Læknablaðið - 01.06.1970, Side 58
98
LÆKNABLAÐIÐ
4. mynd. Fyrst meðhöndlaðir annars staðar, síðan fluttir á D VII.
Orsakir
Langalgengasti brunavaldurinn er heitur vökvi (5. mynd), og
verða flest þau slys innanhúss. Ekki greina skýrslur ætíð frá,
hvers eðlis slysið var, en a. m. k. 18 börn hafa kippt yfir sig hrað-
suðukatli og önnur 17 fengið yfir sig kaffi eða te. Mörg börn hafa
verið að klifra í nánd við eldavélar og steypt yfir sig vatni úr
pottum og allmörg hafa hrennt sig í þvottahúsunum, t. d. við það,
að' heitavatnsslangan tekur á rás og sprautar vatni í allar áttir;
önnur hafa dottið ofan í bala eða velt um fötum með heitu vatni.
Næstflest börn hafa brennzt á eldi, og eru þeir brunar jafnan
verri en þeir, sem að framan getur. Verður það með ýmsu móti,
Ijæði í húsbrunum og við fikt með eld, og er þá iðulega olía eða
benzín nærri. Ekki er óeðlilegt, að eldbrunum fækki nokkuð, a.
m. k. hlutfallslega, þar sem nú er óvíða lýst og hitað með eldi.
I staðinn aukast rafmagnsbrunar. Koma þeir helzt, þegar börn
stinga einu og öðru í rafmagnsinnstungur, og sárin, sem oft eru
djúp, koma á fingur og varir.
Brunar af snertingu fást t. d., þegar setzt er á heitar eldavélar-
Iiellur,2 heit straujárn snert4 eða komið er við heita miðstöðvar-
ofna.2