Læknablaðið - 01.02.1967, Qupperneq 72
10
LÆKNABLAÐIÐ
a) Þjónusta við sjúklinga utan sjúkrahúsa er æskileg í eftir-
farandi tilvikum:
1. Nauðsynlegt eftirlit og meðferð á sjúklingum, sem hafa
nýlega legið á sjúkrahúsi.
2. Rannsóknir og meðferð, sem verða ekki gerðar annars
staðar.
3. Rannsóknir til vísinda og kennsluþarfa.
b) Sérfræðingur sá, sem hafði sjúkling til meðferðar á sjúkra-
húsinu, skal sjá um eftirmeðferðina og færa inn á sjúkra-
skrá og senda lækni hlutaðeigandi sjúklings niðurstöðuna
að því loknu, ,svo sem um sjúkling á sjúkrahúsi væri að
ræða.
c) Sé um rannsóknir og/eða meðferð að ræða, sem ekki er
hægt að gera annars staðar, verður að tryggja það, að
hinn hæfasti læknir, sem völ er á, sjái um framkvæmdina
og sendi lækni hlutaðeigandi sjúklings umsögn og niður-
stöðu þegar að því loknu.
d) Nægilegt húsrými, aðstoðarlið og ótakmarkaður aðgangur
að rannsóknarstofum og tækjum er skilyrði þess, að slík
þjónusta verði veitt sjúklingum utan sjúkrahúsa.
2. Orkulœkningar:
a) Fysiotherapi er nauðsynleg á flestum sjúkrahúsum, og
ber að sjá fyrir hæfilegu húsrými og sjúkraþjálfun eftir
þörfum sjúkrahússins.
b) Ef endurhæfingardeild er á sjúkrahúsinu, skal hún vera
í umsjá orkulækna.
3. Félagsráðgjafar eru æskilegir á flestum sjúkrahúsum, og ber
að sjá þeim fyrir hæfilegri starfsaðstöðu til viðtala o. þ. u. 1.
II. Lœknalið
A. Ábyrgð og skyldur:
Stjórn sjúkrahússins verður að fela læknaliði þess alla ábyrgð
á læknisþjónustunni, þar með læknaval til sjúkrahússins, þar
eð læknaliðið ber ábyrgð á gæðum þeirrar læknishjálpar, sem
veitt er sjúklingum þeim, sem vistaðir eru á sjúkrahúsinu.
Vanda ber læknaval að sjúkrahúsinu og gæta þess, að ætíð sé
nægilégt læknalið til að halda uppi fullkominni læknisþjónustu
og tryggja það, að sérhver sjúklingur, sem vistast á sjúkrahús-
inu eða nýtur læknishjálpar á stofnunum þess, sé í umsjá
sérfræðings, sem ber ábyrgð á rannsókn hans og meðferð. Gæði
læknisþjónustunnar fara eftir læknaliðinu og hversu starfandi
læknum, sem mynda læknaráð sjúkrahússins, tekst að fram-
kvæma eftirfarandi skyldur:
1. læknaval á sjúkrahúsið;
2. stöðugt eftirlit og mat á þeirri læknisþjónustu, sem veitt er;
3. að stuðla að eðlilegri þróun sjúkrahússins og fylgjast með
nýjungum og framförum í læknisfræði og sjúkrahúsmáium;
4. að fá alla lækna til að vanda sjúkraskrár,
5. að sjá til þess, að öll lik séu krufin,