo sem segir fyrir
um í lágmarksstaðli.
3) Þeir, sem sækja um aðstöðu til sjúkrahússtarfa, senda um-
sóknir til læknaráðs, sem gerir umsækjanda ljóst, hvaða skyld-
ur hann tekst á herðar að fenginni vinnuaðstöðu.
4) Greiðsla fyrir störf fer auðvitað eftir atvikum, og eru þegar
fyrir hendi nothæf greiðsluform eftir taxta L. R., þ. e. eykta-
greiðslur eða greiðsla fyrir hvert unnið verk.
Fjöldi sérfræðinga í læknaliði hvers sjúkrahúss er breytilegur og
fer eftir viðfangsefnum hvers sjúkrahúss. Læknaráði sjúkrahúsa ber
að setja nánari reglur um þetta atriði, svo að ákvæðum lágmarksstað-
als um gæði læknisþjónustu sé framfylgt.
Nefndin hefur viljandi leitt hjá sér umræður um kostnað við
spítalalæknisþjónustuna. Hún álítur, að þjóðin hafi ekki efni á að velja