Læknablaðið - 01.02.1967, Blaðsíða 66
34
LÆKNABLAÐIÐ
við slíkt ástand og horfið úr landi — margir til Bandaríkjanna.
Þar hafa þeir átt kost á vellaunuðum störfum, góðri starfs-
aðstöðu og samvinnu við aðra sérfræðinga á jafnræðisgrund-
velli. Fullyrt er, að gallar í skipan læknaliðs á brezkum sjúkra-
húsum sé veigamikil orsök að flótta yngri lækna frá Bret-
landi.
f) Bandaríkin: Þar er áherzla lögð á eftirfarandi:
1. réttindi sjúklings til að velja sér lækni utan spítala og innan,
2. réttindi hans til að njóta beztu læknishjálpar, sem völ er á,
3. afleiðinguna á því, sem er hópsamvinna lækna, „team-work“ og
,,consultations“-skylda,
4. „Minimal Standard", sem sjúkrahúsum hefur verið settur af
læknafélögunum og stjórnendum spítalanna,
5. lausráðningu sérfræðinga,
6. val yfirlæknis af spítalalæknunum og stjórn spítalans — og
gjarnan tímabundið,
7. læknaráð,
8. hversu nær óhugsandi er, að sérfræðingur hafi ekki aðgang að
spítala.
í „Minimal Standard“ (fylgirit) er rætt nánar um flest þessi atriði.
Læknaliði spítalanna er skipt í þrjá aðalflokka:
1. Aðstoðarlæknar (Residents, Interns), sem eru við nám.
2. „Aktivt staff“, þ. e. þeir, sem stunda sjúklinginn og mynda
kjarnann 'í starfsemi .spítalans. Á sjúkrahúsum, svipuðum og
nefndinni er ætlað að fjalla um, mundu þessir læknar vera sér-
fræðingar. Þeir gætu eftir atvikum starfað á einum spítala eða
mörgum, og þeir bera ábyrgð á sjúklingum sínum.
3. Consultants. — Sérfræðingar, sem eru ráðgefandi á einu sjúkra-
húsi eða fleirum, en stunda ekki sjúklinga, nema þeir séu jafn-
framt á „aktiv staffi“.
HELZTIi IMIÐLRSTÖÐLR
1. Píramíðakerfið á opinberu sjúkrahúsunum er orðið úrelt. í stað
þess verða að koma sérfræðingakerfi.
2. Sjúkrahúsin verður að opna fyrir öllum læknum.
3. íslenzkum sjúkrahúsum verður að setja lágmarksstaðal.
4. Læknalið hvers sjúkrahúss skal mynda læknaráð, sem ábyrgist
læknisþjónustuna á sjúkrahúsunum.
5. Læknasamtökin sjálf veiti sérfræðiviðurkenningu.
6. Sjúkrahúsin í Reykjavík og sérfræðinga ber að nýta betur til
læknakennslu.
7. Sjúkrahúsin verða að hafa skipulagða áætlun um kennslu að-
stoðarlækna.
8. Ákveða verður, hvaða þjónustu hverju sjúkrahúsi er framvegis
ætlað að veita.
9. Sjá þarf fyrir fjárframlögum til vísindaiðkana.
Þessar niðurstöður og fleiri eru auðkenndar með dökku letri i
nefndarálitinu.