Læknablaðið - 01.06.1970, Blaðsíða 38
88
LÆKNABLAÐIÐ
LÆKNABLAÐIÐ
56. árg. Júní 1970
FELAGSPRENTSMIÐIAN H.P.
TÓBAKSREYKINGAR
Á 23. þingi Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar, sem
haldið var í Genf í mai í ár,
var lögð fram skýrsla aðal-
forstjóra stofnunariimar varð-
andi takmörkun tóbaksreyk-
inga. Skýrslu þessa höfðu sam-
ið tveir af ráðunautum Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunarinnar,
og nefnist hún á ensku SMOK-
ING AND HEALTH.
Segja má, að í skýrslu þess-
ari felist raunar fátt nýtt varð-
andi skaðsemi tóbaksreykinga
fyrir heilsu manna. Hins vegar
erröksemdafærsla sú, sem fram
kemur í skýrslunni, gagngerð-
ari en í'lest, ef ekki allt, sem
hefur birzt að þessu lútandi
hingað til. Þykir því rétt að
draga fram og leggja áherzlu
á í þessum dálkum þau sjö
meginatriði, sem telja má nið-
urstöðutölur og ályktunarorð
skýrslunnar.
1. Dánarhlutfallstala (mor-
tality ratio) þeirra manna, sem
reykja sígarettm-, er 30—80%
hærri en þeirra, sem reykja
ekki.
2. Dánarhlutfallstalan eykst
með auknum sígarettureyking-
um.
3. Aukning dánarhlutfalls-
tölunnar meðal sígarettureyk-
ingamanna er tiltölulega meiri
á aldrinum 45—54 ára en á
aldursskeiðinu fyrir og eftir.
4. Aukning dánarhlutfalls-
tölu er meiri meðal þeirra, sem
byrja ungir að reykja, en meðal
þeirra, sem byrja síðar á æv-
inni.
5. Dánarhlutfallstalan er
hærri meðal sígarettureykinga-
manna, sem segjast anda að sér
reyknum, en meðal þeirra, sem
gera það ekki.
6. Dánarhlutfallstalan er
lægri meðal sígarettureykinga-
manna, sem hætt hafa að
reykja, og þess vegna lægri, því
lengur sem mn er liðið, siðan
þeir hættu að reykja.
7. Dánarhlutfallstala þeirra,
sem reykja pípu eða vindla,
eykst í heild sinni lítið eða ekk-
ert. Svo virðist sem pípureyk-
inga- og vindlareykingamenn
séu yfirleitt hófsamir reykinga-
menn, sem anda ekki að sér
reyknum. Hins vegar virðist
vera ástæða til þess að ætla, að
dánarhlutfallstala þeirra, sem
reykja mikið pípu eða vindla og
anda að sér reyknum, aukist um
20—40%.
Af framansögðu má beinlín-
is ráða, að sígarettureykingar
stofna hfi og heilsu fjölda
manna á bezta aldursskeiði í
voða. Er vandfundið nokkurt