Læknablaðið - 01.06.1970, Page 4
LÆKNABLAÐIÐ
NÁMSSTYRKUR
Stjórn Krabbanieinsfélags Islands hefur ákveðið að veita
lækni 500.000,00 — fimm hundruð þúsund — króna styrk,
til a. m. k. ársdvalar erlendis, í þeim tilgangi, að hann
kynni sér læknismeðferð á ki’abbameini við viðurkennda
háskólastofnun.
Auglýsing þessa efnis kom í dagblöðunum 21. mai 1970,
en birtist nú aftur vegna þess, að enginn umsækjenda gat
fullnægt skilyrðum hinnar fyrri. Ákvæðið um stöðu á
sjúkrahúsi eða tryggingu fyrir henni fellur niður. Hins
vegar skal læknirinn skuldbinda sig til að koma heim að
námi loknu til starfs í Reykjavík, en endurgreiða styrkinn
ella, ásamt áföllnum vöxtum.
Umsókninni skal fylgja greinargerð um námsferil og
fyrri störf, og taka skal fram, við hvaða stofnun læknir-
inn hyggst stunda námið.
Umsóknir skulu berast formanni Krabbameinsfélags Is-
lands, Bjarna Bjarnasyni lækni, fyrir 10. október 1970.
KRABBAMEINSFÉLAG ISLANDS