Læknablaðið - 01.06.1970, Blaðsíða 54
96
LÆKNABLAÐIÐ
þeirra hafa verið lögð inn oftar en einu sinni, þannig að alls voru
brunainnlagnir þar orðnar 210 um síðustu áramót.
1 þetta yfirlit eru teknir allir þeir, sem fengið hafa greininguna
combustio og allir eru með yfirborðsbruna. Ekki enl tekin með
börn, sem hafa innbyrt sterk efni, nema þau hafi um leið fengið
hrunasár á varir eða í munn enda er þá komið yfir í greininguna
intoxicatio eða veneficium.
öll þessi 185 börn hafa því liaft sýnileg merki bruna, allt frá
óverulegum roða upp í meiriháttar skaða. Þetta eru ekki háar
tölur, en ættu ])ó að gefa vísbendingar, sem vert er að gefa gaum.
Aldursdreifing- og kynskipting-
Eins og að likum lætur, koma þessi slys oftast fyrir meðal
barna, sem farin eru að geta hreyft sig sjálf um, en þar sem skyn-
semin er ekki nð sama skapi orðin þroskuð.
Athyglisvert er, að tiðnin er tvöfalt meiri meðal drengja, og
gildir bað ekki aðeins í efri aldursflokkunum (2. mynd). Af þessu